Fréttablaðið - 14.02.2014, Síða 33

Fréttablaðið - 14.02.2014, Síða 33
FRÉTTABLAÐIÐ LÍFIÐ 14. FEBRÚAR 2014 • 7 daginn er ég hjá húðlækninum og ég spyr hvort hann eigi bótox, og hann segir já, og ég segi: Má ég fá? Og hann segir: Já, ekkert mál, og sprautar mig á milli augnanna. Það var fáránlega óþægilegt. Það var eins og einhver héldi með þumli á milli augnanna á mér – ég gat ekki hreyft mig og fékk dúndrandi haus- verk í 2 vikur. Ég held að enginn hafi tekið eftir þessu en mér leið eins og ósýnilegur maður héldi um hausinn á mér. Ég var mjög fegin þegar þetta fór. Og þarna hugsaði ég líka: Kristín, hvað ertu að gera? Nú hefurðu gengið of langt!“ Trú á framfarir eða afturför Nú eruð þið Gísli Marteinn góðir vinir en á öndverðum meiði í póli- tík. Eru það bara hjólreiðarnar sem draga ykkur saman? Kristín hlær og segir pólitík- ina í borginni vera miklu meira en vinstri eða hægri pólitík. „Auð- vitað má ræða hvort útsvarið á að vera í botni eða 0,5% undir því, en hægri og vinstri pólitík er ekki áberandi í borginni. Þar er það annaðhvort trú á framfarir eða afturför og við Gísli trúum bæði á framfarir. Við erum með suma borgarfulltrúa og verðandi fulltrúa Sjálfstæðisflokksins sem halda því fram að fólk hafi valið einka- bílinn, og það eigi að standa fast á þeim rétti sínum sem er einka- bíllinn. Þetta sama fólk ætlar ekk- ert að borga þennan bíl fyrir þau. Síðan vilja þau byggja hús mjög langt í burtu fyrir þetta sama fólk, svo það geti keyrt heim og keyrt í vinnu. Þetta er svo galið, að þetta sé einhver draumur. Við erum með tiltölulega veikan gjaldmiðil, bens- ín hefur aldrei verið dýrara og að halda þessu uppi sem einhverj- um lífsstíl sem getur hentað öllum er nánast hrokafullt – og til þess að gera þennan lífsstíl mögulegan ætla þau að díla við aukna umferð með því að setja tugi milljarða í mislæg gatnamót. Getum við ekki gert betur en þetta?“ Kristín vill að Reykvíkingar njóti borgarinnar. „Þú nýtur ekki borgarinnar með því að eyða öllum peningunum í húsaleigu og bíla. Auðvitað þurfa sumir að eiga bíl, en ef allar fjölskyldur þurfa á tveimur bílum að halda þá þarf borgin að líta í eigin barm, því þá erum það við sem erum að bregð- ast.“ Þrátt fyrir ungan aldur hefur Kristín gert ýmislegt. 23 ára var hún orðin viðskiptastjóri á auglýs- ingastofu og þegar hún hvarf inn í pólitíkina hafði hún lokið BS-gráðu í umhverfis- og byggingarverk- fræði og var í mastersnámi í sam- gönguverkfræði. „Ég var bara að vinna meist- araverkefnið mitt þegar ég ákvað að henda mér út í djúpu laugina og hefja feril í pólitík. Ég tek einn og einn áfanga með og ég ætla að klára þetta. Maður fer í námið til að fá draumavinnuna, en ég upp- lifði að vera að „beila“ á drauma- vinnunni til að klára námið. Þetta var erfið ákvörðun, en ég ætla ekki að verða pólitíkusinn sem kláraði ekki prófið.“ „Þannig að ég skokkaði þarna inn, þekkti engan, setti mig á mæl- endaskrá, fór upp í pontu og bilaðist. Og sagði þeim að þeir gætu nú bara verið ánægðir með að fólk væri ekki að fatta hversu slæmt ástandið væri, því þá væru menn að kveikja í strætis- vögnum.“ Kristín Soffía á unglingsárunum. Kristín Soffía ólst upp í Reykjavík. Hér ásamt Gesti, sambýlismanni sínum.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.