Fréttablaðið - 17.04.2014, Blaðsíða 18
17. apríl 2014 FIMMTUDAGUR| HELGIN | 18
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
Hvar? Týsgallerí og Kunstschlager
Hver? Heimir Björgúlfsson
Hvenær? Klukkan 17.00 í dag
og 20.00 á laugardag 19. apríl
Hversu mikið? Ókeypis
PÁSKAR
EITTHVAÐ
FYRIR ALLA
17. apríl 2014 FIMMTUDAGUR
Hráslaginn bítur inn að beini
þar sem við Heimir Björgúlfsson
myndlistarmaður stöndum fyrir
utan Týsgallerí og bíðum eftir að
opnað verði fyrir okkur. „Þetta er
dálítið ólíkt því sem ég á að venj-
ast,“ viðurkennir Heimir sem býr
í Los Angeles, „ég var búinn að
gleyma hvað veðurfarið breytist
ört hér heima en í gær fékk ég
sýnis horn af flestum tegundum.“
Heimir er að opna tvær einka-
sýningar nú um helgina, í Týsgall-
eríi og Kunstchlager. Titlarnir eru
stórir, Vænn skammtur af svívirð-
ingum, það hálfa væri nóg og Þrjú
tonn af sandi í tveimur hlutum.
„Maður verður nú að hafa íslensk-
an brag á þessu. Hvort tveggja er
línur úr textum og svo segi ég „það
hálfa væri nóg“ í tíma og ótíma,“
útskýrir listamaðurinn brosandi.
Skrá yfir sýningar Heimis er
upp á nokkrar blaðsíður og verk
hans eru víða. „Ég er alltaf að,“
viðurkennir hann. „Vinnan kemur
samt dálítið í törnum þannig að
sum tímabil er ég meira upptekinn
en önnur og það getur orðið aðeins
of mikið. En þetta er það sem ég
vil gera og verð þá líka að sinna
því. Sel vel? Já, en það er upp og
niður líka. Þetta er eins og rússí-
bani.“
Hann kveðst hafa lært í Amst-
erdam og búið þar eftir námið en
farið í vinnustofuferð árið 2005
til Los Angeles. „Ég ætlaði bara
að vera í þrjá mánuði en ílengdist,
þannig að þar hef ég búið frá 2006
og á þar konu, mexíkósk/amer-
íska. Hún er ekki með mér núna
en hefur komið hingað tvisvar. Við
giftum okkur hér á landi.“
Þegar við komum inn í gall-
eríið fer Heimir að taka utan af
verkunum sínum. Á sumum þeirra
eru framandlegir fuglar. „Þegar
ég var krakki ætlaði ég að verða
fuglafræðingur. Var dálítið rugl-
aður með það,“ segir hann og sýnir
fleiri myndir. „Ég er alltaf að leita
að einhverju í umhverfinu sem
vekur forvitni, að það veki sögur –
eða möguleika á sögum. Umhverf-
ið er auðvitað alltaf upplifun hvers
og eins. Hér kemur svo titilverkið
á sýningunni, Vænn skammtur af
svívirðingum, það hálfa væri nóg!“
Vil helst að verkin veki sögur
Myndlistarmaðurinn Heimir Björgúlfsson opnar tvær sýningar í höfuðborginni nú um páskahelgina. Aðra í
Týsgalleríi á Týsgötu 3 síðdegis í dag. Hina á laugardagskvöldið í Kunstchlager á Rauðarárstíg 1.
Í TÝSGALLERÍI „Það er alltaf eitthvað að gerast, eitthvað sem stangast á í grunninn,“ segir Heimir. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Upplestur
Valdir sálmar
Agnes Sigurðardóttir, biskup Íslands,
Kristbjörg Kjeld leikkona og Árni
Harðarson skólastjóri eru á meðal
lesara valinna passíusálma í Kópavogs-
kirkju á morgun, föstudaginn langa á
milli klukkan 13 og 16.
Lenka Mátéova, kantor Kópavogs-
kirkju, leikur á orgel og leiðir
áheyrendur í gegnum sálmalögin. Hún
fær til liðs við sig kór Kópavogskirkju
og Ólafíu Jensdóttur söngvara.
Hugleiðsla
Góðgerðarjóga
Fjölskyldujóga verður í Hofi á Akureyri
klukkan 14 á morgun, föstudaginn
langa, og jóga, hugleiðsla og gong-
slökun klukkan 15.30. Nokkrir norð-
lenskir jógakennarar halda utan um
stundina og leiða þátttakendur í að
liðka líkamann, fara í leiki og slaka á
í lokin.
Þetta er fyrsti góðgerðarviðburður
styrktarfélagsins Jógahjartans.
Útvarpið
Ragnheiður
á Rás 1
Óperan Ragnheiður eftir Gunnar
Þórðarson verður á dagskrá Rásar 1 í
dag og hefst flutningurinn klukkan 15.
Þetta er hin magnaða ástar- og örlaga-
saga sem hefur verið á fjölum Íslensku
óperunnar undanfarnar vikur með Þóru
Einarsdóttur, Elmar Gilbertsson og Viðar
Gunnarsson í aðalhlutverkum.
• Hvítt súkkulaði er tæknilega séð ekki súkkulaði því það
inniheldur hvorki kakóbaunir né kakóvökva.
• Það þarf um 400 kakóbaunir til að búa til 450 grömm af
súkkulaði.
• Sá sem fann upp súkkulaðibitakökuna seldi Nestlé réttinn
með því skilyrði að hann fengi ársbirgðir af súkkulaði.
• M&M-nammið var búið til fyrst árið 1941 fyrir hermenn svo
þeir gætu átt súkkulaði án þess að það bráðnaði.
• Á hverri sekúndu borða Bandaríkjamenn um 45 kíló af
súkkulaði.
• Stærsta súkkulaðistykki í heimi vó um 5.792 kíló.
• Að borða dökkt súkkulaði á hverjum degi minnkar líkurnar á
hjartasjúkdómum um þriðjung.
Skemmtilegar staðreyndir um súkkulaði
Þessa dagana leikur súkkulaði stórt hlutverk í mataræði landans.
Alexía Björg Jóhannesdóttir leikkona
Málað og farið í pottinn
Ég ætla að eyða hluta af páskunum á Kletti í Borgarfirði þar sem fjölskyldan
á bústað. Þar verður unnið á fullu við að mála, sparsla og leggja lokahönd á
gestahús við bústaðinn. Svo verður án efa borðað nóg af góðum mat og farið
oft í pottinn, sem er gamalt fiskeldiskar. Á páskadag er svo alltaf
ratleikur í skóginum í kringum Klett þar sem börnin leita að páska-
eggjunum sínum.
Elín Hirst alþingismaður
Sér skíðalöndin
í hillingum
Ég ætla að nota páskana til
að fara á skíði. Ég hef mikla
ánægju af gönguskíðamennsku
og sé Bláfjöll, Skálafell og
Heiðmörk alveg í hillingum.
Guðrún Dís Emilsdóttir
dagskrárgerðarkona
Góðar stundir á
Húsavík
Ég er á leiðinni til Húsavíkur þar
sem ég ætla að njóta þess að vera
í fríi með fjölskyldunni heima hjá
tengdaforeldrum mínum.
Eyþór Ingi söngvari
Glysrokk og páskaegg
Ég spila glysrokk um páskana,
ásamt fríðu föruneyti, með
Skonrokki í Hofi föstudaginn
langa og Hörpu daginn eftir.
Síðan er á áætlun að borða vel
af páskaeggi á páskadag.