Fréttablaðið - 12.06.2014, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 12.06.2014, Blaðsíða 4
12. júní 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4 HEILBRIGÐISMÁL Flest atvik sem eru skráð er varða starfsmenn Landspítala eru átök eða ofbeldi af hendi sjúklinga eða um þrjú hundruð atvik. Næstalgengast er að starfsmenn verði fyrir óhappi eða slysi við vinnu sína eða í rúmlega 250 tilfellum. Atvik sem eru flokkuð sem átök eða ofbeldi eru afar ólík í eðli sínu; geta verið líkamlegt ofbeldi en einnig að sjúklingur sýni af sér ógnandi hegðun. Flest ofbeldisatvikin eru skráð á geðsviði árið 2013, eða 190 atvik, þrátt fyrir eingöngu 430 starfsgildi. Ofbeldisatvikum á geðsviði hefur þó fækkað veru- lega eftir að bráðageðdeild komst í gagnið í febrúar. Til dæmis hefur fjöldi mála þar sem halda þarf sjúklingi vegna ofbeldis- ógnar fækkað um 67 prósent frá árinu 2009. „Með því að bæta öryggið, auka þjálfunina og skapa betra rými hefur okkur tekist að fækka atvikum,“ segir María Einisdótt- ir, framkvæmdastjóri geðsviðs Landspítalans. „Öll hönnun á nýju deildinni byggist á öryggi og það er til dæmis passað að allir sjúklingar séu í sjónlínu frá vaktherberginu.“ María segir áherslu lagða á hvernig hægt sé að koma í veg fyrir ofbeldið. „Það að sýna ógn- andi hegðun er ein leið til að tjá vanlíðan. Þess vegna er svo mikil vægt að lesa í þessa hegð- un, skilja hana og hjálpa fólki áður en ofbeldi brýst út.“ Síðustu ár hefur sérþjálfað varnarteymi tekist á við sjúk- linga sem róa þarf niður. Í versta falli þarf að halda sjúklingum niðri ef ekki tekst að róa þá með samtali en á Íslandi eru ólar ekki notaðar við slíkt. „Það þarf að vanda til verka og passa að allir haldi reisn. Það er mikilvægt fyrir starfsmenn að kunna ákveðna ferla og finna til öryggis. Einnig er mikilvægt að sjúklingar séu ekki niðurlægðir og finni ekki til sektarkenndar eftir að hafa misst stjórn á sér. Það hjálpar ekki í bata.“ Þegar starfsmenn spítalans lenda í alvarlegum atvikum við vinnu sína er þeim veittur við- eigandi stuðningur af sérstöku teymi innan spítalans og sam- kvæmt mannauðsdeild spítal- ans er haft gott eftirlit með úrvinnslu mála. erlabjorg@frettabladid.is Þrjú hundruð ofbeldisatvik er snerta starfsfólk skráð Árið 2013 voru tæplega þrjú hundruð atvik skráð er varða átök eða ofbeldi gegn starfsmönnum Landspítalans af hendi sjúklinga. Ofbeldið getur verið líkamlegt, andlegt, hótanir eða ógnun. Flest atvikin gerast á geðsviði. 70 milljónir plastburðarpoka falla til á ári hverju hér á landi, að því er talið er. Það eru um 1.120 tonn af plasti. Langstærstur hluti þessara plastpoka fer í urðun með öðrum heimilis- úrgangi. KLEPPUR Flest atvikin tengd ofbeldi og átökum eiga sér stað á geðdeildum Landspítalans á Kleppi og við Hringbraut. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ATVIK SEM SNERTA STARFSMENN LANDSPÍTALA Átök/ ofbeldi Óhapp/ slys Eignatjón Stungu- óhapp/ líkamsvessa- mengun Óskráð 292 263 52 227 59 190 32 18 4 15 ■ ■ Öll svið Landspítala ■ ■ Starfsmenn geðsviðs 292 er heildarfj öldi ofb eldisatvika sem snertu starfs fólk Landspítala árið 2013 190 atvikanna snertu starfs fólk geðsviðs, eða 65% AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SVONA ERUM VIÐ Soff ía Sveinsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá FÍNASTA SUMARVEÐUR Í dag má búast við hægum vindi á landinu, yfirleitt skýjuðu sunnan og austan til en björtu N- og NV-til framan af degi. Þykknar heldur upp síðdegis vestan til og líkur á sídegisskúrum. Hlýjast inn til landsins norðanlands. 