Fréttablaðið - 13.05.2014, Síða 20

Fréttablaðið - 13.05.2014, Síða 20
FÓLK|HEILSA Salbjörg Bjarnadóttir geð-hjúkrunarfræðingur hjá Embætti landlæknis segir sumarið geta valdið upplausn og streitu hjá mörgum fjölskyldum. Sú rútína sem haldist hefur yfir veturinn riðlist og fólk þurfi að púsla saman fríum í kringum sumarfrí skóla, leikskóla og vinnu og finna dægradvöl fyrir börnin til að brúa bilin. Hún segir einnig marga, bæði börn og fullorðna, hafa miklar væntingar til sum- arsins. Það fari illa með sálarlífið þegar væntingar bresta. „Sumir rækta ekki fjölskyldu- tengslin sem skyldi yfir vetur- inn. Þá eru allir á kafi í vinnu og að sinna sínu og ætla sér að slappa af seinna. Fólk er jafnvel að safna fyrir ferðalagi í sum- arfríinu þar sem allt á að vera fullkomið. Svo kann fólk ekkert að vera saman þegar að fríinu kemur og allt fer í vitleysu,“ segir Salbjörg. „Væntingarnar til sumarsins verða oft svo ofboðs- legar að það geta komið brestir í sambönd þegar hlutirnir fara á annan veg. Minningarnar úr fríinu verða ekki skemmtilegar og fólki líður illa.“ Salbjörg segir lykilatriði að hinir fullorðnu passi upp á sjálfa sig og samband sitt við makann. Börn sem búa við togstreitu for- eldra og óöryggi kvíði sumrinu. Einnig geti komið upp metingur milli barna þegar þau segja hvert öðru frá sumarfríinu. „Þá ber að hafa í huga að það eru ekki alltaf hamingjusömustu börnin sem geta sagt frá stærstu ferðunum. Þau geta kannski sagt frá stórri ferð í Disneyland um sumarið en hafa ekki frá neinu öðru að segja allan veturinn. Litlu hlutirnir sem kosta ekki mikið geta verið jafn skemmti- legir í minningunni fyrir börnin eins og stórt ferðalag. Það er samveran sem skiptir máli. Ef foreldrarnir eru glaðir saman og glaðir með börnunum, verður það sem gert er skemmtilegt. Börnin verða öruggari með sig eftir því sem mömmu og pabba líður betur,“ segir Salbjörg. „Það er eilífðarverkefni að rækta fjöl- skyldutengslin.“ SUMARIÐ GETUR VALDIÐ STREITU HEILSA Rútína vetrarins er senn á enda og sumarfríið tekur við. Salbjörg Bjarnadóttir geðhjúkrunarfræðingur segir væntingarnar oft miklar. MIKLAR VÆNTINGAR Margir gleyma að rækta fjölskyldutengslin yfir veturinn og gera þeim mun meiri væntingar til sumarfrísins. Geðhjúkrunarfræðingur segir lykilatriði að geta glaðst saman. NORDICPHOTOS/GETTY Þegar fjölskyldan á frí saman er nauðsynlegt að ætla sér ekki um of og skipuleggja hverja stund. Það þarf hvorki að fara í langt ferðalag né gera eitt- hvað ótrúlega framandi til að skapa góðar minningar. Flestum börnum finnst gaman að leika sér úti í náttúrunni og auðvelt er að finna eitthvað við allra hæfi á útivistarsvæðum sem eru um allt land. Þannig má slá nokkrar flugur í einu höggi, að eiga góða stund saman, hreyfa sig og fá ferskt loft í lungun. Hér eru nokkrar hugmyndir að góðum fjölskyldustundum. Lautarferð. Marga skemmti- lega staði má finna í nágrenni höfuðborgarsvæðisins, svo sem Öskjuhlíð, Heiðmörk, Hvalfjörð og Þingvelli. Þangað er hægt að skunda með gott nesti í körfu og eyða heilum góðviðrisdegi við leik og taka sér svo góðar matar- pásur á teppi í grænni laut. Fjallgöngur. Fjöldi fjalla sem henta stuttum fótum er hér í kring. Mikilvægt er þegar farið er í fjallgöngu með börn að laga gönguna að þeim. Látið þau stjórna hraðanum og stoppið þegar þau þurfa og langar. Nauð- synlegt er að hafa nóg að borða og drekka til að fylla á orku- birgðirnar. Einnig þarf að huga að klæðnaði ferðalanga og taka mið af veðri og vindum. Sundferð. Víða um land má finna skemmtilegar sundlaugar. Það er spennandi fyrir börn (og aðra) að prófa laugar sem þau hafa ekki farið í áður. MIKILVÆGAR STUNDIR NESTI Í NÁTTÚRUNNI Margir staðir eru í nágrenninu þar sem hægt er að eyða heilum degi úti í náttúrunni og borða þar nesti. GAMAN Í SUNDI Flestum börnum finnst gaman að prófa nýjar sund- laugar. NORDICPHOTOS/GETTY Skipholti 29b • S. 551 0770 Fylgist með okkur á facebook.com/Parisartizkan Bleikir dagar! 15% afsláttur af öllum jökkum dagana 7. - 17. maí Erum með mikið úrval af jökkum hvort sem það er við gallabuxur eða sparikjóla. Hlökkum til að sjá ykkur í sumarskapi.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.