Fréttablaðið - 12.06.2014, Qupperneq 25
FIMMTUDAGUR 12. júní 2014 | SKOÐUN | 25
ATVINNA
Helgi Hjörvar
alþingismaður (Samfylkingin), Íslandi
Gunvor Eldegard
þingmaður (Verkamannafl okkurinn), Noregi
Ruth Grung
þingmaður (Verkamannafl okkurinn), Noregi
Tarja Filatov
þingmaður ( Jafnaðarmannafl okkurinn),
Finnlandi
Billy Gustafsson
þingmaður ( Jafnaðarmannafl okkurinn),
Svíþjóð
Anders Karlsson
þingmaður ( Jafnaðarmannafl okkurinn),
Svíþjóð
Jakob Esmann
forseti Norðurlandaráðs æskunnar, Dan-
mörku
Eitt mikilvægasta verkefni nor-
rænu velferðarsamfélaganna er
að takast á við atvinnuleysi ungs
fólks. Ungt fólk sem ekki nær fót-
festu á vinnumarkaði á enda á
hættu að lenda utangarðs í samfé-
laginu allt sitt líf. Fyrir utan þann
persónulega harmleik sem slíkt
hefur í för með sér fer samfélagið
jafnframt á mis við mikil verð-
mæti sem mannauður þessa unga
fólks er. En á okkar fjölhæfu og vel
menntuðu einstaklingum byggist
eitt helsta samkeppnisforskot
Norðurlandanna á vinnumarkaði.
Til að takast á við atvinnuleysi
ungs fólks þurfum við bæði efna-
hags- og atvinnustefnu sem gerir
ráð fyrir fullri atvinnuþátttöku og
sértækar aðgerðir til að tryggja
ungu fólki atvinnu. Norðurlönd-
in geta mikið lært hvert af öðru
þegar kemur að atvinnuleysi ungs
fólks og sem betur fer er mikið
norrænt samstarf á þessum svið-
um. Norræni hugmyndabankinn
um brottfall úr framhaldsnámi er
gott dæmi þar um.
Menntun, menntun, menntun
Menntun borgar sig. Því meiri
menntun sem maður hefur, þeim
mun minni eru líkurnar á að
lenda í atvinnuleysi. Þess vegna
er það menntakerfið sem mestu
máli skiptir. Allt ungt fólk á að
hafa möguleika á að mennta sig
í samræmi við kröfur dagsins og
þar er mikilvægt að tengingin við
atvinnulífið sé sterk. Fæstir koma
einnig til með að starfa á sama
sviði allt sitt líf og því er mikil-
vægt að allir fái breiða menntun
og þar með sterkan grunn til að
standa á. Þá getur maður auðveld-
ar bætt síðar við eða breytt um
stefnu.
Grunnskólamenntun dugar fæst-
um á vinnumarkaði í dag. Þó eru
margir undir 25 ára aldri sem
hvorki stunda nám né hafa lokið
framhaldsmenntun. Fjöldinn er
nokkuð breytilegur milli Norður-
landanna enda menntakerfin og
aðstæður á vinnumarkaði mis-
munandi. Við getum ýmislegt lært
af norska og danska menntakerf-
inu sem gerir leiðina frá námi til
vinnu auðveldari en hjá öðrum og
í Svíþjóð gefur öflugt endurmennt-
unarkerfi þeim sem flosna upp í
námi mikilvægt annað tækifæri.
Í Finnlandi hafa jafnaðarmenn
nú fengið samþykkt að skólaskyld-
an verður lengd um eitt ár. Þetta
þýðir að framvegis munu allir í
Finnlandi hefja einhvers konar
framhaldsnám að grunnskóla lokn-
um. Þetta mun auðvitað ekki koma
í veg fyrir allt brottfall úr námi,
en ætti að minnka það umtalsvert.
Innan 90 daga
Margháttaðar aðgerðir ríkis-
stjórnar jafnaðarmanna á Íslandi
til að koma í veg fyrir atvinnu-
leysi ungs fólks í kjölfar krepp-
unnar skiluðu góðum árangri,
ekki síst tilboð um framhalds-
nám og tímabundin störf. Sænskir
jafnaðarmenn ganga til kosninga
í haust með fyrir heit til ungs fólks
um „90 daga tryggingu“. Í Finn-
landi komu jafnaðarmenn á svip-
aðri ungmennatryggingu sem frá
árinu 2013 hefur tryggt að allir
undir 25 ára aldri eða allir nýút-
skrifaðir undir 30 ára aldri sem
ekki fá vinnu, fái tilboð um starf,
starfsnám eða menntunarúrræði
innan þriggja mánaða.
Ólík form af ungmennatrygg-
ingum hafa staðið til boða á Norð-
urlöndunum í gegnum tíðina, en
hingað til hafa þau aðallega beinst
að mjög ungu fólki eða þeim sem
hafa verið lengi án atvinnu. Við
eigum hins vegar ekki að bíða,
heldur hjálpa öllum ungmennum
sem ekki fá vinnu sem fyrst. Ung-
mennatryggingar krefjast vissu-
lega fjármagns og þátttöku og
nýrrar hugsunar hjá mörgum ólík-
um aðilum, en þær eru vafalaust
þess virði. Samhliða verðum við
síðan að skapa ný góð störf.
En það er ekki alltaf nóg að
bjóða störf eða námsúrræði. Tals-
verður fjöldi ungs fólks getur ekki
nýtt sér nám eða tekið virkan þátt
á vinnumarkaði vegna veikinda
eða tímabundinna áskorana. Þess-
um hópi þurfum við að mæta með
einstaklingsbundnum stuðningi
eins og þurfa þykir.
Norrænn vinnumarkaður
mikilvægur
Norðurlöndin fagna nú 60 ára sam-
eiginlegum vinnumarkaði. Hann
hefur skilað okkur miklum árangri
og framförum og hundruð þúsunda
Norðurlandabúa hafa nýtt sér
möguleikann á að flytja sig á milli
landa til lengri og skemmri tíma
þar sem atvinnutækifærin bjóðast.
Enn í dag virkar norræni vinnu-
markaðurinn eins og slíkur ventill
milli landanna, eins og t.d. má sjá
af fjölda sænskra ungmenna sem í
dag sækja vinnu til Noregs.
Norrænir jafnaðarmenn vilja
standa vörð um samnorrænan
vinnumarkað og við viljum sjá
til þess að ungt fólk geti nýtt sér
þá möguleika sem þar finnast
til fullnustu. Þess vegna leggja
norrænir jafnaðarmenn einnig
áherslu á að fjarlægja landamæra-
hindranir, auka norrænan tungu-
málaskilning og styðja áfram
verkefni eins og Nordjobb.
Ungt fólk til vinnu
Við getum ýmis-
legt lært af norska
og danska menntakerfinu
sem gerir leiðina frá námi
til vinnu auðveldari en hjá
öðrum...