Fréttablaðið - 14.02.2014, Side 24

Fréttablaðið - 14.02.2014, Side 24
14. febrúar 2014 FÖSTUDAGUR| TÍMAMÓT | 24TÍMAMÓT Ástkær bróðir minn, KRISTINN KATRÍNARSON varð bráðkvaddur á heimili sínu fimmtudaginn 6. febrúar. Hann verður jarðsunginn í dag, föstudag, frá Fríkirkjunni í Reykjavík kl. 13.00. Eiríkur Katrínarson Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, GUÐRÚNAR JÓNU GÍSLADÓTTUR Gullsmára 5, Kópavogi. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki Karitas, Ljóssins og göngudeildar líknardeildar Landspítalans ásamt öllu því góða fólki sem kom að því að hjálpa til við umönnun. Gunnar Guðjónsson Þuríður Gunnarsdóttir Eyjólfur Magnús Kristinsson Gísli Rúnar Gunnarsson Helga Bjarnadóttir Gunnar Örn Gunnarsson Pilar Olivares Villalonga Kolbrún Klara Gunnarsdóttir Sólrún Ása Steinarsdóttir Hákon Fannar Steinarsson Bjarni Berg Gíslason Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, UNNAR HALLDÓRSDÓTTUR frá Kambi í Reykhólasveit. Sérstakar þakkir til starfsfólks dvalarheimilisins Barmahlíðar á Reykhólum fyrir einstaka hlýju og umönnun síðustu árin. Guðbjörg Karlsdóttir Kristján Magnússon Jóhanna Karlsdóttir Karl Bjarnason Sumarliði Karlsson Guðlaug Óskarsdóttir Sigrún Karlsdóttir Hafsteinn Runólfsson Halldór Karlsson G. Sæbjörg Jónsdóttir Björgvin Karlsson Guðrún Bóel Hallgrímsdóttir Kristín Haraldsdóttir ömmubörn og langömmubörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GYÐA EYJÓLFSDÓTTIR sjúkraliði, (f.17.6. 1923) lést á Droplaugarstöðum 1. febrúar. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Hulda Hauksdóttir Helgi Skaftason Stella Hauksdóttir Magnús Viðar Helgason Ása Jórunn Hauksdóttir Haukur Hauksson Jemer Gill Ólafur Haukur Berglind Björgúlfsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓHANN GÍSLASON tannlæknir, Flókagötu 47, Reykjavík, lést á Landakoti laugardaginn 8. febrúar. Útförin fer fram frá Háteigskirkju mánudaginn 17. febrúar kl. 13.00. Magný Gyða Ellertsdóttir Ellert Þór Jóhannsson Sabrina Hussain Guðrún Jóhannsdóttir Matthieu Saillant og barnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts elskulegrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, tengdadóttur, ömmu og langömmu, ELÍNAR SIGURÐARDÓTTUR Ártúni 15, Selfossi. Sérstakar þakkir til lækna, hjúkrunarfólks og allra sem önnuðust hana í gegnum baráttu hennar við krabbamein til langs tíma. . Birgir Jónsson Ari Birgisson Súsanna Valsdóttir Jón Þór Birgisson Kathrina Andersen Aðalheiður Guðmundsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Valentínusardagurinn er haldinn hátíðlegur í dag, á messudegi heilags Valentínusar. Dagurinn er einnig stundum kallaður Valentínsdagur og er haldinn þann 14. febrúar ár hvert. Dagurinn á uppruna sinn í Evrópu á 14. öld og nýta margir daginn til að senda elskhugum sínum gjafir og sér- stök valentínusarkort. Þær hefðir eiga uppruna sinn í Bretlandi, Frakklandi og í Bandaríkjunum en í sumum öðrum löndum er dagurinn helgaður vináttu. Sumir halda upp á daginn hér á landi en elstu heimildir um hann eru úr Morgunblaðinu árið 1958 þar sem stendur: „... hér á landi fer minna fyrir deg- inum. Þó hafa blómaverzlanir í Reykjavík til sölu litla blómvendi, sem hnýttir hafa verið í tilefni dagsins.“ ÞETTA GERÐIST: Á UPPRUNA Í EVRÓPU Á 14. ÖLD Valentínusardagurinn haldinn hátíðlegur DAGUR ÁSTARINNAR Margir gleðja ástina sína með blómum á þessum degi. „Þetta er frábær samningur fyrir okkur og við erum mjög sáttir,“ segir Ari Þorgeir Steinarsson, trommuleik- ari hljómsveitarinnar Strigaskór nr. 42, en sveitin hefur gert útgáfusamning við pólska útgáfufyrirtækið Hell- thrasher Production. Hljómsveitin gaf út plötuna Armadillo í september á síðasta ári en þá eingöngu á rafrænu formi, en pólska útgáfufyrirtækið ætlar að gefa plötuna út á geisladiski. Um er að ræða samning til tveggja ára og mun nýj- asta plata sveitarinnar koma út víðsvegar í heiminum á geisladiski. „Það er ekki komin dagsetning á hvenær platan kemur út en hún kemur líklega út um mitt ár.