Fréttablaðið - 17.04.2014, Side 44

Fréttablaðið - 17.04.2014, Side 44
17. apríl 2014 FIMMTUDAGUR| TÍMAMÓT | 28TÍMAMÓT Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@365.is Við ætlum að flytja sinfóníu nr. 6 eftir Mahler, sem er risavaxið verk, og þetta verður í fyrsta sinn sem við náum hundrað manns á svið,“ segir Dagbjört Brynja Harðardóttir, fram- kvæmdastjóri SN. „Við erum í sam- starfi við Ungsveit Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands og Tónlistarskólann á Akureyri og fleiri tónlistarskóla. Guð- mundur Óli Gunnarsson, aðalstjórn- andi SN, stjórnar og þetta verður stórviðburður.“ Áður en Sinfóníuhljómsveit Norður- lands varð til var til Kammerhljóm- sveit Akureyrar, sem stofnuð var af kennurum Tónlistarskólans á Akur- eyri. „En svo stækkaði hljómsveitin og metnaðurinn varð meiri, sem varð þess valdandi að fyrir tuttugu árum var nafninu breytt í Sinfóníuhljóm- sveit Norðurlands,“ útskýrir Dagbjört Brynja. „Síðan hefur hljómsveitin vaxið og dafnað og eftir að við fengum menningarhúsið Hof hafa aðstæður hennar breyst mikið til hins betra.“ Hljómsveitin heldur tónleika um það bil einu sinni í mánuði og verk- efnavalið er ansi breitt. „Sinfónían bregður sér í allra kvikinda líki,“ segir Dagbjört Brynja. „Í dag er það Mahler en eftir viku, á sumardaginn fyrsta, munum við spila pönk með Pollapönki í Hofi og þá verða með okkur 250 nemendur úr Tónlistar- skólanum á Akureyri. Þessi gjör- ólíku verkefni endurspegla vel hvað SN er orðin fjölhæf hljómsveit og að hún vílar ekki fyrir sér að stökkva úr einu hlutverki í annað.“ Tónleikarnir í Hofi í dag hefjast klukkan 16 og enn eru örfá sæti laus. fridrikab@frettabladid.is Spila Mahler í dag og Pollapönk eft ir viku Sinfóníuhljómsveit Norðurlands fagnar 20 ára starfsafmæli sínu með því að ráðast í sitt stærsta verkefni til þessa; Sinfóníu nr. 6 eft ir Mahler. Næst á dagskrá er svo Pollapönk. FJÖLHÆF HLJÓMSVEIT Sinfóníuhljómsveit Norðurlands hefur spilað allt frá háklassík til pönks í tuttugu ár. ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS ðurh 5, Rv 5 1 00 t n Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Hinrik Valsson Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÁSTHILDUR TORFADÓTTIR Hvassaleiti 56 lést á Landspítalanum Hringbraut mánudaginn 14. apríl sl. Hallgerður Arnórsdóttir Helgi Gíslason Björk Inga Arnórsdóttir börn og barnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SVEINBJÖRN ÓSKARSSON viðskiptafræðingur, Næfurási 1, lést á krabbameinsdeild Landspítalans föstudaginn 11. apríl. Jarðsungið verður frá Árbæjarkirkju þriðjudaginn 22. apríl kl.13.00. Ingibjörg Sigríður Gísladóttir Áslaug Ingibjörg Sveinbjarnardóttir Gunnar E. Carlsen Guðrún Jóna Sveinbjarnardóttir Óskar Gísli Sveinbjarnarson Karen Milek Hafdís Arna Sveinbjarnardóttir og barnabörn. Við viljum þakka þeim fjölmörgu sem hafa tekið þátt í því með okkar að minnast STEINUNNAR KRISTÍNAR ÁRNADÓTTUR Vatnaseli 3, Reykjavík, sem lést 27. mars síðastliðinn. Innilegar þakkir til ykkar allra fyrir knús og kveðjur. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Sigurður Guðmundsson Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, AUÐUR SIGURÐARDÓTTIR Mánatúni 6, Reykjavík, lést á Hrafnistu 12. apríl. Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 22. apríl klukkan 13.00. Friðrik Kristjánsson Ívar Friðriksson Lóa Sigurðardóttir Logi Friðriksson Sigrún Elíasdóttir Kári Friðriksson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, afi, tengdafaðir, bróðir og mágur, BJÖRN INGÓLFSSON f. 4. júlí 1940 á Siglufirði, lést í Eskilstuna, Svíþjóð, 12. apríl. Útför Björns fer fram í kyrrþey. Rósa Jónasdóttir Guðrún Björnsdóttir Torbjörn Boberg Ingi Björnsson Annika Lindau Björnsson Regína Ingólfsdóttir Egill Þór Jónsson Níels Ingólfsson Svanhvít Hafsteinsdóttir Ásgrímur Ingólfsson Unnur Sigtryggsdóttir og barnabörn. Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞRÁINN ÁRNASON myndskeri, Digranesheiði 21, Kópavogi, andaðist mánudaginn 14. apríl. Hann verður jarðsunginn frá Digraneskirkju, þriðjudaginn 29. apríl kl. 15.00. Rebekka Þráinsdóttir Sigurður Á. Þráinsson Solveig K. Jónsdóttir Þór Þráinsson Valborg Guðmundsdóttir Þráinn Þráinsson Hulda Kristófersdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Okkar ástkær eiginmaður, faðir, afi, tengdafaðir, sonur, bróðir, tengdasonur og mágur, SVAVAR SÆMUNDUR TÓMASSON rafeindavirki, til heimilis að Hamratanga 15, lést af slysförum sunnudaginn 13. apríl. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 25. apríl kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er bent á að styrkja Slysavarnafélagið Landsbjörg. Rannveig Raymondsdóttir Anna Hlíf Svavarsdóttir Októ Þorgrímsson Tómas Örn Svavarsson Áslaug Svava Svavarsdóttir Sigurður Svansson og barnabörn Tómas Sæmundsson Esther Skaftadóttir Magnús Tómasson Oddný Halldórsdóttir Einar Björn Tómasson Raymond Steinsson Anna Kjaran og fjölskyldur. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN SVAVAR JÓNASSON blikksmíðameistari, Drekavöllum 57, Hafnarfirði, lést á heimili sínu 11. apríl í faðmi fjölskyldu sinnar. Hann verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju miðvikudaginn 23. apríl kl. 11.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Heimahlynningu LSH. Kolbrún Ósk Óskarsdóttir Kristens Jónsson Ingibjörg Jóna Kristjánsdóttir Katrín Svava Jónsdóttir Stefán Kristófersson Jórunn Jónsdóttir Einar Þór Einarsson barnabörn og barnabarnabörn.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.