Fréttablaðið - 14.02.2014, Síða 50
14. febrúar 2014 FÖSTUDAGUR| LÍFIÐ | 34
14. FEBRÚAR 2014
Tónleikar
21.00 Á tónleikunum í Mengi, Óðins-
götu 2, flytur Ólafur Björn Ólafsson lög
af óútkominni plötu með aðstoð góðra
gesta. Aðgangseyrir er 2.000 kr.
12.00 Á hádegistónleikum í Háteigs-
kirkju munu Þórunn Elín Pétursdóttir
sópran og Anna Rún Atladóttir píanó-
leikari flytja nokkur sönglög Gustavs
Mahlers úr Des Knaben Wunderhorn.
Hádegistónleikarnir í Háteigskirkju eru
haldnir alla föstudag á milli 12.00 og
12.30 þar sem flutt er fjölbreytt efnis-
skrá við allra hæfi. Almennt miðaverð
er 1.000 krónur.
22.00 Kveðjutónleikar hljómsveitar-
innar The Vintage Caravan á Græna
hattinum á Akureyri áður en hún flyst
til Danmerkur. Miðaverð 1.500 krónur.
Leiklist
20.00 Frumsýning á Lísu og Lísu hjá
Leikfélagi Akureyrar. Sunna Borg og
Saga Geirdal Jónsdóttir leika Lísu og
Lísu. Sýnt í Rýminu, Akureyri. Miðaverð
4.900 krónur.
Hátíðir
12.00 Hörmungardagar á Hólmavík.
Allan daginn og alla helgina. Dagskráin
hefst á hádegi í dag með sviðsettum
flóttamannabúðum í Grunnskólanum í
Hólmavík.
Málþing
12.00 Hátíðarmálþing Orators, Eru
mannréttindi til? verður í stofu L101 í
Lögbergi í Háskóla Íslands.
Uppistand
22.00 Þorsteinn Guðmundsson og
Ólafía Hrönn Jónsdóttir flytja gaman-
mál og gæðamúsík í Stúdentakjallar-
anum á Valentínusardaginn.
EKKI
MISSA
AF
Glæný og ljúffeng konudagsostakaka
bíður þín í næstu verslun
FÖSTUDAGUR
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
„Ég er að fara á Hörmungardaga á Hólmavík sem
hefjast í dag. Þar held ég sjálfsvorkunnarnámskeið
og kenni fólki að vorkenna sér með tóndæmum
og glærum. Meðal annars verður kennt að væla,
kenna öðrum um ófarir sínar, og vera fúll og bitur.
Það loðir svolítið við trúbadora eins og mig að allt
sem maður syngur er svolítið væl og sjálfhverfa. Ég
er rosalega spenntur fyrir þessari hátíð. Þegar fólk
veltir sér upp úr einhverju fúlu er það í raun frábært
tækifæri til að sjá hamingjuna. Þá gerir maður sér
grein fyrir því hvað biturðin er fáránleg. Góð leið
til að setja hlutina í samhengi. Rétt áður en nám-
skeiðið mitt hefst verður áhugaverð morðgáta í
Sauðfjársetrinu sem ég vona að ég komist á.“ Svavar
Knútur Kristinsson tónlistarmaður.
HVAÐ ER PLANIÐ?
SVAVAR KNÚTUR
KRISTINSSON
KENNIR
SJÁLFSVORKUNN
MEÐ TÓNDÆMUM
Óskasteinar
Borgarleikhúsið, kl. 20.00
★★★★ ★
„Óskasteinar er mjög fín
leikhússkemmtun og góður sam-
félagsspegill. “
- Eva Guðrún Gunnbjörnsdóttir