Fréttablaðið - 17.04.2014, Page 54

Fréttablaðið - 17.04.2014, Page 54
17. apríl 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING | 38 EINN SÁ BEST KLÆDDI Í TÍSKUHEIMINUM Ástralinn Justin O´Shea hefur löngum fest sig í sessi sem einn þekktasti karakterinn innan tískuheimsins. O´Shea er innkaupastjóri hjá vef- versluninni Mytheresa.com og því fastur gestur á fremsta bekk á tískuvikum út um allan heim. O´Shea er talinn einn best klæddi karlmaður í heimi þar sem hann klæðist yfi rleitt jakkafötum og vesti og setur sinn svip á klæðnaðinn með húðfl úrum sínum og þykku skegginu. NORDICPHOTOS/GETTY GRÁTT OG BLEIKT KLÆDDUR Í FRAKKA, SEM TÓNAR VIÐ JAKKAFÖTIN, OG Í BLEIKRI SKYRTU – FYRIR UTAN MARC JACOBS-SÝNINGUNA Í NEW YORK. BLÁTT BINDI SVARTKLÆDDUR MEÐ BINDI Í LIT. TÍSKUPAR KÆRASTA O´SHEA, VERONIKA HEIL- BRUNNER, ER YFIRLEITT JAFN VEL TIL FARA OG HANN. VÍGALEGUR FRAKKI MEÐ PELSKRAGA OG SÓLGLERAUGU Á TÍSKUVIKUNUM. HÚÐFLÚRIN SETJA SINN SVIP Á ÚTLITIÐ. GULUR FRAKKI JUSTIN O´SHEA SEGIST SJÁLFUR VERA FREMUR HEFÐBUNDINN Í FATA- VALI EN ER ÓHRÆDDUR VIÐ AÐ FLIKKA UPP Á KLÆÐNAÐINN MEÐ LITUM. KYNLÍF TAKTU ÞÁTT! Sendu Siggu Dögg póst og segðu henni frá vandamáli úr bólinu. Lausnin gæti birst í Fréttablaðinu. kynlif@frettabladid.is Ég fylgist með stórskemmti- legum hópi á fésbók sem kallast „Kynlegar athugasemdir“. Þar er farið um víðan völl og virkilega gaman að sjá hversu sveigjan- legir margir eru í uppeldi sínu gagnvart staðalmyndum og enn aðrir tilbúnir að stíga út fyrir kassann sinn og fagna fjölbreyti- leikanum. Ég hef sagt það áður og ég segi það aftur, einstaklings- munur er meiri en kynjamunur. Þó er það svo, rétt eins og með veðurfarið, að ský dregur skyndi- lega fyrir sólu og gallajakkinn sem ég er í ber vott um of mikla bjart- sýni þegar á mér dynur haglél. Svo- leiðis leið mér þegar höfundur nýrrar barna- bókar kallar píku buddu, því það er „krúttlegra“ og „virðingarverðara“ yfir kynfæri „ungrar stúlku“. Úps, ég gubbaði aðeins upp í mig. Typpi er hins vegar bara typpi, rétt eins og það hefur alltaf verið. Hættu þessu femínistavæli og skelltu tíkalli í budduna. Þegar þessum ágæta höfundi var bent á að píka væri píka þá bar sá hinn sami fyrir sig að fem- ínistar ættu ekki að skipta sér af fjölbreytileika tungumálsins. Budda er víst alveg jafngilt orð og budda, blúnda, dúllurifa eða hvað svo sem honum finnst vera krúttlegt yfir píku. Það er ekki í verkahring einhvers femínista að segja honum, sjálfum höfund- inum, hvað eigi að kalla hluti, það er smekkur hvers og eins. Sko. Eiginlega bara alls ekki. Ef Landlæknisembættið notar píka, þá notum við píka. Ef þú skrifar bók þar sem þú kennir börnum um líkamann þá notar þú réttnefni viðkomandi líkams- hluta. Þú getur tekið sérstaklega fram að líkamshlutar hafa gælu- nefni, rétt eins og magi er stund- um kallaður mallakútur en magi er samt magi. Það fer enginn full- orðinn einstaklingur til læknis því honum er svo illt í mallakút og hausaling. Ég velti því líka þá fyrir mér hvenær budda verður að píku, eða verður hún bara að seðlaveski? Hættir þessu barns- lega veseni með eintómt klink og þroskast í að taka nú á móti tíuþúsundkalli? Ég verð bara reið því það er stór misskilningur að þetta sé einka- mál femín- ista. Þetta er bara mál allra. Þetta er tungumálið okkar og þetta er líkaminn. Við skulum ræða um hann og fræða á réttan hátt en ekki eftir geðþótta hvers og eins. Ég hef áður talað um píkuskrímslið. Eða sko, það að það sé einmitt ekkert píku- skrímsli. Það að segja orðið píka hefur akkúrat engin önnur áhrif en þau að þú ert að tala um kyn- færi. Orðið hindrar ekki hárvöxt á neðri svæðum né sprengir haus í loft upp. Þetta er bara orð en orð eru mikilvæg. Þess vegna vönd- um við okkur þegar við tölum og reynum að tala skýrt og segja rétt frá. Getum við bara farið að segja píka og verið sammála um það, þá get ég einbeitt mér að því að fræða um píkuna en ekki eytt tímanum í orðaleiki? Kynlegar athugasemdir

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.