Fréttablaðið - 12.06.2014, Síða 25

Fréttablaðið - 12.06.2014, Síða 25
FIMMTUDAGUR 12. júní 2014 | SKOÐUN | 25 ATVINNA Helgi Hjörvar alþingismaður (Samfylkingin), Íslandi Gunvor Eldegard þingmaður (Verkamannafl okkurinn), Noregi Ruth Grung þingmaður (Verkamannafl okkurinn), Noregi Tarja Filatov þingmaður ( Jafnaðarmannafl okkurinn), Finnlandi Billy Gustafsson þingmaður ( Jafnaðarmannafl okkurinn), Svíþjóð Anders Karlsson þingmaður ( Jafnaðarmannafl okkurinn), Svíþjóð Jakob Esmann forseti Norðurlandaráðs æskunnar, Dan- mörku Eitt mikilvægasta verkefni nor- rænu velferðarsamfélaganna er að takast á við atvinnuleysi ungs fólks. Ungt fólk sem ekki nær fót- festu á vinnumarkaði á enda á hættu að lenda utangarðs í samfé- laginu allt sitt líf. Fyrir utan þann persónulega harmleik sem slíkt hefur í för með sér fer samfélagið jafnframt á mis við mikil verð- mæti sem mannauður þessa unga fólks er. En á okkar fjölhæfu og vel menntuðu einstaklingum byggist eitt helsta samkeppnisforskot Norðurlandanna á vinnumarkaði. Til að takast á við atvinnuleysi ungs fólks þurfum við bæði efna- hags- og atvinnustefnu sem gerir ráð fyrir fullri atvinnuþátttöku og sértækar aðgerðir til að tryggja ungu fólki atvinnu. Norðurlönd- in geta mikið lært hvert af öðru þegar kemur að atvinnuleysi ungs fólks og sem betur fer er mikið norrænt samstarf á þessum svið- um. Norræni hugmyndabankinn um brottfall úr framhaldsnámi er gott dæmi þar um. Menntun, menntun, menntun Menntun borgar sig. Því meiri menntun sem maður hefur, þeim mun minni eru líkurnar á að lenda í atvinnuleysi. Þess vegna er það menntakerfið sem mestu máli skiptir. Allt ungt fólk á að hafa möguleika á að mennta sig í samræmi við kröfur dagsins og þar er mikilvægt að tengingin við atvinnulífið sé sterk. Fæstir koma einnig til með að starfa á sama sviði allt sitt líf og því er mikil- vægt að allir fái breiða menntun og þar með sterkan grunn til að standa á. Þá getur maður auðveld- ar bætt síðar við eða breytt um stefnu. Grunnskólamenntun dugar fæst- um á vinnumarkaði í dag. Þó eru margir undir 25 ára aldri sem hvorki stunda nám né hafa lokið framhaldsmenntun. Fjöldinn er nokkuð breytilegur milli Norður- landanna enda menntakerfin og aðstæður á vinnumarkaði mis- munandi. Við getum ýmislegt lært af norska og danska menntakerf- inu sem gerir leiðina frá námi til vinnu auðveldari en hjá öðrum og í Svíþjóð gefur öflugt endurmennt- unarkerfi þeim sem flosna upp í námi mikilvægt annað tækifæri. Í Finnlandi hafa jafnaðarmenn nú fengið samþykkt að skólaskyld- an verður lengd um eitt ár. Þetta þýðir að framvegis munu allir í Finnlandi hefja einhvers konar framhaldsnám að grunnskóla lokn- um. Þetta mun auðvitað ekki koma í veg fyrir allt brottfall úr námi, en ætti að minnka það umtalsvert. Innan 90 daga Margháttaðar aðgerðir ríkis- stjórnar jafnaðarmanna á Íslandi til að koma í veg fyrir atvinnu- leysi ungs fólks í kjölfar krepp- unnar skiluðu góðum árangri, ekki síst tilboð um framhalds- nám og tímabundin störf. Sænskir jafnaðarmenn ganga til kosninga í haust með fyrir heit til ungs fólks um „90 daga tryggingu“. Í Finn- landi komu jafnaðarmenn á svip- aðri ungmennatryggingu sem frá árinu 2013 hefur tryggt að allir undir 25 ára aldri eða allir nýút- skrifaðir undir 30 ára aldri sem ekki fá vinnu, fái tilboð um starf, starfsnám eða menntunarúrræði innan þriggja mánaða. Ólík form af ungmennatrygg- ingum hafa staðið til boða á Norð- urlöndunum í gegnum tíðina, en hingað til hafa þau aðallega beinst að mjög ungu fólki eða þeim sem hafa verið lengi án atvinnu. Við eigum hins vegar ekki að bíða, heldur hjálpa öllum ungmennum sem ekki fá vinnu sem fyrst. Ung- mennatryggingar krefjast vissu- lega fjármagns og þátttöku og nýrrar hugsunar hjá mörgum ólík- um aðilum, en þær eru vafalaust þess virði. Samhliða verðum við síðan að skapa ný góð störf. En það er ekki alltaf nóg að bjóða störf eða námsúrræði. Tals- verður fjöldi ungs fólks getur ekki nýtt sér nám eða tekið virkan þátt á vinnumarkaði vegna veikinda eða tímabundinna áskorana. Þess- um hópi þurfum við að mæta með einstaklingsbundnum stuðningi eins og þurfa þykir. Norrænn vinnumarkaður mikilvægur Norðurlöndin fagna nú 60 ára sam- eiginlegum vinnumarkaði. Hann hefur skilað okkur miklum árangri og framförum og hundruð þúsunda Norðurlandabúa hafa nýtt sér möguleikann á að flytja sig á milli landa til lengri og skemmri tíma þar sem atvinnutækifærin bjóðast. Enn í dag virkar norræni vinnu- markaðurinn eins og slíkur ventill milli landanna, eins og t.d. má sjá af fjölda sænskra ungmenna sem í dag sækja vinnu til Noregs. Norrænir jafnaðarmenn vilja standa vörð um samnorrænan vinnumarkað og við viljum sjá til þess að ungt fólk geti nýtt sér þá möguleika sem þar finnast til fullnustu. Þess vegna leggja norrænir jafnaðarmenn einnig áherslu á að fjarlægja landamæra- hindranir, auka norrænan tungu- málaskilning og styðja áfram verkefni eins og Nordjobb. Ungt fólk til vinnu Við getum ýmis- legt lært af norska og danska menntakerfinu sem gerir leiðina frá námi til vinnu auðveldari en hjá öðrum...

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.