12° 2 m/s 13° 8 m/s 15° 4 m/s 11° 8 m/s Strekk- ingur allra syðst, annars, hæg breytileg átt. Hæg S-læg eða breytileg átt. Gildistími korta er um hádegi 23° 30° 23° 25° 17° 21° 28° 20° 20° 24° 24° 34° 27° 31° 33° 23° 21° 27° 11° 4 m/s 10° 6 m/s 12° 3 m/s 10° 6 m/s 14° 2 m/s 12° 2 m/s 8° 4 m/s 13° 12° 14° 10° 10° 12° 17° 13° 18° 15° Alicante Aþena Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur LAUGARDAGUR Á MORGUN SVEITARSTJÓRNIR Sýslumaðurinn í Reykjavík hefur skipað þriggja manna nefnd til að fjalla um kæru- mál Björgvins E. Vídalín, for- manns Dögunar, vegna lögheimil- isskráningar Sveinbjargar Birnu Sveinbjörnsdóttur, oddvita Fram- sóknarflokksins í Reykjavík. RÚV greindi frá ákvörðun sýslumanns í gær. Nefndin hefur tvær vikur til að rannsaka málið. Björgvin heldur því fram að Sveinbjörg hafi átt afdrep í Reykjavík en ekki raunveru- legt heimili. Yfirkjörstjórn Reykjavíkur hafði til skoðun- ar, á fundi stjórn- arinnar þann 11. maí, hvort Svein- björg uppfyllti kjörgengisskil- yrði í Reykjavík eftir að haft var eftir henni í fjöl- miðlum að hún byggi í Kópavogi, en hún er með skráð lögheimili í Reykjavík, þar sem hún var í framboði. Þar sem ákvörðun um réttmæti lögheimilisskráningar frambjóð- enda heyrir ekki að lögum undir yfirkjörstjórn var kjörgengi Svein- bjargar úrskurðað gilt. Yfirkjörstjórn sendi þó ábend- ingu til Þjóðskrár Íslands, með vísan til góðra stjórnsýsluhátta. Eftir því sem næst verður kom- ist er Þjóðskrá enn að kanna hvar Sveinbjörg Birna býr. - jme Sýslumaðurinn í Reykjavík skipar nefnd til að kanna lögheimili Sveinbjargar: Úrskurðar að vænta eftir 14 daga SVEINBJÖRG BIRNA SVEIN- BJÖRNSDÓTTIR TEKIST Á Meðlimur kirkjunnar borinn burt af lögreglu á meðan leit er gerð að Byung-eun. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SUÐUR-KÓREA Um sex þúsund lög- reglumenn réðust inn í húsa- þyrpingu í borginni Anseong í Suður-Kóreu í gær í leit að millj- arðamæringnum Yoo Byung-eun. Hann er eftirlýstur í tengslum við ferjuslysið í Sewol í apríl. BBC greinir frá þessu. Húsa- þyrpingin hýsir kirkju í eigu Byung-eun, sem einnig er talinn eiga fyrirtækið sem rak ferjuna sem sökk. Að minnsta kosti 292 létu lífið í slysinu en réttarhöld hófust á þriðjudag yfir fimmtán áhafnarmeðlimum ferjunnar. - bá Umfangsmikil leit í S-Kóreu: Þúsundir gera leit að auðjöfri DÓMSTÓLAR Tómas H. Heiðar var kjörinn dómari við Alþjóðlega hafréttardóminn á fundi aðildar- ríkja hafréttar- samnings Sam- einuðu þjóðanna í New York, í gær. Hafréttardóm- urinn hefur aðset- ur í Hamborg og er skipaður 21 dómara, þar af þremur frá Vest- urlöndum. Tómas tekur við dómaraemb- ættinu 1. október en hann var kjörinn til níu ára. - jme Tekur við dómaraembætti: Kosinn í hafrétt- ardómstólinn TÓMAS H. HEIÐAR SAMGÖNGUR Innanríkisráðuneyt- ið hefur komist að þeirri niður- stöðu að Samgöngustofu hafi ekki verið heimilt að banna Svifflug- félagi Íslands að flytja lausar kennslustofur sem félagið keypti af Reykjavíkurborg upp á Sand- skeið. Leyfi þurfti frá Vegagerðinni, nú Samgöngustofu, til að flytja stofurnar. Samgöngustofa hafn- aði flutningunum nema Kópa- vogur veitti samþykki sem fékkst ekki. - jme Mega flytja lausar stofur: Ráðuneyti snýr við úrskurði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.