Fréttablaðið - 18.03.2014, Blaðsíða 8
18. mars 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR |
Enn standa yfir viðræður um leið-
ir til að leiða í lög á Evrópska efna-
hagssvæðinu reglur Evrópusam-
bandsins (ESB) um sameiginlegt
eftirlit með fjármálastofnunum.
Sérfræðingar í Evrópurétti telja
hömlur í vegi þess að hér verði inn-
leidd lög og reglugerðir ESB, þar
sem framselja þurfi ríkisvald til
alþjóðlegra stofnana, stærri ógn
við EES-samninginn en drátt á að
hér verði gjaldeyrishöft afnumin
og frjálsum fjármagnsflutningum
komið á aftur.
Ríkisstjórnin kynnti í byrjun síð-
ustu viku Evrópustefnu sem byggir
á efldri hagsmunagæslu á vettvangi
EES-samningsins og þar sem lögð
er áhersla á skilvirka framkvæmd
samningsins. Hluti stefnunnar er að
hraða upptöku gerða í EES-samn-
inginn og rétta af innleiðingarhalla
löggjafar eigi síðar en á fyrri hluta
næsta árs. Ísland rekur sem stendur
lestina í EES-samstarfinu í innleið-
ingu laga og reglna.
Margrét Einarsdóttir, lektor
við Háskólann í Reykjavík, telur
hömlur á fjármagnsflutninga lík-
ast til enn falla innan ramma dóms
EFTA-dómstólsins frá því í árslok
2011, þar sem höftin voru talin sam-
rýmast EES-samningnum. Þegar
dómur féll hafi enn verið taldar
vera uppfylltar efnislegar ástæður
til að grípa hér til
verndarráðstaf-
ana í samræmi
við fjórðu máls-
grein 43. greinar
EES-samnings-
ins. „Ég held það
sé alveg ljóst að
gjaldeyrishöft
standast seint
ákvæði EES -
samningsins að eilífu, en hversu
lengi þau standast treysti ég mér
ekki til að spá fyrir um.“ Höftin séu
því ekki mánaðaspursmál, en til
lengri tíma litið þurfi að vera áætl-
un um annað.
Að mati Margrétar er meira
áhyggjuefni að ekki hafi enn verið
gerðar hér nauðsynlegar breytingar
sem þurfi til að hægt sé að innleiða
ákveðna afleidda löggjöf, reglu-
gerðir og tilskipanir. „Það þarf að
breyta stjórnarskránni og setja inn
ákvæði um valdaframsal til alþjóð-
legra stofnana til þess að hægt sé
að innleiða ákvæði um bankaeftir-
lit á sviði fjármálaþjónustu. Annars
væri ekki hægt að útiloka að ákveð-
inn hluti samningsins yrði bara sett-
ur í frost hjá okkur.“ Erfiðara sé að
setja því ákveðinn tímaramma hve-
nær þurfi að vera búið að gera brag-
arbót í þessum efnum. „En samn-
ingurinn virkar ekki ef við hættum
að geta innleitt afleidda löggjöf á
einhverju sviði hans.“
Margrét bendir á að þótt fram-
kvæmdastjórn ESB hafi enn ekki
gripið til aðgerða vegna þessa, sé
það bara pólitísk
spurning á vett-
vangi ESB hvort
til þess kunni að
koma. „Við þurf-
um bara að laga
þetta,“ segir hún.
Eigi að byggja á
EES-samningn-
um þurfi að vera
hægt að taka hér
upp þá löggjöf sem til sé ætlast á
grundvelli hans.
Birgir Ármannsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokks og formaður utan-
ríkismálanefndar Alþingis, segir
að eins og er sé ekkert mál á borði
þingsins þar sem um sé að ræða
núning eða árekstur vegna upptöku
einstakra Evrópureglna.
„Hins vegar hafa menn innan
stjórnkerfisins verið lengi með
þetta fjármálaeftirlitsmál í fanginu
og raunar fleiri mál í pípunum sem
vitað er að geti verið vandamál. En
ég myndi ekki segja að útséð sé
um að lausn finnist í þeim efnum,“
segir hann og telur því mögulegt
að í samstarfi við nágrannaþjóð-
ir okkar finnist lausn sem geti
verið samrýmanleg íslensku og
eftir atvikum líka norsku stjórnar-
skránni, því þar sé líka um árekst-
ur að ræða.
