Fréttablaðið - 14.02.2014, Side 10
14. febrúar 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 10
EFNAHAGSMÁL „Ég veit engin dæmi
þess að forsætisráðherrar erlend-
is gagnrýni sína seðlabanka svona
hart,“ segir Daníel Svavarsson,
forstöðumaður Hagfræðideild-
ar Landsbankans. Deildin birti
Hagsjá sína í gær þar sem fram
kemur að ekki verði betur séð en
að sú staða sé upp komin að ríkis-
stjórn landsins vantreysti Seðla-
bankanum til að gegna lögbundn-
um skyldum sínum.
Í ritinu Peningamál sem birt var
á miðvikudag sagði Seðlabankinn
að nauðsynlegt yrði, vegna fyrir-
hugaðra aðgerða ríkisstjórnarinn-
ar um skuldalækkanir íbúðalána,
að beita stjórntækjum peninga-
stefnunnar, það er stýrivöxtum,
af mun meiri hörku en ella hefði
verið þörf á, en engu að síður yrði
ómögulegt að hemja verðbólgu-
áhrif aðgerðanna að fullu.
Daníel segir að með þessu séu
ríkisstjórnin og Seðlabankinn að
toga hvort í sína áttina. „Það var
niðurstaða Rannsóknarskýrslu
Alþingis að þegar þenslan var sem
mest á sínum tíma var Seðlabank-
inn að reyna að draga úr henni á
meðan verið var að lækka skatta
og fara í aðrar þensluhvetjandi
aðgerðir í ríkisfjármálunum. Það
myndaðist síðan almenn sátt um
það eftir hrunið að það hefðu verið
ákveðin mistök að Seðlabankinn
hefði verið einn í baráttunni við
verðbólguna og samstaða um það
að vinna saman að markmiðinu,“
segir Daníel.
Hann segir skuldalækkunina
hafa talsvert verðbólguhvetjandi
áhrif að mati Seðlabankans og
fyrir vikið þurfi hann að beita
stjórntækjum sínum af hörku.
„Það er skrítið að ríkisfjármálin
taki ekki meira tillit til þess að við
erum ekki búin að ná verðbólgu-
markmiðinu,“ segir Daníel.
Hagfræðideildin segir einnig í
Hagsjánni að viðbrögð forsætis-
ráðherra í ræðu á Viðskiptaþingi
Viðskiptaráðs veki athygli, þar
sem hann lýsti furðu á forgangs-
röðun Seðlabankans og bætti við
að hann hefði verið búinn að panta
allt aðra greiningu sem enn væri
beðið eftir. Deildin segir þannig
komið upp vantraust milli ríkis-
stjórnarinnar og Seðlabankans
sem muni óhjákvæmilega veikja
trú markaðsaðila, almennings og
alþjóðlegra matsfyrirtækja á að
hér takist að koma á langþráðum
efnahagslegum stöðugleika og
stefnu í stjórn efnahagsmála.
„Við sjáum þessi viðbrögð og það
ekki í fyrsta skiptið og það bend-
ir til þess að ekki sé mikið traust
þarna á milli og þá aðallega í aðra
áttina. Greiningaraðilar erlend-
is horfa á þetta samspil og sjá að
menn eru ekki samstiga og það er
hið versta mál,“ segir Daníel að
lokum. fanney@frettabladid.is
Sojapylsurnar frá Hälsans Kök eru
frábærar á grillið. Holl og bragðgóð
tilbreyting.
HOLLAR PYLSUR
INNIHALD
Prótein úr hveiti (42%) og soja (32%).
Jurtaolía, eggjahvítuduft, salt (1,8%),
glúkósi, maltódextrín, laukduft,
sterkja, ger, krydd,
hvítlauksduft.
Telur vantraust í garð
Seðlabanka skaðlegt
Forstöðumaður Hagfræðideildar Landsbankans segir ríkisstjórnina og Seðlabank-
ann ósamstiga. Ríkisfjármálin þurfi að taka mið af verðbólgumarkmiði. Vantraust
veiki trú markaðsaðila og matsfyrirtækja á efnahagslegum stöðugleika.
VIÐSKIPTAÞING Forsætisráðherra furðar sig á forgangsröðun við greiningar Seðla-
bankans. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Greining-
araðilar er -
lendis horfa á
þetta samspil
og sjá að menn
eru ekki sam -
stiga og það er
hið versta mál.
Daníel Svavarsson,
forstöðumaður Hagfræðideildar
Landsbankans
BELGÍA Umdeilt frumvarp um líkn-
ardráp á börnum var samþykkt
á belgíska þinginu í gær með 86
atkvæðum gegn 44. Tólf þing-
menn sátu hjá.
Belgía verður þar með fyrsta
landið sem heimilar líknardráp án
þess að tilgreina lágmarksaldur,
en í Hollandi eru í gildi lög sem
heimila líknardráp á börnum eldri
en tólf ára, að því tilskildu að for-
eldri gefi samþykki sitt.
