Fréttablaðið - 12.06.2014, Page 60
12. júní 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING | 36
LJÓMANDI GÓÐAR
SÓMASAMLOKUR
Fjórar nýjar kiljur koma inn á met-
sölulista Eymundsson þessa viku.
Amma biður að heilsa eftir
Fredrik Backman kom út á föstu-
daginn og rýkur beint í fyrsta
sætið.
Fredrik þessi átti einmitt eina
af vinsælustu bókum seinasta
árs, Maður sem heitir Ove.
Aðrar nýjar sumarkiljur sem
rjúka upp listann eru Piparköku-
húsið, Síðasta orðsending elsk-
hugans og Bragð af ást.
Önnur skáldverk á topp tíu
lista vikunnar eru spennusagan
Öngstræti og þriggja vasaklúta
unglingadramað Skrifað í stjörn-
urnar.
Amman beint
á toppinn
METSÖLUHÖFUNDUR Ný bók Fredriks
Backman, Amma biður að heilsa, rýkur
beint í toppsæti metsölulistans.
„Við erum hérna á Ísafirði að fara
að halda okkar fyrstu listahátíð
sem heitir LÚR-festival eða Lengst
útí rassgati. Það eru um 12 ung-
menni sem hafa staðið að mestum
hluta skipulagningarinnar en þau
eru á aldrinum 16 til 19 ára og ein
sem er 26 ára,“ segir Ólöf Dóm-
hildur Jóhannsdóttir, verkefna-
stjóri menningarmiðstöðvarinnar
Edinborgarhússins. „Við byrjum
í kvöld með því að blásið verður í
fornnorræna hljóðfærið lür, sem
við pöntuðum frá Tolga í Noregi.
Þetta er gamalt víkingahljóðfæri,
einn komma þrír metrar að lengd
og lítur út eins og trompet með
engum tökkum. Smíðað úr birki
og kemur fyrst fyrir í Íslendinga-
sögunum.“
Það er Madis Maëkalle, sem
kennir á blásturshljóðfæri við
Tónlistarskóla Ísafjarðar, sem fær
þann heiður að vígja hljóðfærið og
að opnunarathöfninni lokinni hefst
tískusýning á Silfurtorgi í umsjón
Morrans, sem er leiklistarhópur
Vinnuskólans. Dagskránni í kvöld
lýkur svo með tónlistaratriði frá
Tónlistarskóla Ísafjarðar.
Á föstudag hefjast danssmiðja
og hönnunarsmiðja sem öllum
eru opnar. „Markhópurinn er fólk
á aldrinum 16 til 30 ára,“ segir
Ólöf. „En það er öllum velkomið
að koma og taka þátt. Við erum
ekki með neina aldursfordóma og
viljum endilega fá sem flesta til
okkar.“
Hátíðinni lýkur með lokahófi á
laugardagskvöld þar sem hljóm-
sveitin Mammút er aðalnúmerið
en auk hennar leika tvær ísfirskar
unglingahljómsveitir, söngkonan
Freyja Rein treður upp og hljóm-
sveitin Rhythmatic leikur nokkur
lög. „Við vonum bara að sem flest-
ir láti sjá sig og skemmti sér með
okkur,“ segir Ólöf. „Við rennum
dálítið blint í sjóinn með þetta,
þar sem þetta er í fyrsta sinn sem
við höldum svona hátíð en það er
ókeypis á alla viðburðina nema
lokahófið svo við bindum vonir við
að þátttakan verði góð.“
fridrikab@frettabladid.is
Lengst útí rassgati festival
LÚR-festival verður haldið í Edinborgarhúsinu á Ísafi rði um helgina. Hátíðin byrjar með vígslu á hljóðfærinu
lür sem varð kveikjan að nafni hátíðarinnar. Boðið verður upp á opnar dans- og hönnunarsmiðjur.
LÚRINN Madis blæs í víkingahljóðfærið
LÜR.
VERKEFNASTÝRAN „Við rennum dálítið blint í sjóinn með þetta, þar sem þetta er í
fyrsta sinn sem við höldum svona hátíð,“ segir Ólöf Dómhildur. MYND/ÁGÚST G. ATLASON