Fréttablaðið - 12.06.2014, Page 10
12. júní 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 10
Gott bragð af
alvöru hnetum
www.ricedream.eu
STJÓRNSÝSLA Aagot Vigdís Óskars-
dóttir, lögfræðingur og lektor við
Háskólann á Bifröst, segir það ekki
rétt hjá jarðadeild fjármálaráðu-
neytisins að niðurstaða umboðs-
manns Alþingis varðandi leigu
ábúanda á ríkisjörð hafi ekki áhrif
á leigugjald á öðrum ríkisjörðum
og -lóðum.
„Ég stóð í bréfaskriftum við ráðu-
neyti – fyrst ráðuneyti landbúnað-
armála og síðar fjármála- og efna-
hagsráðuneyti – í rúmlega tvö ár
vegna hækkunar leigugjalds fyrir
litla lóð á Fljótsdalshéraði sem við,
hópur frændsystkina, höfum á leigu.
Á lóðinni stendur lítið steinhús sem
afi okkar byggði á fjórða áratug
síðustu aldar og er nú í okkar eigu.
Hækkunin sem ráðuneytið ákvað
einhliða og tilkynnti okkur um árið
2011 nam rúmlega 300 prósentum,“
segir Aagot.
Að sögn Aagotar reyndi hún í tvö
ár að leiða embættismönnum ráðu-
neytisins fyrir sjónir að ráðuneyt-
ið hefði ekki lagaheimild til að taka
einhliða ákvörðun um hækkunina.
Engin rök hafi dugað á ráðuneytis-
menn.
„Að lokum brugðum við á það ráð
að leggja málið fyrir umboðsmann
Alþingis. Hann hefur nú lokið athug-
un sinni á máli okkar, samhliða, og
með vísan til, álitsins sem sagt var
frá í Fréttablaðinu [í gær] og endur-
speglar niðurstaða hans það sem ég
hef reynt að segja ráðuneytinu síðan
2011,“ segir Aagot.
Í málinu sem Fréttablaðið sagði
frá í gær og er frá Skaftárhreppi
sagði umboðsmaður Alþingis enga
lagaheimild fyrir reglunum sem
ríkið setti um leiguhækkun í júlí
2011.
„Með hliðsjón af tilmælum
umboðsmanns Alþingis um að ráðu-
neytið endurskoði almennt þá fram-
kvæmd sem þarna er um að ræða,
átti ég von á að þar á bæ gengju
menn í að vinda ofan af lögleys-
unni. Ég bjóst satt að segja við því
að ráðuneytið hefði samband við
alla þá sem sættu ólögmætri hækk-
un og gerði þeim grein fyrir málinu,
bæðist afsökunar og endurgreiddi
síðan ofgreidda leigu,“ segir Aagot
sem reyndist ekki sannspá um þetta
atriði.
„Ég varð því fyrir verulegum
vonbrigðum þegar ég sá það sem
haft var eftir talsmanni fjármála-
og efnahagsráðuneytisins í Frétta-
blaðinu í gær. Þar var fullyrt að mál
það sem sagt var frá í frétt blaðs-
ins væri einstakt og að álit umboðs-
manns hefði ekki áhrif á leigu ann-
arra ríkisjarða. Þetta er ekki rétt,“
fullyrðir Aagot.
Mistök geta alltaf orðið í stjórn-
sýslunni að sögn Aagotar. Þá eigi
viðkomandi stjórnvald og starfs-
menn þess að leita allra leiða til að
leiðrétta það sem miður hefur farið
og læra af mistökunum. Ráðuneyt-
ið hljóti að verða, með vísan til
jafnræðissjónarmiða, að endur-
skoða málið í heild en ekki láta við
það sitja að leiðrétta það eingöngu
gagnvart þeim einstaklingum sem
komnir séu með álit umboðsmanns
Alþingis í hendur.
„Ég skora á alla þá sem sætt hafa
ólögmætri hækkun leiguverðs fyrir
ríkisjarðir á grundvelli nefndra
reglna að þrýsta á ráðuneytið um
leiðréttingu,“ segir Aagot.
Óskar Páll Óskarsson, starfsmað-
ur jarðadeildar fjármálaráðuneyt-
isins, segir málið sem Fréttablaðið
sagði frá í gær það eina sinnar teg-
undar sem umboðsmaður hafi sent
til ráðuneytisins. Það sé einstakt
vegna þess að í samningi um jörð-
ina frá 1985 sé ekki almennt endur-
skoðunarákvæði eins og tíðkist.
„Ég á alveg von á að við fáum ein-
hver bréf þar sem menn eru að óska
eftir að þeirra hækkun verði aftur-
kölluð á grundvelli þessa álits og
það er þá okkar að skoða það,“ segir
Óskar. „Ég þykist vita að menn
bendi á að þetta sé fordæmi og það
er þá okkur að sýna fram á að þetta
sé ekki fordæmi.“ gar@frettabladid.is
Leiguliðar krefjist endurgreiðslu
Lögfræðingur sem ásamt frændsystkinum leigir lóð af ríkinu undir hús sem afi þeirra reisti austur á landi segir vonbrigði að fjármálaráðu-
neytið segi nýtt álit umboðsmanns Alþingis um ólögmæta hækkun jarðarleigu ekki eiga við í öðrum málum og skorar á aðra leiguliða að
krefjast leiðréttingar. Starfsmaður jarðadeildar ríkisins á von á kröfubréfum en að sýnt verði fram á að málið sé ekki fordæmisgefandi.
Ég bjóst
satt að segja
við því að
ráðuneytið
hefði samband
við alla þá
sem sættu
ólögmætri hækkun og
gerði þeim grein fyrir
málinu, bæðist afsökunar
og endurgreiddi síðan
ofgreidda leigu.
Aagot Vigdís Óskarsdóttir
lögfræðingur
Á HÉRAÐI Leiga fyrir lóð með litlu steinhúsi hækkaði um 300 prósent. Myndin er af annarri jörð á Fljótsdalshéraði.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM