Fréttablaðið - 14.02.2014, Side 26
FÓLK|HELGIN
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Kolbeinn
Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512-5447 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
SKEMMTILEG KEPPNI Brettakeppnin á Ráðhústorgi er einn af hápunktum Éljagangs á Akureyri. MYND/ÚR EINKASAFNI
HUNDASLEÐAR
Gestum Éljagangs
gefst kostur á að prófa
hundasleða.
MYND/ÚR EINKASAFNI
Vetrar- og útivistarhátíðin Élja-gangur hófst í gær á Akureyri og stendur fram á sunnudag.
Þetta er fjórða árið í röð sem hátíðin er
haldin en þar er boðið upp á fjölbreytta
og skemmtilega dagskrá í tengslum við
útivist og vetrarsport fyrir alla aldurs-
hópa. „Allt áhugafólk um útivist getur
fundið eitthvað við sitt hæfi á Éljagangi
enda er þetta ein stærsta hátíð sinnar
tegundar hérlendis. Óhætt er að segja
að hvergi sé að finna eins mikla fjöl-
breytni í útivist og afþreyingu að vetrar-
lagi og verður á Akureyri um helgina,“
segir Dagný Reykjalín, framkvæmda-
stjóri og einn af skipuleggjendum há-
tíðarinnar.
Margir ókeypis viðburðir eru á dag-
skrá, til dæmis brettakeppni á Ráðhús-
torgi, snjóbrettamót í Hlíðarfjalli og
vélsleðaprjónkeppni. Sleðaspyrnan í
Hlíðarfjalli er líka mjög vinsæl að sögn
Dagnýjar en hún fer fram í flóðlýsingu
eftir að skíðasvæðinu hefur verið lokað.
„Snjókarlinn sem hefur verið karakter
vetrarbæjarins Akureyrar mun núna
rísa á túninu fyrir neðan Samkomuhúsið
og verður stærri en nokkru sinni fyrr.“
Auk þess bjóða ferðaþjónustu-
aðilar frá Norðurlandi upp á fjölmargar
skemmtilegar og spennandi ferðir og
nefnir Dagný þar meðal annars snjó-
sleða- og hestaferðir, snjóþrúgugöngu,
troðaraferðir og þyrluskíðaferðir.
Ýmis námskeið og kynningar verða
auk þess í boði um helgina og má þar
nefna skíðanámskeið fyrir fatlaða,
gönguskíðanámskeið og sleðahunda-
kynningu.
Nóg af snjó er á svæðinu og veður-
spáin er góð fyrir helgina að sögn Dag-
nýjar. „Þessi hátíð hefur verið vel sótt
undanfarin ár og við búumst við miklum
fjölda í bænum um helgina. Gestir
hátíðarinnar eiga að minnsta kosti von
á góðri skemmtun í fallegu vetrarveðri.
Það verður kalt en þá er um að gera að
vera bara vel klæddur.“
Að skipulagi hátíðarinnar koma Akur-
eyrarstofa, Hlíðarfjall, Vetraríþróttamið-
stöð Íslands, KKA akstursíþróttafélag
og Blek auglýsingastofa.
Nánari upplýsingar um Éljagang má
finna á www.eljagangur.is en á vefnum
verður bein útsending frá Ráðhústorgi
og þeim viðburðum sem verða haldnir
þar.
FJÖLBREYTT ÚTIVIST
OG AFÞREYING
VETRARHÁTÍÐ Akureyri verður vettvangur mikillar vetrar- og útivistarhátíðar
um helgina. Fjöldi ókeypis viðburða er í boði fyrir alla aldurshópa.
FJÖLSKYLDU-
SKEMMTUN „Allt
áhugafólk um útivist
getur fundið eitthvað við
sitt hæfi á Éljagangi,“
segir Dagný Reykjalín,
einn af skipuleggjendum
hátíðarinnar.
MYND/AUÐUNN
Verið velkomin!
Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - www.patti.is
Opið virka daga kl. 10-18
laugard. 11-16
Basel
Torino
SÓFAR
Í MIKLU ÚRVALI
20% afsláttur
af öllum sófum / sófasettum
í völdum áklæðum
Sófinn þinn útfærður eftir þínum óskum
Ótrúlegt
úrval íbúða til sölu
eða leigu!
STÆRSTI
HÚSNÆÐISVEFUR
LANDSINS