Fréttablaðið - 12.06.2014, Síða 30
FÓLK|TÍSKA
Amma mín var kjólameist-ari, mamma saumaði mikið og tengdamamma
heitin líka. Ég hef alltaf verið í
kringum saumaskap og fór ung
að sauma fötin á dúkkurnar
mínar. Saumaskapur er mitt
áhugamál,“ segir Brynja Dögg
Gunnarsdóttir. Áhugamál Brynju
vatt þó upp á sig og nú saumar
hún barnaföt, undir heitinu Agú,
í stofunni heima hjá sér.
„Ég fór að sauma á dóttur
mína fyrir rúmu ári, í fæðingar-
orlofinu. Svo fóru vinkonurnar
að panta hjá mér og þannig óx
Agú hratt. Eftir að stelpan mín
fór á leikskóla hef ég meiri tíma
og nýti líka kvöldin vel til að
klára pantanir. Ég skipti stofunni
hjá mér bara upp og bjó til pláss
þar sem ég er með fleiri en eina
saumavél uppi, til að þurfa ekki
alltaf að vera að skipta um þráð.
Svo sit ég bara við,“ segir Brynja.
„Ég hef varla undan.“
Brynja teiknar upp sniðin sjálf
en fer eftir stöðluðum stærðum.
Hún flytur sjálf inn efnin þar sem
erfitt er að finna það sem hentar
hér á landi. Flíkurnar hennar
eru komnar í sölu í versluninni
Fiðrildinu í Faxafeni og einnig
heldur Brynja úti vefverslun á
www.agu.is. Hún segist einnig
frá margar pantanir gegnum
Facebook-síðu Agú og hefur nóg
að gera.
„Ég hef til að byrja með saum-
að á yngstu börnin en er farin að
bæta við stærðum, allt upp í tíu
ára. Ég fæ pantanir á eldri krakka
og jafnvel á fullorðna líka en ég
anna því ekki enn. Þegar dóttir
mín verður eldri langar mig í
skóla og að læra eitthvað þessu
tengt og draumurinn er auðvitað
að geta opnað litla verslun með
vinnustofu á bak við. Það má
alltaf láta sig dreyma.“
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Kolbeinn Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512 5447
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
FÓR UNG AÐ SAUMA Brynja Dögg Gunnarsdóttir ólst upp við saumaskap og saumar
nú barnaföt undir heitinu Agú. MYND/GVA
AGÚ Flíkurnar fást í versluninni Fiðrildinu í Faxa-
feni á og www.agu.is. MYND/AGÚ
SUMARLEGT Fylgjast má með
Agú á www.agu.is og á Facebook.
SAUMAR Í STOFUNNI
BÖRN Brynja Dögg Gunnarsdóttir fór ung að sauma föt á dúkkurnar sínar.
Áhugamálið vatt upp á sig og nú saumar hún barnaföt undir heitinu Agú.
Sumarbuxurnar þetta árið eiga
að vera þægilegar. Þær eru þunn-
ar, skrautlegar, víðar um rass
og mjaðmir en þröngar niður.
Blómamynstur er vinsælt, en
einnig dýramynstur og rendur.
Það er í raun alveg sama hvernig
mynstrið er því buxurnar eru
fáanlegar í fjölbreyttu úrvali.
Sumar minna meira að segja á
þægilegar náttbuxur. Hægt er að
fá buxurnar sparilegar en þær
passa einstaklega vel við fallega,
hvíta skyrtu. Hér fyrir ofan má
sjá nokkrar flottar sumarbuxur.
FLOTTAR SUMARBUXUR
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Belladrs n onnaVe luni
Flott föt fyrir flottar konur
stærðir 38-58
Liverpool lagerhreinsun!
30-90% afsláttur
af öllum Liverpool vörum!
LFC Treyjur frá aðeins 1.990 - 5.990 kr.
LFC Stuttbuxur á aðeins 2.990 kr.
LFC Sokkar á aðeins 990 kr.
LFC Barnasett frá aðeins 2.990 – 4.990 kr.
LFC Jakkar og Úlpur á aðeins 5.990 kr.
ReAct / Bæjarlind 4 / Kópavogi / S: 571 9210 / www.react.is
ÉG KÆLI
CREAM
GEL
Ég er kælandi fótagel
sem dregur í sig þreytu
dagsins. Undragel fyrir
þreytta og bólgna fætur.
Flott blanda með góðum
innihaldsefnum eins og
myntu og Eucalyptus.
Made in Italy
www.master-line.eu
Fæst í apótekum og Hagkaup