Fréttablaðið - 12.06.2014, Qupperneq 22
12. júní 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR VIÐSKIPTI | 22
Seðla-
bankinn er nú
að setja gjald-
eyriskaupin
aftur í fastan
farveg en
bankinn vill
augljóslega ekki sjá
krónuna sterkari í bráð.
Ingólfur Bender,
forstöðumaður Greiningar Íslandsbanka
RAGNHEIÐUR
HALLUR
ELÍSABET
„Meginatriðið er að Seðlabankinn er
að nýta gjaldeyrisinnflæði sumars-
ins til að styrkja gjaldeyrisforðann.
Ákvörðunin gerir það að verkum að
krónan verður veikari en ella og þá
myndast ekki jafn mikið svigrúm til
að hafa stýrivexti lægri vegna þess
að það kemur niður á verðbólgunni,“
segir Ingólfur Bender, forstöðu-
maður Greiningar Íslandsbanka,
um ákvörðun Seðlabankans um að
hefja regluleg gjaldeyriskaup á ný.
Seðlabankinn ætlar að kaupa
þrjár milljónir evra, rúmar 465
milljónir króna, á gjaldeyrismark-
aði í hverri viku út september.
Bankinn hætti reglulegum gjald-
eyriskaupum í árslok 2012. Hann
hefur þó frá maímánuði 2013 keypt
288 milljónir evra, að jafnvirði
45,1 milljarði króna, í því skyni að
draga úr sveiflum á gengi krónunn-
ar. Á þessu ári hefur bankinn keypt
rúmar níu milljónir evra á viku
að meðaltali, eða þrefalt meira en
það sem stefnt er að með reglulegu
kaupunum.
„Seðlabankinn er nú að setja
gjaldeyriskaupin aftur í fastan far-
veg en bankinn vill augljóslega ekki
sjá krónuna sterkari í bráð. Núna
þegar verðbólgumarkmiðið er í
höfn finnst mér eðlilegt að bankinn
sé að leggja áherslu á að byggja upp
gjaldeyrisvarasjóðinn. Hann þarf
að vera tiltölulega mikið stærri
þegar kemur að afnámi gjaldeyris-
hafta, ef hann á að nýtast til að verja
stöðugleikann á gjaldeyrismarkaði,“
segir Ingólfur.
Már Guðmundsson seðlabanka-
stjóri gerði grein fyrir ákvörðun-
inni á fundi bankans í gær þar sem
ákvörðun peningastefnunefndar um
að halda stýrivöxtum óbreyttum var
kynnt. Már sagði svo geta farið að
bankinn keypti einnig gjaldeyri í
óreglulegum kaupum á næstu mán-
uðum.
„Markmiðið með þessum gjald-
eyriskaupum er ekki það í sjálfu
sér að hafa áhrif á gengi krónunnar,
þó þetta hafi það kannski með ein-
hverjum beinum eða óbeinum hætti.
… Við höfum tvö verkefni. Annars
vegar að halda verðbólgunni við
markmið og hins vegar viljum við
yfir tíma safna gjaldeyri til þess
að breyta gjaldeyrisforða okkar úr
skuld við erlenda aðila yfir í skuld
við innlenda aðila,“ sagði Már.
Hann sagði gjaldeyrisvið skipti
Seðlabankans á síðastliðnum tólf
mánuðum hafa stuðlað að auknum
stöðugleika krónunnar. Már sagði
gjaldeyriskaupin ekki koma í stað
vaxtahækkana, þegar Hafsteinn
Hauksson, sérfræðingur hjá grein-
ingardeild Arion banka, spurði
hvort svo gæti farið.
„Við viljum frekar nota svigrúmið
til að safna gjaldeyri heldur en að
lækka vexti. Það er líka í ljósi stöð-
unnar varðandi horfur um að við-
skiptaafgangurinn sé að hverfa,“
sagði Már. haraldur@frettabladid.is
Seðlabankinn safnar gjaldeyri
í stað þess að lækka stýrivexti
Regluleg gjaldeyriskaup Seðlabankans hefjast að nýju í næstu viku. Bankinn ætlar að kaupa þrjár milljónir
evra í hverri viku. Markmiðið ekki að hafa áhrif á gengi krónunnar, sagði Már Guðmundsson seðlabankastjóri.
SEÐLABANKASTJÓRI Már Guðmundsson kynnti í gær ákvörðun peningastefnu-
nefndar um að halda stýrivöxtum óbreyttum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hagfræðideild Landsbankans
spáir því að húsnæðisverð eigi
eftir að hækka um níu prósent
á þessu ári. Verðið muni síðan
hækka um 7,5 prósent á árinu
2015 og sjö prósent á árinu 2016.
„Verð á fasteignum hefur
hækkað mikið að undanförnu
og viðskipti eru enn að aukast.
Framboð á nýju húsnæði er lítið
og því fóðrar meiri eftirspurn
verðhækkanir,“ segir í nýjustu
Hagsjá hagfræðideildarinnar.
Þar segir einnig að fjármunir
sem koma frá öðrum löndum í
gegnum fjárfestingarleið Seðla-
bankans hafi greinilega áhrif á
fasteignamarkaðinn. - hg
Viðskiptin enn að aukast:
Spáir hækkun
húsnæðisverðs
Útflutningsfyrirtækið Marel
kynnti á þriðjudag áform um að
segja upp 50–60 starfsmönnum í
Hollandi.
Uppsagnirnar eru liður í endur-
skipulagningu á starfsemi Marel
í landinu. Starfsemin mun flytj-
ast frá borginni Oss til bæjarins
Boxmeer í suðurhluta Hollands.
Um 140 starfsmenn störfuðu
hjá Marel í Oss en starfsemin er
einkum bundin við kjötiðnað og
framleiðslu. Fyrirtækið vinnur
nú að drögum að áætlun til að
styðja við þá starfsmenn sem
aðgerðirnar hafa áhrif á. - hg
Breytt starfsemi í Hollandi:
Marel segir upp
50–60 manns