Fréttablaðið - 12.06.2014, Síða 26

Fréttablaðið - 12.06.2014, Síða 26
12. júní 2014 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 26 Enginn er sár, hvað þá gramur, nei, það er helst að maður fyllist sorg – sorg yfir því að horfa upp á enn einn faraldurinn ríða húsum skefjalaust í okkar krump- aða og um margt vanþróaða samfélagi. Nú heitir farald- urinn; Hótel má vera í öðru hverju húsi í 101. Borgarkerfið tekur þátt í að bera smitið út með því að horfa aðeins til stund- argræðgissjónarmiða. Kerfið stundar blekkingarleiki í kynn- ingu á fyrirhuguðum breytingum á reitnum Grettisgötu 17 auk lóð- anna fyrir norðan reitinn. Þar sem t.d. reiturinn er ekki nefndur með nafni heldur 1.7.2.2. og er að auki auglýstur í Fréttablaðinu 23.12.13, já, á Þorláksmessu. Þannig er engu líkara en stjórn- völd gangi til liðs við gíruga fjár- festa sem krefjast ávöxtunar með ljóshraða og hafa gjarnan enga til- finningu fyrir umhverfi, væntan- legu raski, lífi, framtíð eða sögu borgarhlutans. Hótellóðarreitirn- ir eru gjarnan fylltir með of miklu byggingarmagni og oftar en ekki fylgja smekklausar lausnir (eins og dæmin sanna). Ef framkvæmdir vegna Grettis- götu 17 ganga eftir mun fylgja því heilmikið rask, jafnvel rask sem skaðað getur nærliggjandi hús, fyrir utan aðrar afleiðingar. Nú er svo komið að í Grettisgötu einni eru 12 gistihús og enn fjölgar þeim. Afleiðingin af þessu er aug- ljós; göturnar fyllast af rútum og bílaleigubílum sem þjónusta ferða- menn. Skröltandi ferðatöskur lið- langan sólarhringinn setja mark sitt á hljóðheiminn og ekki síður hið sýnilega. Eftirlátssemi og stjórnleysi Nú á að farga gömlum og fallegum silfurreyni – óbeint er vegið að tilvist íbúanna sem fyrir eru í 101 – það er verið að tak- marka lífsgæði þeirra og það sem meira er, það er verið að lækka verðgildi og gæði húsa þeirra, hver vill þegar upp er staðið búa í þyrpingu hótela – hér á að byggja ofan í jörðina og láta gamalt hús þjóna sem fortjald með því að flytja það að götu, en reisa stærri byggingar innar í lóð- inni að húsum við Laugaveg. Verstur verður fylgikvillinn sem er að þjónustan við íbúana fer þverrandi – þegar ber á þessu og ef fram heldur sem horfir þá er stutt í að íbúarnir flytji í burtu. Hvað stendur þá eftir, þegar 101 verður orðinn að samfelldri byggð gistihúsa þar sem ferðamenn gapa hver upp í annan. Skynsemi segir að þetta beri að takmarka – það sé ráðlegt að búa til regluverk um hvers konar hótel eigi að vera í 101 og hvað þau megi vera þétt. Þessi eftirlátssemi og stjórn- leysi Reykjavíkurborgar leiðir til þess að allir tapa – íbúarnir flytjast úr hverfunum og einsleitnin verður allsráðandi í stóru og smáu – getur verið að einhver sækist í þannig umhverfi? – Nei, ekki ég og heldur ekki sá sem vill kynnast landi og þjóð á sínum ferðalögum. Gerum Grettisgötu 17 að aðlað- andi reit – litlu torgi þar sem við öll, því öll erum við ferðamenn í gegn- um þetta skarða líf – já, þar sem við öll eigum griðland undir öldr- uðum SILFURREYNI, sem enn á eftir 150 ár. Af silfurreyni og hótelfaraldri í 101 eða reitur 1.7.2.2. Í nýafstöðnum sveitar- stjórnarkosningum gerð- ust þau ömurlegu tíðindi að framboð Framsóknar- flokksins í Reykjavík sigldi undir