Fréttablaðið - 13.05.2014, Side 12
13. maí 2014 ÞRIÐJUDAGURSKOÐUN
HALLDÓR
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Álfrún Pálsdóttir alfrun@frettabladid.is VIÐSKIPTI: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is
DÆGURMÁL: Lilja Katrín Gunnarsdóttir liljakatrin@frettabladid.is VÍSIR: Kolbeinn Tumi Daðason, kolbeinntumi@365.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000
eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á
landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
ISSN 1670-3871
FRÁ DEGI
TIL DAGS
Ólafur Þ.
Stephensen
olafur@frettabladid.is
www. utkall.is
Í ÞÁGU VÍSINDA
Þær sækja tilbúin skilaumslög til
þeirra sem ákveða að taka þátt.
Umslögin má einnig setja
ófrímerkt í póst.
Vilt þú gera eitthvað skemmtilegt, fræð-
andi, mikilvægt og uppbyggjandi með
börnunum þínum? Ef svarið er já, lestu
þá áfram. Jamie Oliver, matargúrú með
meiru, hefur staðið fyrir alþjóðlegu
átaki um skeið undir yfirskriftinni mat-
arbyltingardagurinn 16. maí. Tilgang-
urinn er að fá börn til að verða áhuga-
samari um mat. Allir sem umgangast
börn eru hvattir til að kenna þeim að
elda mat frá grunni og sýna þeim að
slíkur matur er ekki bara bragðgóður
heldur geta breyttar matarvenjur líka
bætt heilsu og aukið hamingju og vel-
ferð þeirra.
Foreldrar– ömmur– afar
Nauðsynlegt er að komandi kynslóðir
kunni skil á því að kaupa inn og mat-
reiða úr hollu hráefni svo þær geti til-
einkað sér heilbrigðan lífsstíl. Börn
morgundagsins munu að lokum taka
við. Framtíðin er þeirra og því á ábyrgð
okkar að þau alist upp með skilning á
góðum mat, eða eins og Jamie orðar það
upp á ensku „food-smart“. Átak Jamie
Oliver er stórskemmtilegt og fróðlegt,
en það má finna á www.foodrevolu-
tionday.com. Í tilefni matarbyltingar-
dagsins 16. maí viljum við hvetja alla
foreldra, afa og ömmur landsins og
aðra þá sem umgangast börn, til þess
að taka þátt í átakinu og elda með börn-
unum góðan mat á föstudaginn eða um
helgina.
Tökum þátt
Þeir sem smella ljósmynd af sér og
börnum við eldamennskuna geta tekið
þátt í ljósmyndahluta verkefnisins hér á
landi. Þeir hinir sömu eru hvattir til að
senda myndina til velferðarráðuneytis-
ins á netfangið postur@vel.is. Mynd-
irnar verða birtar á vef ráðuneytisins
í lok maí. Við hvetjum alla til að taka
þátt í skemmtilega matarbyltingardeg-
inum 16. maí. Eldum saman þannig að
komandi kynslóðir verði meðvitaðar um
hvað er hollt og gott. Hugum að velferð
barnanna okkar.
„Fæðutöff “
➜ Framtíðin er þeirra og því á
ábyrgð okkar að þau alist upp með
skilning á góðum mat, eða eins og
Jamie orðar það upp á ensku „food-
smart“. Átak Jamie Oliver er stór-
skemmtilegt og fróðlegt, en það má
fi nna á www.foodrevolution -
day.com.
HEILBRIGÐI
Eygló
Harðardóttir
félags- og hús-
næðismálaráðherra
Sigurður Ingi
Jóhannsson
sjávarútvegs- og
landbúnaðar-
ráðherra
Sjóræningjar í Dögun
Það hefur heldur betur soðið upp
úr á milli framboða smáflokkanna í
Kópavogi ef marka má grein Helga
Hrafns Gunnarssonar, þingmanns
Pírata, í Fallstykkinu, kosningablaði
Pírata. Í greininni segir Helgi að van-
hæfi stjórnar Pírata í Kópavogi, sem
var felld á miklum hitafundi, sé ástæða
þess hve brösuglega hefur gengið að
koma saman framboðslista. Hann segir
stjórnina ekki hafa viljað lúta
lýðræðislegri niðurstöðu
prófkjörs og hafa hvorki
unnið vinnuna sína né
unnið að málefnum Pírata.
Nú sé stjórnin öll gengin í
Dögun og muni bjóða fram
undir þeim merkjum.
Píratar stilltu upp
nýjum lista í
kjölfarið. Á honum eru þrettán karlar og
ein kona.
Birgitta blandar sér í málin
Birgitta Jónsdóttir gerir orð Helga
Hrafns að sínum á Facebook-síðu sinni
og uppsker hörð viðbrögð fyrrverandi
stjórnarmeðlima. Fyrrverandi stjórnar-
meðlimur Pírata í Kópavogi segir
Birgittu illa upplýsta en staðreyndina
vera þá að smalað hafi verið á fundinn
af þeim sem hlutu kosningu í efstu sæti
listans. Þá er „flokkseigendafélag“ Pírata
sakað um skort á gegnsæi og lýðræði–
einkunnarorðum Pírata.
