Fréttablaðið - 12.06.2014, Page 38

Fréttablaðið - 12.06.2014, Page 38
12. JÚNÍ 2014 FIMMTUDAGUR6 ● HM-blaðið Þegar hinn 32 ára gamli bygg- ingaverkamaður Muhammad´Ali Maciel Afonso mætti í vinnuna fimmtudaginn 8. maí fyrr á þessu ári var það hans síðasti vinnudagur. Hann var að setja upp samskiptabúnað í hinum glænýja leikvangi Arena Pantanal í vestanverðri Brasilíu þegar hann varð fyrir raflosti. Hálftíma síðar var hann látinn. Afonso var áttundi verka- maðurinn sem lést við undir- búning heimsmeistaramótsins í knattspyrnu sem hefst í dag. Fyrr á þessu ári fóru verkamenn við Manaus-leikvanginn í verkfall til að krefjast betri vinnuaðstæðna eftir að þriðji vinnufélagi þeirra hafði látist af slysförum. Það hefur gengið á ýmsu í undirbúningnum fyrir HM. Þrátt fyrir að allir tólf leikvangarnir ættu að vera tilbúnir fyrir árslok 2013 standa framkvæmdir við nokkra þeirra enn yfir. Einnig er óvíst hvort flugvellir og aðrar samgöngur landsins verði tilbúnar til að taka á móti öllum þeim fjölda fólks sem kemur til með að heimsækja landið meðan á HM stendur. Sepp Blatter hefur lýst því yfir að á ferli sínum hjá FIFA hafi hann aldrei séð gest- gjafa vera jafn langt á eftir áætlun, jafnvel þótt Brasilía hafi fengið meiri tíma en nokkur önnur gest- gjafaþjóð til að undirbúa sig. Arena de São Paulo mun hýsa opnunarleik mótsins á milli Brasilíu og Króatíu. Þak leik- vangsins mun þó líklega ekki vera tilbúið fyrr en að mótinu loknu. Í undirbúningsleik fyrr í mánuðinum voru aðeins 40.000 miðar seldir, þótt völlurinn taki 65.000 manns í sæti. Ástæðan var sú að slökkviliðið vildi ekki hleypa áhorfendum inn á hluta vallarins af öryggisástæðum. Erfiðleikarnir við undirbúning HM munu að öllum líkindum endurtaka sig fyrir Ólympíuleik- ana í Ríó 2016. Nýlega kom fram í fréttum að flóinn, þar sem sigl- ingakeppnir leikanna munu fara fram, er og verði undirlagður rusli, skólpi og jafnvel mannslíkum og hundshræjum. En eins og staðan er núna eiga Brasilíumenn nóg með að leggja lokahönd á HM sem hefst í dag. Heimsmeistaramótið 2014 á að vera tákn um vaxandi efnahags- mátt og sterka stöðu Brasilíu í alþjóðasamfélaginu, líkt og þegar landið hélt HM síðast fyrir 64 árum. Hinir glæstu draumar þjóðarinnar urðu þá vonbrigðum að bráð, bæði á knattspyrnuvell- inum og í brasilísku samfélagi. Mun sagan endurtaka sig í ár? Á síðustu stundu Valið á Brasilíu sem gestgjafa HM í knattspyrnu árið 2014 kom fáum á óvart. Eftir að Kólumbía dró umsókn sína um að halda keppnina til baka var Brasilía eina umsóknarþjóðin sem stóð eftir. Það var því aðeins formsatriði að nafn landsins yrði dregið úr umslaginu í október 2007. Brasilía hafði frá upphafi verið augljósi valkosturinn enda kváðu reglur FIFA á um að hvert heimsmeistaramót yrði að vera haldið í ólíkri heimsálfu og árið 2014 var röðin komin að Suður-Ameríku. Fyrir ekki svo löngu virtist allt í lukkunnar velstandi í Brasilíu. Efna- hagurinn blómstraði, Ríó de Janeiro var valin til að halda Ólympíuleikana 2016 og ekki skemmdi sigurinn á heimsmeisturum Spánverja í úrslitaleik Álfukeppninnar 2013 fyrir. Undir yfirborðinu kraumaði hins vegar djúpstæð óánægja. Þegar Álfukeppnin í Brasilíu hófst gekk mótmælaalda yfir landið. Í Ríó mótmæltu 300.000 manns hið minnsta og samanlagt tvær milljónir manna tóku þátt í mótmælum í meira en 80 borgum víðs vegar um Brasilíu. Mót- mælin hafa meðal annars verið kölluð Revolta do Busão, eða Strætóbyltingin, og var þeim beint gegn hækkandi far- gjöldum í almenningssamgöngum. Það var þó ekki allt, því aðrir þættir komu einnig inn í dæmið. Almenn- ingur var búinn að fá sig fullsaddan af landlægri spillingu og skorti á fjár- veitingu í mennta- og heilbrigðismál, á sama tíma og óheyrilegar fjárhæðir fóru í að undirbúa dýrustu heimsmeist- arakeppni sögunnar. Bloomberg-frétta- veitan gerir ráð fyrir að keppnin muni kosta rúma 1.600 milljarða króna, en þessar upphæðir, sem hafa farið langt fram úr áætlun, hafa vakið hneykslan. Reiði fólks beinist ekki einungis gegn stjórnvöldum heldur einnig gegn FIFA sem margir sjá fyrir sér sem græðgina holdi klædda, hrægamm sem muni rýja Brasilíu inn að skinni. Knattspyrnugoðsögnin Romário hefur meðal annarra lýst sig andsnúinn fjár- austrinu og kallað Sepp Blatter, forseta FIFA, þjóf og skíthæl. Mótmælin hafa tekið aftur við sér eftir því sem nær dregur mótinu, en nú síðast fóru lestarstarfsmenn í Sao Paulo í verkfall og lömuðu þar með stóran hluta samgöngukerfis fjölmenn- ustu borgar landsins. Hrottaskapur lögreglunnar hefur heldur ekki bætt úr skák, bæði gagnvart mótmæl- endum og í „friðþægingaraðgerðum“ í fátækrahverfunum. Gróft ofbeldi af hálfu lögreglumanna er ekki óalgengt í baráttu hennar gegn glæpagengjum og fólk er jafnvel hræddara við laganna verði en glæpamennina. Ævintýri Brasilíu virðist vera að breytast í martröð. Góðærinu er lokið og framtíðin er óljós. Þeim Brasilíumönnum sem eru óánægðir með ástandið í landinu fjölgar sífellt og mælast þeir nú 72 prósent þjóðarinnar. Fólk virðist ekki sætta sig lengur við grófa misskiptingu auðs, spillingu og taumlausa eyðslu í hvíta fíla líkt og HM. Það eina sem gæti réttlætt fjár- austrið í augum margra Brasilíumanna er heimsmeistaratitill. En þótt Brasilía standi uppi sem sigurvegari á HM er það engin trygging fyrir því að öldurn- ar lægi, enda bíða þessa fjölmennasta ríkis Suður-Ameríku miklar áskoranir. Það er oft sagt að knattspyrna sé trúar- brögð. Ef svo er þá hefur brasilíska þjóðin fundið takmörk trúar sinnar. Allt við suðumark

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.