Fréttablaðið - 13.05.2014, Page 1
KJARADEILUR Fari fram sem horfir
verða miklar raskanir á flugi Ice-
landair á næstunni, með tilheyrandi
óþægindum fyrir þúsundir farþega.
Flugmenn eru í ótímabundnu
yfirvinnubanni og flugfreyjur hafa
boðað yfirvinnubann frá og með
næsta sunnudegi semjist ekki við
þær. Yfirvinnubann þessara hópa
getur valdið því að fella verði niður
flug með skömmum fyrirvara og
falli eitt flug niður getur það haft
keðjuverkandi áhrif.
Einstaklingar og fyrirtæki í
ferðaþjónustu eru orðin verulega
áhyggjufull vegna verkfallsað-
gerða flugmanna. Jafnframt veldur
áhyggjum að samningar eru lausir
við fleiri hópa. Flugfreyjur hjá Ice-
landair hafa boðað tímabundið verk-
fall 27. maí, sólarhringsverkfall
er boðað 6. júní og annað 14. júní.
Ótímabundið verkfall hefst 19. júní.
Atvinnurekendur hafa boðið flug-
freyjum 2,8 prósenta launahækkun
en því hafa þær hafnað.
Þá er ósamið við flugvirkja sem
vinna hjá Icelandair. Kjaradeilu
þeirra hefur verið vísað til ríkis-
sáttasemjara. Flugvirkjar hafa ekki
boðað til aðgerða.
Helga Árnadóttir, framkvæmda-
stjóri Samtaka ferðaþjónustunnar,
segir stöðuna grafalvarlega. Hún
segir að aðgerðir flugmanna hafi
þegar valdið miklu tjóni. Margir
hafi afbókað á hótelum. Þá hafi veit-
ingastaðir, rútufyrirtæki og bíla-
leigur tapað viðskiptum.
„Stærsti hluti tekna í ferðaþjón-
ustu kemur inn í maí, júní, júlí
og ágúst. Hver dagur skiptir því
miklu,“ segir Helga og bætir við að
hætta sé á að orðspor landsins bíði
hnekki og það geti haft í för með sér
tekjutap í framtíðinni.
Stjórn Bílgreinasambandsins
hefur miklar áhyggjur af afleiðing-
um verkfalls flugmanna Icelandair.
Bílaleigur hafi pantað hátt í 4.000
bíla fyrir sumarið auk þess sem
verkfallið hafi áhrif á hópferðafyr-
irtæki. Bílgreinasambandið segir að
verkfalli megi líkja við náttúruham-
farir eins og eldgos, þar sem mikil
óvissa er um framgang og hversu
lengi hamfarirnar vara. Þá endur-
skoði ferðamenn áætlanir sínar.
Margra klukkustunda sáttafund-
ur var í kjaradeilu flugmanna í gær
og stóð hann fram á kvöld. Mikið
ber enn í milli í deilunni. - jme
FRÉTTIR
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Þriðjudagur
12
H rönn Harðardóttir, 30 ára við-skiptafræðinemi, sýndi fádæma dugnað og seiglu í sjónvarps-þáttunum Biggest Loser Ísland á dög-unum og endaði í þriðja sæti keppninn-ar. Hún missti alls 49,6 kíló í keppninni. Á tímabili virtist sem eitthvað stæði í vegi fyrir þyngdartapi Hrannar og lék grunur á að um fæðuóþol væri að ræða, en fæðuóþol er þekkt fyrir að geta tafið fyrir þyngdartapi. Allir kepp-endur gengust í kjölfarið á þessu undir fæðuóþolspróf frá Food Detective.
ÓÞOL FYRIR 30 FÆÐUTEGUNDUMEftir mælinguna kom í ljós að margir
keppendur höfðu óþol fyrir ákveðnum
fæðutegundum en Hrönn kom lang-verst út en hún mældist með óþol fyrir
30 fæðutegundum. Í kjölfarið breytti hún mataræðinu og byrjaði vigtin fljótlega að gefa sig, sem endaði með
þessum líka frábæra árangri!