Hvar er Margrét?
Á vefsíðu Pírata má sjá gamla yfir-
lýsingu Margrétar Tryggvadóttur, fyrr-
verandi þingflokksfélaga Birgittu, þar
sem hún býður fram krafta sína til sam-
eiginlegs framboðs Pírata og Dögunar
í Kópavogi. Hún hefur greinilega fylgt
öðru dögunarfólki úr framboði Pírata
ef marka má áðurnefndar umræður
á Facebook en hún tekur þátt í þeim
með því að lýsa yfir stuðningi við þá
sem tala hvað harðast gegn Birgittu.
Það er að minnsta kosti ljóst að það er
ekkert of kært á milli fyrrverandi
þingsystranna, þeirra Birgittu og
Margrétar. snaeros@frettabladid.is
Ú
tkall“ Íslenzkrar erfðagreiningar, átak til að safna
erfðaefni um 100.000 Íslendinga, hefur orðið tilefni
talsvert harðrar opinberrar umræðu undanfarna
daga. Ýmislegt hefur verið látið fjúka um fyrirtækið,
aðstandendur þess og starfsfólk, sem varla getur talizt
málefnalegt. Veigamesta gagnrýnin hefur hins vegar komið frá
hópi vísindamanna, sem meðal annars inniheldur stjórnendur Sið-
fræðistofnunar Háskóla Íslands.
Í yfirlýsingu hópsins segir að fólk sé beðið að veita samþykki
sitt fyrir rannsóknum sem
ómögulegt sé að sjá fyrir á
þessu stigi, og „því opnara sem
samþykki er, því óupplýstara er
það“. Hópurinn telur sömuleiðis
að engin upplýst umræða hafi
farið fram um rannsóknirnar og
söfnunin sé „unnin með slíkri
leiftursókn að ekkert ráðrúm gefst til umræðu“ og þar með hafi
almenningur engar forsendur til að móta sér afstöðu.
Hópurinn gagnrýnir að Slysavarnafélagið Landsbjörg safni
saman sýnunum og fái á móti styrk frá ÍE. „Þetta setur óeðlilega
pressu á fólk til að gefa lífsýni sín til rannsókna,“ segir í yfir-
lýsingu hópsins. Þar er líka gagnrýnt að stjórnmálamenn og
skemmtikraftar kyndi undir stemningunni að vera með.
Hugsanlega má taka undir að lífsýnasöfnunina hafi borið held-
ur brátt að. Hins vegar er erfitt að fallast á að umræður skorti um
rannsóknir Íslenzkrar erfðagreiningar eða að það samþykki sem
fólk veitir fyrir sýnatökunni sé ekki eða illa upplýst. Um fá fyrir-
tæki hefur verið rætt meira á Íslandi undanfarinn hálfan annan
áratug en ÍE. Fyrirtækið hefur orðið fyrir áföllum, bæði fjárhags-
lega og í opinberri umræðu. Engu að síður hafa tugir þúsunda
Íslendinga verið reiðubúnir að taka þátt í rannsóknum þess.
Ástæðan er að ÍE hefur sýnt fram á raunverulegan árangur í
erfðarannsóknum, fundið orsakir alvarlegra sjúkdóma og þar með
komizt nær því að finna á þeim lækningu. Til þessa hafa rann-
sóknirnar iðulega beinzt að hópum sem ganga með sjúkdóma, en í
þetta sinn á að safna gögnum um stóran samanburðarhóp. Sumir
segjast nú hafa áhyggjur af að rannsóknaniðurstöðurnar verði
notaðar í lyfjaiðnaði – og gleyma þá að á bak við hvert einasta lyf
sem linar þjáningar og læknar sjúkdóma eru miklar rannsóknir,
sem hefðu ekki verið gerlegar nema með aðstoð almennings.
Upplýsingarnar sem fólk hefur fengið sendar heim eru ýtar-
legar og flestum spurningum svarað. Það er algjörlega skýrt og
ljóst að ákvörðunina um að taka þátt í rannsókninni tekur hver og
einn af fúsum og frjálsum vilja.
Ótal fordæmi eru fyrir því að góðgerðastofnanir og fyrirtæki
noti fræg andlit og séu í samstarfi við önnur góðgerðasamtök
til að afla góðum málstað fylgis. Með því að halda því fram að
fólk standist ekki slíkan þrýsting og geti ekki myndað sér sjálf-
stæða skoðun, er verið að gera lítið úr íslenzkum almenningi.
Umræðuna skortir ekki; gagnrýnendur átaksins hafa einmitt séð
til þess að það hefur verið rætt frá mörgum hliðum og Íslenzk
erfðagreining svarað gagnrýninni. Engum ætti að vera neitt að
vanbúnaði að taka sína sjálfstæðu og upplýstu ákvörðun.
Deilt um „útkall“ Íslenzkrar erfðagreiningar:
Sjálfstæð og
upplýst ákvörðun