Fréttablaðið - 13.05.2014, Side 2

Fréttablaðið - 13.05.2014, Side 2
13. maí 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 2 Guðjón, þarf ekki að fara að lenda þessu máli? „Jú, vonandi fara viðræðurnar að komast á flug.“ Flugmenn hjá Icelandair hafa verið í verkfalli og standa kjaraviðræður yfir. Guðjón Arn- grímsson er upplýsingafulltrúi Icelandair. HEILBRIGÐISMÁL Alþingismenn jafnt sem hópur starfsmanna Alþingis hafa glímt við heilsufars- vanda vegna myglusvepps í hús- næði Alþingis. Þingflokkur Pírata hefur tímabundið flutt á milli hæða í skrifstofuhúsnæði sínu vegna vandans. Starfsfólk Alþingis finn- ur ekki lengur til einkenna eftir viðgerðir. Karl M. Kristjánsson, fjármála- stjóri Alþingis, staðfestir í viðtali við Fréttablaðið að myglusveppur hafi komið upp á tveimur stöðum í húsnæði Alþingis. Annars vegar í gömlu húsi við Kirkjustræti, svo- nefndu Kristjánshúsi, og tengi- byggingu við Blöndahlshús þar við hliðina. Þar er fjármálaskrifstofa þingsins til húsa. Eins á efstu hæð í Austurstræti 14 þar sem Pírat- ar hafa meðal annars skrifstofur sínar. Karl segir að gripið hafi verið til viðeigandi ráðstafana í Kristjáns- húsi eftir að upp komst hvers kyns var í byrjun ársins, enda séu mál sem þessi tekin alvarlega. Verið er að hefjast handa við endurbætur í Austurstræti og hefur Pírötum verið fundin aðstaða á öðrum stað í húsinu á meðan. Spurður um hvort starfsmenn þingsins í Kristjánshúsi hafi fundið fyrir einkennum sem rekja mætti til myglusvepps segir Karl að það hafi ekki verið sannað þar frek- ar en annars staðar. „Starfsmenn kvörtuðu hins vegar yfir einkenn- um; þreytu, augnþurrki, beinverkj- um og fleiru. En það breyttist eftir viðgerðirnar,“ segir Karl. Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata, sagði í þingræðu í gær að heilbrigðisvandi vegna myglu- svepps skyldi tekinn alvarlega, og minntist einnig á að hann hefði fundið fyrir einkennum þegar hann fór í páskafrí sem hann rekur beint til myglusvepps í Austurstræti sem nú er verið að uppræta. Hvatti hann þá sem áður höfðu haft aðstöðu í Austurstræti til að hugsa sín mál, og nafngreindi sérstaklega fram- sóknarþingkonuna Eygló Harðar- dóttur, félags- og húsnæðismála- ráðherra. Jón Þór staðfestir við Frétta- blaðið að fleiri hafi fundið fyrir einkennum en hann. Starfsmað- ur þingflokks Pírata hafi leitað til læknis sökum öndunarörðugleika, sem raktir voru beint til eitrun- ar frá myglunni á skrifstofunum, segir Jón Þór. svavar@frettabladid.is Alþingismenn flúðu vegna myglusvepps Þingmenn Pírata hafa flúið skrifstofur sínar vegna myglusvepps. Starfsmenn fjárlagaskrifstofu Alþingis náðu bata eftir að myglusveppur var upprættur á skrif- stofum við Kirkjustræti. Tökum málið alvarlega, segir fjármálastjóri Alþingis. Alþingi samþykkti í gær með 58 samhljóða atkvæðum tillögu Kristjáns L. Möller og tólf annarra þingmanna allra flokka um að Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, skipi starfshóp sem taki til heildstæðrar endurskoðunar lög og reglur á sviði byggingarmála með tilliti til myglusveppa og þess tjóns sem þeir geta valdið. Ráðherra lýsti því yfir við samþykkt tillögunnar á Alþingi að starfshópur yrði skipaður hið fyrsta. Alþingi segir myglusveppum stríð á hendur Á ALÞINGISREITNUM Kristjánshús og Blöndahlshús standa við Kirkjustræti 8 og 10, en þar veiktist starfsfólk vegna myglusvepps. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN KJARADEILUR „Það stefnir allt í verkfall aftur á fimmtudag,“ segir Árni Stefán Jónsson, formaður SFR, stéttarfélags í almannaþágu. Um 300 sjúkraliðar og nærri 200 ófaglærðir starfsmenn á hjúkrun- ar- og dvalarheimilum fyrir aldr- aða lögðu niður störf í átta klukku- stundir í gær. Auk þess raskaðist starfsemi SÁÁ verulega þar sem áfengisráðgjafar lögðu niður störf. Verkfallið hafði veruleg áhrif á starfsemi hjúkrunarheimilanna þótt ekki skapaðist neyðarástand. Þess var gætt að allir heimilis- menn fengju að borða og fengju lyf. Samninganefndir sjúkraliða, SFR og Samtaka atvinnulífsins hittust í gær. Að sögn Árna Stefáns var fundurinn árangurslaus. Krafa þessara hópa er að njóta sambæri- legra launa og ríkisstarfsmenn hafa á öðrum sjúkrastofnunum. Þá vilja menn fá viðurkennt