Í SKÝJUNUM MEÐ ÁRANGURINNÞegar keppninni var lokið tók Hrönn
aftur fæðuóþolsprófið og kom í ljós að líkaminn hafði sigrast að nokkru leyti á vandamálinu. Þó reyndust átta
fæðutegundir enn valda talsverðum einkennum og hefur Hrönn því haldið áfram að varai
LÉTTIST UM 49,6 KÍLÓGENGUR VEL KYNNIR Food Detective-fæðuóþolsprófið hefur meðal annars
hjálpað Hrönn Harðardóttur, einum keppenda í Biggest Loser Ísland, að halda
áfram að léttast eftir að hún tók út úr mataræðinu þær fæðutegundir sem hún
mældist með óþol fyrir og gátu mögulega staðið í vegi fyrir frekari þyngdar-
tapi hjá henni.
NÁTTÚRULEGT SÆTUEFNIStevía er 100 prósent náttúrulegt, hita-einingalaust sætuefni sem unnið er úr plöntunni Stevia rebaudiana. Plantan er græn, laufguð og á rætur sínar að rekja til Suður-Ameríku. Plantan hefur verið notuð
til lækninga um aldir.
Sumarkjólar
ÚT AÐ HLAUPAÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 2014
2 SÉRBLÖÐ
Út að hlaupa | Fólk
Sími: 512 5000
13. maí 2014
111. tölublað 14. árgangur
Veiðiþjófar að verki
Starfsmenn Landsvirkjunar og þeir
sem stunda rannsóknir við Þing-
vallavatn hafa ítrekað orðið varir við
veiðiþjófa í útfalli vatnsins. 4
Mygla á Alþingi Þingmenn Pírata
hafa flúið skrifstofur sínar vegna
myglusvepps. Sveppurinn hefur haft
áhrif á heilsu starfsmanna þingsins. 2
Ekki meiri innlimun Uppreisnar-
menn í austanverðri Úkraínu lýsa yfir
sjálfstæði við litlar undirtektir frá
rússneskum stjórnvöldum. 6
Meiri óvissa Meiri spenna, óvissa og
sveiflur einkenna kosningar nú en á
árum áður samkvæmt niðurstöðum
kosningarannsóknar. 8
SKOÐUN Í nýrri grein er
hugmyndum um andoxunar-
efni og langlífi kollvarpað. 13
TÍMAMÓT Kristín Helga
Gunnarsdóttir er nýr for-
maður RSÍ. 16
LÍFIÐ Ari Jónsson smíðaði
draumaskáp sem lokaverk-
efni í Tækniskólanum. 30
SPORT Tímabilið í Pepsi-
deild kvenna hefst í kvöld
með stórleik. 26
FLJÓTLEGT
OG ÞÆGILEGT
ENDURFUNDIR Izekor Osazee var greinilega létt eftir að hafa verið sleppt úr varðhaldi í gær en lögreglan hélt henni í varðhaldi
á lögreglustöðinni við Hverfisgötu í rúma klukkustund. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
TÓNLIST Hljómsveitin Quarashi
gefur út sitt fyrsta nýja lag í tíu
ár á fimmtudag en sveitin er ein
sú vinsælasta í íslenskri tónlistar-
sögu.
„Lagið heit-
ir Rock On og
inniheldur vís-
anir í upphafsár
Quarashi,“ segir
Sölvi Blöndal,
meðlimur sveit-
arinnar.
Quarashi
starfaði frá árinu 1996 til 2005 og
seldi um fjögur hund ruð þúsund
plötur á heimsvísu á ferlinum.
Meðlimir sveitarinnar grófu upp
gamlar upptökugræjur til að fanga
anda tímabilsins þegar þeir voru
hvað vinsælastir. lkg / sjá síðu 30
Rappararnir snúa aftur:
Fyrsta lagið frá
Quarashi í tíu ár
SÖLVI BLÖNDAL.
