Fréttablaðið - 12.06.2014, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 12.06.2014, Blaðsíða 10
12. júní 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 10 Gott bragð af alvöru hnetum www.ricedream.eu STJÓRNSÝSLA Aagot Vigdís Óskars- dóttir, lögfræðingur og lektor við Háskólann á Bifröst, segir það ekki rétt hjá jarðadeild fjármálaráðu- neytisins að niðurstaða umboðs- manns Alþingis varðandi leigu ábúanda á ríkisjörð hafi ekki áhrif á leigugjald á öðrum ríkisjörðum og -lóðum. „Ég stóð í bréfaskriftum við ráðu- neyti – fyrst ráðuneyti landbúnað- armála og síðar fjármála- og efna- hagsráðuneyti – í rúmlega tvö ár vegna hækkunar leigugjalds fyrir litla lóð á Fljótsdalshéraði sem við, hópur frændsystkina, höfum á leigu. Á lóðinni stendur lítið steinhús sem afi okkar byggði á fjórða áratug síðustu aldar og er nú í okkar eigu. Hækkunin sem ráðuneytið ákvað einhliða og tilkynnti okkur um árið 2011 nam rúmlega 300 prósentum,“ segir Aagot. Að sögn Aagotar reyndi hún í tvö ár að leiða embættismönnum ráðu- neytisins fyrir sjónir að ráðuneyt- ið hefði ekki lagaheimild til að taka einhliða ákvörðun um hækkunina. Engin rök hafi dugað á ráðuneytis- menn. „Að lokum brugðum við á það ráð að leggja málið fyrir umboðsmann Alþingis. Hann hefur nú lokið athug- un sinni á máli okkar, samhliða, og með vísan til, álitsins sem sagt var frá í Fréttablaðinu [í gær] og endur- speglar niðurstaða hans það sem ég hef reynt að segja ráðuneytinu síðan 2011,“ segir Aagot. Í málinu sem Fréttablaðið sagði frá í gær og er frá Skaftárhreppi sagði umboðsmaður Alþingis enga lagaheimild fyrir reglunum sem ríkið setti um leiguhækkun í júlí 2011. „Með hliðsjón af tilmælum umboðsmanns Alþingis um að ráðu- neytið endurskoði almennt þá fram- kvæmd sem þarna er um að ræða, átti ég von á að þar á bæ gengju menn í að vinda ofan af lögleys- unni. Ég bjóst satt að segja við því að ráðuneytið hefði samband við alla þá sem sættu ólögmætri hækk- un og gerði þeim grein fyrir málinu, bæðist afsökunar og endurgreiddi síðan ofgreidda leigu,“ segir Aagot sem reyndist ekki sannspá um þetta atriði. „Ég varð því fyrir verulegum vonbrigðum þegar ég sá það sem haft var eftir talsmanni fjármála- og efnahagsráðuneytisins í Frétta- blaðinu í gær. Þar var fullyrt að mál það sem sagt var frá í frétt blaðs- ins væri einstakt og að álit umboðs- manns hefði ekki áhrif á leigu ann- arra ríkisjarða. Þetta er ekki rétt,“ fullyrðir Aagot. Mistök geta alltaf orðið í stjórn- sýslunni að sögn Aagotar. Þá eigi viðkomandi stjórnvald og starfs- menn þess að leita allra leiða til að leiðrétta það sem miður hefur farið og læra af mistökunum. Ráðuneyt- ið hljóti að verða, með vísan til jafnræðissjónarmiða, að endur- skoða málið í heild en ekki láta við það sitja að leiðrétta það eingöngu gagnvart þeim einstaklingum sem komnir séu með álit umboðsmanns Alþingis í hendur. „Ég skora á alla þá sem sætt hafa ólögmætri hækkun leiguverðs fyrir ríkisjarðir á grundvelli nefndra reglna að þrýsta á ráðuneytið um leiðréttingu,“ segir Aagot. Óskar Páll Óskarsson, starfsmað- ur jarðadeildar fjármálaráðuneyt- isins, segir málið sem Fréttablaðið sagði frá í gær það eina sinnar teg- undar sem umboðsmaður hafi sent til ráðuneytisins. Það sé einstakt vegna þess að í samningi um jörð- ina frá 1985 sé ekki almennt endur- skoðunarákvæði eins og tíðkist. „Ég á alveg von á að við fáum ein- hver bréf þar sem menn eru að óska eftir að þeirra hækkun verði aftur- kölluð á grundvelli þessa álits og það er þá okkar að skoða það,“ segir Óskar. „Ég þykist vita að menn bendi á að þetta sé fordæmi og það er þá okkur að sýna fram á að þetta sé ekki fordæmi.“ gar@frettabladid.is Leiguliðar krefjist endurgreiðslu Lögfræðingur sem ásamt frændsystkinum leigir lóð af ríkinu undir hús sem afi þeirra reisti austur á landi segir vonbrigði að fjármálaráðu- neytið segi nýtt álit umboðsmanns Alþingis um ólögmæta hækkun jarðarleigu ekki eiga við í öðrum málum og skorar á aðra leiguliða að krefjast leiðréttingar. Starfsmaður jarðadeildar ríkisins á von á kröfubréfum en að sýnt verði fram á að málið sé ekki fordæmisgefandi. Ég bjóst satt að segja við því að ráðuneytið hefði samband við alla þá sem sættu ólögmætri hækkun og gerði þeim grein fyrir málinu, bæðist afsökunar og endurgreiddi síðan ofgreidda leigu. Aagot Vigdís Óskarsdóttir lögfræðingur Á HÉRAÐI Leiga fyrir lóð með litlu steinhúsi hækkaði um 300 prósent. Myndin er af annarri jörð á Fljótsdalshéraði. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.