Fréttablaðið - 18.03.2014, Blaðsíða 22
KYNNING − AUGLÝSINGSvanurinn ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 20144
ÁNÆGÐ MEÐ SVANINN
Svanurinn er opinbert um-
hverfismerki Norðurlandanna.
Strangar kröfur tryggja að
Svansmerkt vara er betri fyrir
umhverfið og heilsuna. Gerð
var könnun er varðar Svaninn á
síðasta ári. Þegar þátttakendum
var sýnt Svansmerkið þá þekktu
77% merkið í sjón. Frá árinu 2008
hefur þetta hlutfall breyst mikið
en þá sögðust aðeins 23% þekkja
merkið. Þegar þátttakendur voru
beðnir um að nefna fyrsta um-
hverfismerki sem þeim dytti í hug
þá nefndu 42% Svaninn, aðeins
2% nefndu önnur merki og aðrir
gátu ekki nefnt neitt merki. 43%
aðspurðra sögðust jákvæðari í
garð þeirra fyrirtækja sem kaupa
umhverfisvottaðar vörur og
þjónustu í sínum rekstri. Þegar
þátttakendur voru spurðir hvort
þeir treystu yfirlýsingum um um-
hverfiságæti vöru ef varan er með
Svaninn svöruðu 41% því játandi.
Það er töluvert hærra hlutfall en
á hinum Norðurlöndunum en þar
er meðaltalið 21%.
Könnunin var framkvæmd af
MMR á Íslandi. Þátttakendur voru
á aldrinum 15-74 ára og fengust
svör frá 598 á Íslandi.
Mörg íslensk fyrirtæki eru nú
Svansvottuð og Svansmerktar
vörur má nú finna í auknum mæli
í verslunum.
SVANSMERKT FYRIR BÖRN
Svansmerktar vörur eru sjálfsagt val fyrir foreldra því sett eru
sérstaklega ströng viðmið á vörur sem ætlaðar eru börnum,
svo sem bleiur, leikföng, fatnað og hreinlætisvörur.
Börn eru viðkvæmari fyrir áhrifum ýmissa óæskilegra efna
sem notuð eru við framleiðslu og því er notkun þeirra lág-
mörkuð. Gerðar eru mjög strangar kröfur um hráefni í Svans-
merktum bleium og ekki má nota krabbameinsvaldandi og
hormónatruflandi eldvarnarefni á leikföng. Fatnaður skal vera
úr lífrænt ræktuðum eða sambærilegum trefjum og Svans-
merkt sólarvörn, tannkrem og sápa, sem er ætluð börnum, má
ekki innihalda ilmefni.
Svansmerktar vörur eru því með þeim öruggustu í sínum
vöruflokki.
Heimild: Umhverfisstofnun (ust.is)
LEIKIÐ VIÐ SVANHILDI
Eitt af því skemmtilegasta sem
mörg börn vita er að lita og
föndra. Í þessu skemmtilega
Svanshefti gefst börnum einmitt
tækifæri til að leysa ýmis verkefni
sem innihalda fróðleik, þrautir,
litasíður, spil og krossgátur, og
fræðast um umhverfið með frú
Svanhildi. Upplagt er að prenta
þetta fallega hefti út, skoða með
börnunum og fræða um um-
hverfisvernd og náttúruna.
http://www.svanemerket.no/
PageFiles/1030/Svanhild%20
hefte_web.pdf
UM
HVE
RFISMERKI
Prentsmiðja
141 912
VIÐ ERUM
ORÐIN GRÆN
Góður árangur í umhverfismálum er forgangsmál hjá prentsmiðjunni Litrófi og því til staðfestingar
hefur fyrirtækið fengið opinbera vottun Svansins.
Kröfur Svansins fyrir prentsmiðjur eru mjög strangar, sérstaklega hvað varðar efnanotkun.
Við leggjum einnig áherslu á vali á umhverfisvænum eða endurunnum pappír, að magn afskurðar sé
haldið í lágmarki og öll önnur svið starfseminnar falli að kröfum um umhverfismál vottunarinnar.
Svansmerkið er ánægjulegur vitnisburður um samtakamátt í umhverfismálum Litrófs og augljós
ávinningur fyrir viðskiptavini í innkaupum á vistvænum forsendum.
Komdu í lið með okkur.
Vatnagörðum 14 | 104 Reykjavík | Sími 563 6000 | litrof.is