“ Hún mun að öllum líkindum koma fyrst út í Balkanskagaríkjun- um en þó einnig á Íslandi. „Við erum fyrsta hljómsveitin sem gerir samning við fyrirtækið og er ekki algjörlega 110 prósent metal-hljómsveit þannig að við erum aðeins að róa fyrirtækið,“ segir Ari léttur í lundu. Hann bætir við að sveitin hafi einnig reynt eftir fremsta megni að fá talsvert magn af Prins Póló-súkkulaði með samn- ingnum. „Prins Pólóið hefði fullkomnað samninginn en við er samt sem áður mjög sáttir.“ Strigaskórnir koma fram á tónleikum á Dillon í kvöld ásamt hljómsveitinni Skepnu. Þá er sveitin einnig bókuð á rokktónlistarhátíðina Eistnaflug sem fram fer í sumar. - glp Prins Póló-súkkulaðið hefði fullkomnað útgáfusamninginn Hljómsveitin Strigaskór nr. 42 gerði á dögunum samning við pólska útgáfufyrirtækið Hellthrasher Productions. Platan mun koma út víðs vegar á næstunni. GEFA ÚT ERLENDIS Hljómsveitin Strigaskór nr. 42 hefur gert útgáfusamn- ing við pólskt út gáfufyrirtæki. MYND/EINKASAFN Hluta af húsnæði barna- og ung- lingageðdeildar Landspítalans hefur verið breytt í fjölskylduíbúð, með sjö milljóna króna styrk frá kven- félaginu Hringnum. „Þessi íbúð er kölluð Hringsíbúðin,“ segir Valgerð- ur Einarsdóttir, formaður Hringsins. „Barna- og unglingageðdeild sendi inn styrkbeiðni fyrir einhverju síðan fyrir þessari íbúð. Við svöruðum því játandi. Í fjölskylduíbúðinni verður boðið upp á nýja tegund meðferðar, sem er fjölskyldumeðferð í gegnum leik og aðra jákvæða samveru,“ segir Valgerður. Í íbúðinni rúmast heil fjölskylda. „Barnið sem er veikt fær fjölskylduna sína inn á deildina. Ég held það hafi verið ráðgert að fjölskyldur dvelji viku og viku í íbúðinni. En það er ekki komin reynsla á það. Þessi meðferð er bara rétt að fara af stað og þetta verður örugglega aðlagað eftir þörf- um. Þetta er nýjung í meðferð sem þau eru að fara af stað með. Þetta á að hefjast undir eins. Það eru spenn- andi tímar fram undan. Mjög gott samstarf hjá starfsfólkinu á barna- og unglingageðdeild.“ Arkitektar og smiðir voru fengnir í verkið. „Þeir eru búnir að vera í einhverja mánuði að koma þessu fyrir. Þetta er afskap- lega notaleg og flott lítil íbúð. Hún var formlega afhent 6. febrúar og er tilbúin til notkunar,“ segir Valgerður. Kvenfélag Hringsins var stofnað árið 1904. „Það er sennilega næstelsta góðgerðarfélag landsins. Thorvald- sensfélagið er það elsta. Árið 1942 breyttist markmið Hringsins í það að hér skyldi byggður barnaspítali. Árið 2003 tók hann til starfa í nýrri bygg- ingu, en hann hafði verið í öðru formi inni á Landspítalanum áður. Starfið hefur verið farsælt og gefandi. Það eru duglegar konur í félaginu,“ segir Valgerður, en hún hefur gegnt for- mennsku í samtökunum í fimm ár. Félagið styrkir ýmis líknar- og mannúðarmál ár hvert, sérstaklega í þágu barna. Í forgangi er Barna- spítali Hringsins. „Við styrktum hann um 110 milljónir þar síðast. En allt frá upphafi hefur Hringur- inn stutt barna- og unglingageðdeild með ýmsum hætti. Það hefur verið okkur hjartans mál, alveg frá því að hún var opnuð árið 1971. Á barna- og unglingageðdeild er ekki þörf á lækn- ingatækjum, en við styrkjum meðferð eftir þörfum. Til dæmis styrktum við endurbætur á garði við deildina síð- ast,“ segir Valgerður. Hringurinn selur jólakort, jóla- kaffi, happdrættismiða og fleira til að fjármagna styrkina. „Svo rekum við veitingastofu á Barnaspítala Hrings- ins og höldum jólabasar. Auk þessa starfs fáum við gjafir. Við eigum afskaplega marga og góða velunnara í þjóðfélaginu sem styrkja okkur og styðja,“ segir Valgerður. Ný meðferð í Hringsíbúð Kvenfélagið Hringurinn styrkti barna- og unglingageðdeild Landspítala um sjö milljónir til þess að byggja fj ölskylduíbúð fyrir nýja tegund meðferðar. HRINGSÍBÚÐ Valgerður Einarsdóttir, Ólafur Guðmundsson, yfirlæknir á barna- og unglingageðdeild, og Vilborg Guðnadóttir hjúkrunardeildar- stjóri. MYND/ÞORKELL ÞORKELSSON.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.