merkjum trúarfor- dóma og andúðar á aðfluttu fólki og fékk aukið fylgi út á það. Þetta kemur ekki alveg á óvart því í mörgum nágrannalöndum okkar hefur viðlíka áróður skilað árangri, ekki síst á tímum þrenginga og upplausnar. Hér á Íslandi hafa nokkur smáframboð reynt þetta á undanförnum árum en ekki haft mikið upp úr krafsinu, þar til nú að Framsóknarflokknum tókst að safna til sín þeim sálum sem þessi andstyggðarmálflutning- ur höfðar til. Evrópumenn hafa langa og sára reynslu af svona haturs- áróðri og hvert hann getur leitt. Þess vegna hefur víða verið góð samstaða milli allra sómakærra stjórnmálaafla um það að starfa ekki með þeim flokkum, sem leita fylgis í þessum skuggalegu afkim- um þjóðarsálarinnar. Hér á landi hafa menn ekki staðið frammi fyrir slíku fyrr en nú, að nýkjörn- ir borgarfulltrúar þurfa að íhuga hvernig þeir eiga að bregðast við þessum ógæfukrákum. Sem betur fer kom það fram í aðdraganda kosninganna að aðstandendum allra hinna listanna leist afar illa á þennan málflutning Framsóknarflokksins. Þeir þurfa nú að gera upp við sig hvort þessi nýi Framsóknarflokkur er gjaldgengur í samstarfi eða hvort taka eigi hann sömu tökum og gjarnan er gert með svipaða flokka: Hafna skilyrðislaust öllu samstarfi við þá. Eina leiðin Eftir kosningar hefur vel meinandi fólk reynt að skamma Framsóknar- flokkinn fyrir að gerast málsvari þeirra mannfjandsam- legu skoðana sem þeir gerðu að sínum á lokasprettinum fyrir kosningar. Svör Framsóknar hafa hins vegar verið öll á einn veg: Það var ekkert athugavert við okkar málflutning, við meintum ekki það sem við sögðum en endurtök- um það samt, þið eruð bara að níð- ast á okkur! Þess er því varla að vænta að borgarfulltrúar Framsóknar dragi nokkuð í land með sinn ógeðfellda málflutning og frekar er hætta á að þeir eigi eftir að færast í aukana. Á þeim forsendum vil ég skora á nýkjörna borgarfulltrúa að bindast samtökum um að sniðganga Fram- sóknarflokkinn í borgarstjórn eftir megni. Á sjálfstæðismenn skora ég að mynda ekki bandalag með Framsókn þegar kosið er í ráð og nefndir og á nýjan meirihluta skora ég að gera hlut sjálfstæðismanna ekki verri í nefndum og ráðum en hann hefði orðið með samstarfi með Framsókn. Setjum Framsókn í skammar- krókinn! Það er eina leiðin til að sýna í verki að fylgi sem fæst með því að blása í glæður trúarfordóma og útlendingahaturs er einskis virði í íslenskum stjórnmálum. Setjum Framsókn í skammarkrókinn * Vegna framkvæmda eru farþegar hvattir til að mæta tímanlega MÆTTU FYRR Í FRÍIÐ Vegna endurbóta við farangursflokkunarkerfið í Flugstöð Leifs Eiríks- sonar má búast við miklu álagi við innritun til 1. júlí. Um leið og við biðjumst velvirðingar á óþægindunum hvetjum við farþega til að mæta tímanlega í flugstöðina fyrir brottför. Innritun í morgunflug hefst nú kl. 4.30. Mætum snemma og styttum biðraðirnar. Góða ferð! Mættu fyrir klukkan 5.00 á völlinn og fáðu afslátt af langtímastæðum KEF Parking við flugstöðina Gildir til 15. júní SKIPULAG Egill Ólafsson íbúi á Grettisgötu STJÓRNMÁL Freyr Þórarinsson sjálfstætt starfandi ➜ Evrópumenn hafa langa og sára reynslu af svona haturs áróðri og hvert hann getur leitt.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.