„Hitt er annað mál að þekkt eru
nokkur dæmi frá undanförnum
árum þar sem menn hafa verið á
grensunni í þessum málum og það
hefur ýtt undir umræðu um að eðli-
legt væri að gera svipaða stjórnar-
skrárbreytingu hér og hefur verið
gerð í flestum nágrannalöndunum,
þar sem um væri að ræða heim-
ild, með sérstakri aðferð, aukn-
um meirihluta í þinginu, þjóðar-
atkvæðagreiðslu eða einhverju
slíku, til þess að framselja afmark-
aða þætti ríkisvalds á takmörkuðu
sviði til alþjóðlegra stofnana,“ segir
Birgir. Þessi umræða segir hann
að eigi sér nú stað innan stjórnar-
skrárnefndarinnar sem forsætis-
ráðherra hafi skipað í haust. „Þetta
er eitt af þeim málum sem þar er
hvað efst á blaði.“
Valdaframsalsheimild í stjórnar-
skrá myndi hins vegar ekki endi-
lega leysa vandkvæði tengd evr-
ópsku fjármálaeftirliti. „Ekki eins
og Evrópusambandið setur þetta
upp vegna þess að þar er um að
ræða framsal til stofnunar Evrópu-
sambandsins, en ekki EES-stofnun-
ar.“ Birgir segir að menn reyni hins
vegar áfram að vinna sig áfram í
átt að lausnum.
Bjarni Benediktsson fjármála-
ráðherra hefur áður sagst á móti
því að breyta stjórnarskrá til að
rýma fyrir fjármálaeftirliti ESB.
„Ég tel fráleitt að við mundum
hrökkva til og breyta stjórnar-
skránni út af þessari gerð ESB,“
sagði hann í viðtali við Frétta-
blaðið í maí 2012. Í umræðum á
Alþingi um utanríkis- og alþjóða-
mál 14. febrúar í fyrra sagði hann
líka of litla umræðu hafa farið
fram um breytingar sem orðið
hefðu á ESB. Hápólitískt væri
hvernig ESB birtist í „síauknum
mæli“ sem pólitískt bandalag
sem stefndi í átt að stórauknum
samruna. Þó taldi hann of djúpt í
árinni tekið að óttast að ESB gæti
útilokað Ísland frá þátttöku í EES
vegna þess að hér hefðu ekki verið
teknar upp reglur um fjármálaeft-
irlit. „Fyrst og fremst vegna þess
að grundvöllur EES-samningsins
er reistur á tveggja stoða kerfi,“
sagði hann þá.
BIRGIR
ÁRMANNSSON
MARGRÉT
EINARSDÓTTIR
Skugga ber á framkvæmd EES
Ísland rekur lestina í innleiðingu EES-löggjafar. Fjármagnsflutningar eru ekki frjálsir. Samevrópskt eftirlit með fjármálastofnunum hefur
ekki verið tekið upp. Fjármálaráðherra er andsnúinn eftirlitinu. Þá rúmast það ef til vill ekki innan fyrirhugaðrar stjórnarskrárbreytingar.
Morten Løkkegaard, Evrópuþingmaður danska hægriflokksins
Venstre, bíður svara frá framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins um áhrif gjaldeyrishaftanna íslensku á samninginn
um Evrópska efnahagssvæðið (EES). 19. febrúar síðastliðinn
spurði hann hvort framkvæmdastjórnin hygðist gera breyt-
ingar á samningnum vegna brota Íslands á ákvæðinu um
frjálst flæði fjármagns. Hann velti því einnig upp hvort
framkvæmdastjórnin teldi sig gæta hagsmuna fyrirtækja
innan Evrópusambandsins sem hefðu nú verið föst með
fé innan hafta á Íslandi í hálfan áratug. Svara við fyrir-
spurninni er að vænta upp úr næstu mánaðamótum.
Spyr um höft og áhrif á EES-samninginn
Óli Kristján
Ármannsson
olikr@frettabladid.is
ASKÝRING | 8
FRAMTÍÐ EES-SAMNINGSINS ER NOKKURRI ÓVISSU HÁÐ
ÞAÐ GETA EKKI ALLIR
VERIÐ GORDJÖSS
Það er mikið í mig lagt
Þú veist það um leið og þú sérð hann. Það er eitthvað einstakt við Range Rover Evoque. Hönnunin grípur þig
samstundis. Útlitið er loforð um ævintýri, þægindi og óbeislaða upplifun. Búnaðurinn er á heimsmælikvarða,
hvort sem um ræðir aksturseiginleika, fjöðrunarbúnað, drifkerfi eða afl.
Reynsluaktu Evoque og leyfðu honum að heilla þig. Hafðu samband í síma 525 8000 eða komdu í heimsókn.
www.landrover.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
11
4
5
*M
ið
að
v
ið
u
pp
ge
fn
ar
v
ið
m
ið
un
ar
tö
lu
r
fr
am
le
ið
an
da
u
m
e
ld
sn
ey
tis
no
tk
un
í
bl
ön
du
ðu
m
a
ks
tr
i.
RANGE ROVER EVOQUE – VERÐ FRÁ 8.770.000 KR.
4x4 - TD4 2,2 dísil, 9 þrepa sjálfskipting. Eyðsla 6,5 l/100 km.*
BL Sævarhöfða 2, sími 525 8000