í samn- ingum að þeir njóti sömu réttinda og starfsmenn ríkisins. - jme Stefnir í annað verkfall á fimmtudag á hjúkrunar- og dvalarheimilum: Samningar ekki í augsýn í bráð LÝÐHEILSA Áformað er að ný krabbameinsáætlun verði lögð fram í lok þessa árs, segir Krist- ján Þór Júlíusson heilbrigðisráð- herra. Í henni verður fjallað um faraldsfræði, skráningu, forvarn- ir og heilsugæslu. „Þetta umfangsmikla verkefni er nú óðum að taka á sig mynd og ég bind vonir við að hægt verði að leggja fram krabbameinsáætl- un undir lok þessa árs,“ segir Kristján. Áætlunin á að vera til þriggja eða fimm ára. - hrs Kynnt undir lok árs: Áætlun gegn krabbameini STJÓRNMÁL Mikilvægt er að Sjálf- stæðisflokkurinn í Kópavogi upplýsi um hvaða skrár flokkurinn hefur unnið um stjórnmálaskoðanir bæj- arbúa, að mati forsvarsmanna fram- boðs Pírata í bænum. Með þessu bregðast Píratar við ummælum Braga Mikaelssonar, umboðsmanns Sjálfstæðisflokksins í Kópavogsbæ, í Fréttablaðinu í gær. Sjálfstæðisflokkurinn hefur farið fram á að sjá lista yfir meðmælend- ur framboðslista annarra flokka vegna bæjarstjórnarkosninganna í Kópavogi, og sagði Bragi að tilgang- urinn væri sá að strika þá af list- um yfir fólk sem haft yrði samband við í kosningabaráttu Sjálfstæðis- flokksins. „Það er eitt að halda skrá yfir félaga í eigin flokki en að halda skrá um stjórnmálaskoðanir Kópa- vogsbúa almennt og án þess að sam- þykki þeirra liggi fyrir teljum við að geti ekki samrýmst persónu- verndarlögum,“ segir Ingólfur Árni Gunnarsson, oddviti Pírata í Kópavogi. Sigurður Líndal lagaprófessor segist ekki telja ólöglegt að halda lista yfir stjórnmálaskoðanir fólks, enda hafi slíkt verið gert árum saman. Í yfirlýsingu skora Píratar á Per- sónuvernd að rannsaka málið nánar og úrskurða um hvort um lögbrot sé að ræða. - kóh Píratar segja gagnasöfnun sjálfstæðismanna brot á lögum um persónuvernd: Ósáttir við afhendingu gagna SJÓFÆR Börnin fengu ýmist að prófa að sigla árabátum eða kajakbátum, og þau sem reyndari voru fengu að taka í seglbáta. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA TÓMSTUNDIR Í gær bauð siglingaklúbburinn Þytur öllum 6. bekkingum í Hafnarfirði í kynningu á siglinganámskeiði sínu. Krakkarnir kíktu í Hafnarfjarðarhöfn í góða veðrinu og spreyttu sig á ýmiss konar fleyj- um. Til boða stóð að sigla kayak eða árabát. Þeir sem höfðu reynslu af siglingum fengu að grípa í seglbáta. Í sumar býður klúbburinn upp á siglinganámskeið fyrir krakka 10 ára og eldri, en þá læra börnin að sigla kayak og seglbátum, og læra einnig siglingareglur og umgengni um báta og búnað þeirra. - kóh Siglingaklúbburinn Þytur býður upp á prufukennslu: Börn prófa siglinganám hjá Þyt VERKFALL Sjúkraliðar og ófaglærðir lögu niður störf á dvalarheimilum aldr- aðra í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ODDVITI PÍRATA Ingólfur Árni Gunnarsson leiðir fram- boðslista Pírata í Kópavogi. ALÞINGI Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra segir sam- komulag í burðarliðnum um geð- heilbrigðisþjónustu barna og ung- linga á Norður- og Austurlandi. Ráðherra segist hafa beint þeim til- mælum til forstjóra Landspítalans og forstjóra Sjúkrahússins á Akur- eyri, að leita allra þeirra leiða sem færar eru til að greiða úr málinu. Þetta kom fram í svari ráð- herra við fyrirspurn Brynhildar Pétursdóttur, þingmanns Bjartr- ar framtíðar, á Alþingi. Ekki ligg- ur fyrir á þessari stundu í hverju samkomulagið felst. - jme Greitt úr vanda norðanlands: Geðlæknaþjón- usta fyrir börn HEILBRIGÐISMÁL Áfengi verður rúmlega 3,3 milljónum manns að bana árlega um heim allan – fleirum en alnæmi, berklar og ofbeldi til samans. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu Alþjóða- heilbrigðismálastofnunarinnar. Stofnunin varar við því að áfeng- isneysla fari vaxandi. Ef með eru talin bílslys, ofbeld- ismál, misnotkun, veikindi og kvillar af völdum áfengis á það hlut í einu af hverjum tuttugu dauðsföllum. Þetta þýðir að á hverjum tíu sekúndum deyr ein- hver af völdum áfengis. - kóh Áfengi drepur 3 milljónir: Dauðsfall á tíu sekúndna fresti SPURNING DAGSINS SEGLAGERÐIN ÆGIR Þar sem ferðalagið byrjar FERÐAVAGNAR Falleg hjólhýsi

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.