Skilyrði líknardráps í Belgíu
verða þau að barnið sé haldið
banvænum sjúkdómi, engin lækn-
ing sé möguleg og þjáningar séu
óbærilegar. Þá þarf barnið að hafa
ítrekað beðið um að fá að deyja,
og foreldrar, læknar og geðlækn-
ar þurfa að veita samþykki sitt
áður en ákvörðun er tekin.
Samkvæmt skoðanakönnunum
eru þrír af fjórum íbúum lands-
ins sáttir við nýju lögin, en and-
stæðingar þess hafa harðlega
gagnrýnt frumvarpið. Leiðtogar
kirkjunnar hafa sagt lögin siðlaus.
Um sama leyti og þingmenn
ræddu frumvarpið í gær tók lög-
reglan í Belgíu ákvörðun um að
rannsaka þurfi hvort einn helsti
talsmaður líknardráps í Hollandi,
hin 81 árs gamla Els Borst-Eilers,
hafi verið myrt.
Hún fannst látin á mánudag í
bílskúr sínum.
Borst-Eilers var heilbrigðisráð-
herra Belgíu á árunum 1994 til
2002 og átti einna stærstan þátt í
að belgíska þingið samþykkti lög-
leiðingu líknardráps árið 2001.
- gb
Belgíuþing samþykkti í gær með yfirgnæfandi meirihluta umdeilt frumvarp:
Líknardráp á börnum lögleyft í Belgíu
ÍTALÍA Enrico Letta sagðist í gær
ætla að segja af sér sem forsæt-
isráðherra Ítalíu eftir átakafund
í flokki hans, Lýðræðisflokknum,
þar sem yngri flokksbróðir hans
gerði harða hríð að honum.
Matteo Renzi, sem er borgar-
stjóri í Flórens, náði formanns-
kjöri á síðasta flokksþingi og gaf
skýrt til kynna að hann vildi einnig
hreppa forsætisráðherraembættið.
Það sem réð úrslitum um afsögn-
ina var að Renzi lýsti því yfir að
hann væri hættur að styðja stjórn-
ina, sem fyrir stóð afar tæpt á
ítalska þinginu. Þar sem Renzi er
formaður flokksins var stjórnin í
raun fallin.
Renzi hefur gagnrýnt Letta
fyrir að hafa ekki náð nógu góðum
árangri við að koma efnahagslífi
Ítalíu upp úr djúpri kreppu síðustu
ára.
Atvinnuleysi á Ítalíu hefur ekki
verið jafn mikið í fjörutíu ár og
samdrátturí efnahagslífi hefur
verið 9 prósent.
Renzi gerir sér nú vonir um að
Giorgio Napolitano forseti feli
honum að mynda nýja ríkisstjórn
eftir að Letta hefur afhent honum
uppsögn sína. - gb
Forsætisráðherra Ítalíu lét undan þrýstingi frá formanni eigin flokks:
Renzi vonast til að taka við
ENRICO LETTA Segir af sér sem for-
sætisráðherra í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FYLGST MEÐ Á ÞINGPÖLLUM Einn
áheyrenda kallaði þingmenn morðingja
eftir að frumvarpið hafði verið sam-
þykkt. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
AFGANISTAN Bandaríkjastjórn segist afar ósátt vegna þess að stjórnvöld
í Afganistan slepptu 65 föngum úr haldi.
Fangarnir höfðu setið inni í Bagram-fangelsinu, sem Bandaríkin
höfðu stjórnað þangað til á síðasta ári þegar afgönsk stjórnvöld tóku við.
Bandaríkjamenn segja fangana bera ábyrgð á dauða fjölda manns,
bæði almennra borgara og hermanna, þar á meðal bandarískra her-
manna. Afganir segjast hins vegar ekki hafa getað haldið mönnunum
lengur í fangelsi vegna þess að sönnunargögn vanti. Þá segir Hamid
Karzai, forseti Afganistans, að þessi ákvörðun komi Bandaríkjamönnum
ekkert við. Enn er talið að um 70 fangar séu í Bagram-fangelsinu. - gb
Tugum fanga sleppt vegna skorts á sönnunum:
Bandaríkin ósátt
FANGELSIÐ Í BAGRAM Forseti Afganistans segir málið ekki koma
Bandaríkjamönnum neitt við. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
RÚSSLAND, AP Vladímír Pútín
Rússlandsforseti tók í gær á móti
Abdel-Fatta el Sissi, æðsta yfir-
manni egypska hersins, og lýsti
jafnframt yfir stuðningi við for-
setaframboð hans.
El Sissi er hermálaráðherra
Egyptalands og steypti síðastliðið
sumar Mohammed Morsi Egypta-
landsforseta af stóli.
Pútín sagðist jafnframt vilja
efla tengsl ríkjanna, sem hafa
verið í lágmarki áratugum
saman. - gb
El Sissi í heimsókn í Moskvu:
Pútín styður
framboð Sissis