Fréttablaðið - 17.04.2014, Síða 26

Fréttablaðið - 17.04.2014, Síða 26
FÓLK|TÍSKA FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug- lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs- ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Kolbeinn Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512-5447 Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Hvenær kviknaði tískuáhuginn? Ég byrjaði fyrir alvöru að spá í tísku þegar ég varð sextán ára; í upp- hafi menntaskólaáranna. Hvernig myndirðu lýsa eigin stíl? Ég hef minn eigin stíl og hef að markmiði að líta ekki út eins og allir aðrir. Hvaðan hefurðu tískuvitið? Ég er dugleg að skoða tískublöð og nota Pinterest mikið. Áttu þér uppáhaldstísku verslanir? Já, Topshop og Spútnik eru í mestu dálæti. Eyðir þú miklu í fatakaup? Já, ég eyði eiginlega mestu eingöngu í föt. Hver er þinn helsti veikleiki þegar kemur að tísku? Ég er svo óeðli- lega lappalöng að það er varla mögulegt að finna á mig nógu síðar gallabuxur. Hvað yrði fyrir valinu ef þú mættir kaupa þér eina nýja flík í dag? Fallegur kjóll úr Spútnik. Hvaða litur klæðir þig best? Ég hugsa að dökkgrænn fari mér best. Áttu þér uppáhaldsflík? Já, ég held mikið upp á gamlan jakka frá ömmu. Hverju klæðistu við sparileg til- efni? Þá fer ég í fallegan kjól eða sæta skyrtu. Ertu hrifin af skartgripum? Mér þykir óþolandi að vera með armbönd en í lagi að vera með hringi. Hálsmen eru hins vegar ómissandi og helst vil ég hafa þau í stærri kantinum. Hvaða ilmvatn notar þú? Ég nota aðallega ilmvötn frá Beyoncé og þykir þau langbest. Hvaða einn hlutur er ómissandi í snyrtibuddunni? Varalitur. Ég get ekki án hans verið. Hvað er það besta við sumar- tískuna? Frelsið til að leika sér með litasamsetningar og skærir litir sem gera allt svo sumarlegt. Áttu þér tískufyrirmynd? Nei. Ég er bara ég sjálf. Tíska fyrir mér er föt sem mér sjálfri þykja flott; burtséð frá því hvað öðrum finnst. Hvaða söngkona á heimsvísu er best klædd að þínum dómi? Breska söngkonan Adele. Hún reynir hvorki að sýna neitt né vera önnur en hún er. Adele er einfaldlega algjört æði og í fárán- lega flottum fötum. Hvers vegna ákvaðstu að læra hár- greiðslu? Ég hef lengi haft gaman af því að fikta í hári og langaði að prófa að nota listræna hæfileika mína í einhverju öðru en söng, teikningum og dansi. Lumarðu á góðu fegrunarráði fyrir hárið? Mikilvægast er að halda hárinu heilbrigðu og sem mest náttúrulegu. Hár er alltaf lang- fallegast eins og það er. Kjóll eða buxur? Buxur. Þær eru einfaldlega þægilegastar. Einlitt eða munstrað? Ein- litt. Munstrað getur orðið of mikið þótt það sé líka stundum flott. Háir hælar eða flatbotna skór? Flatbotna. Þeir fara betur með fæturna og tryggja þeim meiri vellíðan. ■ thordis@365.is ER BARA ÉG SJÁLF TÍSKUDÍVA Sara Pétursdóttir kom, sá og sigraði Söngkeppni framhalds- skólanna. Hún lærir hárgreiðslu í Tækniskólanum og hefur einstakan stíl. SÖNGFUGL Sara Pétursdóttir fangaði hjörtu áheyrenda þegar hún sigraði Söngvakeppni framhaldsskólanna með undurfallegri ballöðu Bobs Dylan, To make you feel my love. MYND/VALLI ADELE www.fi.is Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S: 568 2533 | www.fi.is FERÐAFÉLAG ÍSLANDS Ferðafélag Íslands stendur fyrir Bakskóla með léttum gönguferðum sem hefjast 6. maí. Léttar gönguferðir með styrkjandi stöðuæfingum 3 í viku auk heimaverkefna og þegar líður á verk- efnið verður farið í léttar fjallgöngur. Bak- og hnémeiðsli eru hvimleiðir kvillar sem hrjáir stóran hóp fólks. Gönguferðir og styrkjandi æfingar geta í mörgum tilfellum gert gæfumuninn og komið fólki á beinu brautina á ný. Umsjónarmenn með gönguferðum í Bakskólanum eru íþróttakennarar og sjúkraþjálfarar. Sérstakur kynningarfundur fyrir bakskóla FÍ verður haldinn þriðjudaginn 30. apríl kl. 20 í sal FÍ Mörkinni. Ekki vera í baklás Skráðu þig inn – drífðu þig út Sjá nánar á www.fi.is Nánari upplýsingar og skráning er í síma 568 2533 eða í netpóst fi@fi.is Bakskóli Ferðafélags Íslands

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.