Fréttablaðið - 12.06.2014, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 12.06.2014, Blaðsíða 44
12. JÚNÍ 2014 FIMMTUDAGUR12 ● HM-blaðið Velkomin til Húsavíkur! 4. Landsmót UMFÍ 50+ Íþrótta- og heilsuhátíð! ÞingeyjarsveitNORÐURÞING Keppnisgreinar: Blak, boccia, bogfimi, bridds, dráttavélaakstur, fjallahlaup, frjálsar, íþróttir, golf, hestaíþróttir, hrútadómar,jurtagreining, línudans, pútt, pönnukökubakstur, ringó, skák, skotfimi, stígvélakast, sund, sýningar, þríþraut. Húsavík 20.–22. júní 2014 Skráning: umfi.is Skráðu þig, þitt fyrirtæki eða hóp til leiks á www.ganga.is Spilað með Brazuca Þessir slógu óvænt í gegn á HM Mwepu Ilunga Saír | HM 1974 Ein helsta költhetja HM-sögunnar. Ilunga er þekktastur fyrir atvik sem átti sér stað í leik Saír og Brasilíu á HM 1974, þar sem hann hljóp úr varnarveggnum og þrumaði boltanum í burtu þegar Brasilíumenn voru að undirbúa aukaspyrnu. Þetta leit kjánalega út, Brassarnir hristu hausinn og áhorfendur hlógu, en raunveruleikinn var ekki jafn broslegur. Ilunga og samherjar hans, sem höfðu tapað tveimur fyrstu leikjum sínum 2-0 og 9-0, fengu fyrir leikinn þau skilaboð frá mönnum einræðisherrans, Mobutu Sese Seko, að ef þeir myndu tapa með fleiri en þremur mörkum gegn Brasilíu fengju þeir aldrei að sjá fjölskyldur sínar framar. Leikurinn gegn Brasilíu var því í bók- staflegri merkingu upp á líf og dauða fyrir Saírmenn. Sem betur fer endaði leikurinn „bara“ 3-0 og Ilunga er, eftir því sem best er vitað, enn á lífi. Keppnisbolti HM 2014 heitir Brazuca og er hannaður af Adidas sem hefur séð FIFA fyrir boltum á HM síðan 1970. Þetta er í fyrsta skipti sem almenning- ur velur nafn á keppnisboltann. Yfir milljón manns tóku þátt í kosningunni um besta nafnið og fékk Brazuca tæplega 78 prósent atkvæða. Hin nöfnin sem komu til greina voru Bossa Nova og Carnavalesca. Bossa Nova fékk rúm 14 prósent en Carnavalesca aðeins rúm 7 prósent. Munstrið og litirnir í bolt- anum er vísun í hin brasilísku óskabönd sem eru mjög svo vinsæl í landinu. Orðið Brazuca er orð sem heimamenn nota meðal annars stoltir er þeir lýsa því hvernig það sé að vera Brasilíumaður og einlægur knattspyrnuunnandi. Boltinn er framleiddur í Pakistan af Forward Sports. Fyrirtækið fékk samninginn óvænt eftir að aðalframleiðandi Adidas í Kína gat ekki sinnt eftirspurninni. Forward Sports hefur unnið með Adidas síðan 1995 og framleitt marga bolta fyrir fyrirtækið, meðal annars bolta fyrir Meistaradeildina. Boltinn er 473 grömm að þyngd og hann var prófaður af yfir 600 knattspyrnumönnum og 30 liðum út um allan heim á tveimur og hálfu ári. Meðal þeirra sem gáfu sitt samþykki voru Lionel Messi og Zinedine Zidane. Salvatore Schillaci Ítalía | HM 1990 Sennilega frægasta dæmið um eins móts undur. Enginn sá það fyrir að Schillaci yrði ein af aðalstjörnum HM 1990. Sikileyingurinn kom inn á sem varamaður í fyrsta leik Ítalíu gegn Austurríki og skoraði sigurmarkið, en alls skoraði hann sex mörk á mótinu og varð markakóngur þess. Frægðarsól Schillacis hneig hins vegar hratt til viðar. Hann skoraði aðeins eitt mark fyrir ítalska landsliðið eftir HM 1990 og að- eins 22 mörk á næstu fjórum tímabilum í Serie A. Schillaci lauk ferlinum með Júblio Iwata í Japan. Joe Gaetjens Bandaríkin | HM 1950 Gaetjens lék aðeins þrjá landsleiki og skoraði eitt mark, en með því skráði hann nafn sitt í HM-sögubækurnar. Gaetjens skoraði eina mark leiksins þegar Bandaríkin unnu England á HM 1950, en þau úrslit eru jafnan talin með þeim óvæntari í sögu HM. Þegar enskur ritstjóri sá úrslitin taldi hann að um innsláttarvillu væri að ræða, leikurinn hlyti að hafa farið 10-1 fyrir England. Það skrítnasta við þetta allt saman var kannski að Gaetjens, sem fæddist á Haítí, var ekki einu sinni með banda- rískan ríkisborgararétt og fékk aldrei slíkan. Talið er að hann hafi verið tekinn höndum og myrtur af leyniþjónustu François „Papa Doc“ Duvalier, forseta Haítí, árið 1964. Oleg Salenko Rússland | HM 1994 „Hann er kominn, hann er farinn,“ þau fleygu orð úr Útlaganum eiga ágætlega við um landsliðsferil Salenkos. Hann átti aðeins fimm landsleiki að baki fyrir Rússland þegar HM 1994 hófst og hann bætti þremur við í Banda- ríkjunum. Salenko kom inn á sem varamaður gegn Brasilíu, skoraði eina mark Rússlands í tapi gegn Svíþjóð og sprakk svo út í lokaleiknum gegn Kamerún þar sem hann skoraði fimm mörk, en Salenko er til þessa dags eini leikmaðurinn sem hefur afrekað það í sögu HM. Leikurinn gegn Kamerún var jafnframt hans síðasti landsleikur. Pak Doo-Ik Norður-Kórea | HM 1966 Norður-Kórea fékk eitt stig úr fyrstu tveimur leikjum sínum á HM 1966 og aðstoðarþjálfari Ítalíu, sem fylgdist með þeim, sagði að það hefði verið eins og að horfa á gamanmynd. En í þriðja leiknum komu N-Kóreumenn, vel studdir af áhorfendum á Ayresome Park í Middlesbrough, öllum á óvart og unnu Ítali 1-0 með marki frá Pak. N-Kóreumenn fóru áfram í átta liða úrslit á kostnað Ítala sem voru grýttir með tómötum við heimkomuna. Pak og félagar duttu út í átta liða úrslitum gegn Portúgal (eftir að hafa komist 3-0 yfir eftir 24 mínútna leik), en afrekum þeirra voru seinna gerð skil í heimildar- myndinni The Game Of Their Lives.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.