Verkföll næsta mánuðinn
geta raskað ferðum þúsunda
Semjist ekki í kjaradeilu flugmanna og flugfreyja við Icelandair gæti orðið mikil röskun á flugi næstu vikurn-
ar. Flugvirkjar eru með lausa samninga. Ferðaþjónustan segist hafa orðið fyrir miklu tjóni vegna verkfalls.
FYRIRHUGUÐ VERKFÖLL HJÁ ICELANDAIR
Flugmenn Flugfreyjur
1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31
1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31
mán þri mið fim fös lau sun mán þri mið fim fös lau sun
maí júní
*
*Ótímabundið verkfall
Auk þessa má búast við röskun á flugi hvaða dag sem er þar sem flugmenn eru í ótímabundnu
yfirvinnubanni og flugfreyjur boða yfirvinnubann frá og með næstkomandi sunnudegi.
Bolungarvík 7° A 6
Akureyri 7° A 3
Egilsstaðir 5° A 3
Kirkjubæjarkl. 10° SA 4
Reykjavík 11° SA 6
DÁLÍTIL VÆTA Í dag verða víðast austan
3-8 m/s og dálítil væta eystra og SV-til
síðdegis. Hiti 4-12 stig, mildast SV-lands. 4
STJÓRNSÝSLA Izekor Osazee, flótta-
maður frá Nígeríu, var handtekin
í gærmorgun þegar hún kom á lög-
reglustöð til að sinna tilkynningar-
skyldu.
Osazee var sleppt úr haldi eftir að
hafa setið í fangaklefa í rúmlega sjö
klukkustundir, en brottvísun hennar
úr landi hefur verið frestað.
Osazee giftist Gísla Jóhanni Grét-
arssyni í síðasta mánuði. Í síðustu
viku var henni tilkynnt að vísa ætti
henni úr landi og bar henni að til-
kynna sig til lögreglu daglega fram
að því.
„Þetta er eiginkona mín. Fjöl-
skylda mín. Ég mun standa með
henni og verði hún send úr landi mun
ég líka fara úr landi,“ segir Gísli.
Helga Vala Helgadóttir, lögmaður
Osazee, segir að undanþágu sé hægt
að fá frá meginreglu um að útlend-
ingi beri að sækja um dvalarleyfi
áður en hann kemur til lands.
„Þessari undanþágu á að beita
þegar um er að ræða maka ann-
ars vegar og hins vegar þegar
um er að ræða einhvern með við-
kvæmar aðstæður. Í þessu tilfelli
á hvort tveggja við.“
Helga Vala segist bjartsýn á
framhaldið miðað við viðbrögð
í dag. „Ég hef trú á því að það
eigi að laga þessa vitleysu,“ segir
Helga. „Næstu skref eru hjá
stjórnvöldum. Þau eru að skoða
málið og móta stefnu varðandi
hvernig á að taka á því þegar
makar eða aðrir nánir aðstand-
endur sækja um dvalarleyfi.“
Aðstandendur Osazee hafa stofn-
að vefsíðu þar sem boðað er til mót-
mæla í dag við lögreglustöðina á
Hverfisgötu.
„Það er ólíðandi og óþolandi að
saklaust fólk sé rifið frá fjölskyld-
um sínum hér á landi fyrir það eitt
að vera útlenskt án leyfis,“ segir á
síðunni.
- sks, kóh
Flóttamanni haldið í fangelsi í rúmar sjö klukkustundir og hótað brottvísun:
Brottflutningi Osazee frestað
Baldursnesi 6
Akureyri
Sími 414 1050
Smiðjuvegi 76
Kópavogi
Sími 414 1000
MORA CERA
STURTUSETT
VERÐ ÁÐUR:64.900.-
TILBOÐ:49.900.-
MORA Á ÍSLANDI Í YFIR 30 ÁR
Ég hef trú á því að
það eigi að laga þessa
vitleysu.
Helga Vala Helgadóttir
lögmaður Izekor Osazee