Fréttablaðið - 12.06.2014, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 12.06.2014, Blaðsíða 62
12. júní 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING | 38 HVAÐ? HVENÆR? HVAR? FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 2014 Hátíðir 19.00 Það verður brasilísk stemning á Kaldi Bar/Café þegar Brasilía leikur sína leiki í Heimsmeistarakepnninni í futebol. Georg Leite mun gera besta Caipirinha sem þú færð og Samúel Jón Samúelsson mun leiða Carnaval Batucata Samba slagverksstuð fyrir og eftir leik. Stuðið hefst í dag þegar opnunarleikurinn á móti Króatíu fer fram. Leikurinn verður sýndur á tjaldi í portinu bak við Kalda. Tónlist 16.00 Sérstakir aukatónleikar verða í sumartónleikaröð Jómfrúarinnar í dag klukkan 16.00 til 18.00. Frábærir tón- listarmenn af jazz-skemmtiferðaskipinu Crystal Symphony bregða sér í land og skemmta sjófarendum og landkröbbum. Hljóðfæraleikarar eru Pieter Meijers: saxófónn, Antti Sarpila: klarinett, Nicki Parrott: söngur og bassi, Randy Morris: söngur og ýmis hljóðfæri, Dave Tatrow: trompet, Yve Evans: söngur og píanó, Danny Coots: trommur. Þau eru öll sérfræðingar í swing og annarri eldri klassískri jazztónlist. Tónleikarnir fara fram utandyra á Jómfrúartorginu. Ein- stakt tækifæri til að heyra hóp frábærra tónlistarmanna frá ýmsum löndum. Aðgangur er ókeypis. 20.00 Bartónar, Karlakór Kaffibarsins, halda sumarstyrktartónleika í Tjarnar- bíói í kvöld klukkan 20.00. Tónleikarnir verða til styrktar Stígamótum, sam- tökum sem veita aðstoð fyrir fólk sem hefur verið beitt kynferðisofbeldi. Ásamt Bartónum koma fram Emmsjé Gauti, Original Melody og Mike Lindsay. Búast má við yndisfríðum tónum og mikilli sumargleði á tónleikum Bartóna þar sem enginn snýr ósnortinn heim. Miðaverði hefur verið stillt í hóf en miðinn fer á 1.500 krónur. Miðar eru seldir í Tjarnarbíó og á midi.is. 20.00 Þungarokkshljómsveitin Dimma kemur fram á útgáfutónleikum í Hörpu í kvöld klukkan 20.00. Ekkert aldurs- takmark og hægt er að nálgast miða á midi.is, harpa.is og í miðasölu Hörpu í síma 528 5050. Dimma hélt þrenna tónleika í Hörpu á síðasta ári og var uppselt á þá alla, það er því vissara að tryggja sér miða sem fyrst. 20.00 Útgáfutónleikar Different Turns á Nýja sviði Borgarleikhússins í kvöld. Hljómsveitin sendi frá sér breiðskífuna If you think this is about you ... you’re right, þann 4. apríl síðastliðinn og ætlar að fagna því með mögnuðum tónleikum þar sem breiðskífan verður leikin í heild sinni. 21.00 Brother Grass kemur loksins aftur fram á sínum heimavelli, Café Rósenberg á Klapparstíg í Reykjavík. Tónleikar hefjast klukkan 21.00 og eru miðar seldir við innganginn á aðeins 2.000 krónur. 20 ára aldurstakmark. Hljómsveitin Brother Grass flytur alþýðutónlist, sem oftar en ekki er í bluegrass- og Americana-stíl. Sveitin samanstendur af fjórum söngkonum og einum gítarleikara sem einnig syngur. Saman leika þau á alls kyns hljóðfæri og hljóðgjafa, svosem þvottabretti, cajun- kassa, þvottabala, gítara, bassa, harmon- ikku, keðju og ýmis ásláttarhljóðfæri. 22.00 Hljómsveitirnar Útidúr og Mal- neirophrenia slá upp tónleikum á skemmtistaðnum Húrra í kvöld en frítt er inn á tónleikana. 22.00 Magnús R. Einarsson heldur tónleika á Ob-La-Dí-Ob-La-Da, Frakka- stíg 8 í kvöld klukkan 22.00. Aðgangur er ókeypis. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is og einnig er hægt að skrá þá inni á visir.is. „Hljómsveitin er rétt að byrja og kemur til með að spila víða í sumar, til dæmis á Akureyri dag- inn eftir útgáfutónleikana og í Reykjavík 28. júní. Sveitin ætlar sér stóra hluti í framtíðinni,“ segir Gunnhildur Birgisdóttir, söngkona Different Turns, en ásamt Gunn- hildi skipa sveitina Garðar Borg- þórsson, Hálfdán Árnason, Eiður Rúnarsson, Ívar Atli Sigurjóns- son, Agnar Friðbertsson og Axel „Flex“ Árnason. Útgáfutónleikar Different Turns verða á Nýja sviði Borgarleikhússins í kvöld. Hljómsveitin sendi frá sér breið- skífuna If you think this is about you … you‘re right þann 4. apríl síðastliðinn og ætlar að fagna því með tónleikum þar sem breiðskífan verður leikin í heild sinni. Different Turns var stofnuð árið 2008 í litlu leikhúsi í Hafnarfirði. „Í raun byrjaði þetta sem sólóverkefni Garðars Borgþórs- sonar í Hafnarfjarðar- leikhúsinu árið 2008. Ýmis lög urðu til á kassagítarn- um og tóku svo á sig mis- munandi myndir áður en þau urðu fullmótuð. Það var svo fyrir um það bil þrem- ur árum að Garðar fékk til liðs við sig Hálfdán Árnason bassaleikara. Saman unnu þeir þetta áfram og seinna, fyrir um ári, bættust Eiður Rúnarsson, Ívar Atli Sig- urjónsson og ég við.“ Forsprakki hljómsveit- arinnar hefur starfað við leik- hús í mörg ár og sækir því mikið í leikhúsið í tónlistarsköpun sinni. „Leikhúsandann má finna í textum sveitarinnar, en þar segir frá hlut- um byggðum á sönnum atburðum. Platan segir sögu ákveðinna per- sóna en við, söngvararnir, stönd- um fyrir þá einstaklinga í sögunni. Tímalínan er bogin og beygð, en þó fjallar sagan í raun um ýmsar hliðar sama atburðarins,“ útskýrir Gunnhildur. Hljómsveitin sér sjálf um allt tengt tónleikunum. „Við sjáum um sviðið, ljós og slíkt en Garðar, forsprakki hljómsveit- arinnar, er einmitt starfandi ljósa- maður. Við lofum kynngimögn- uðum tónleikum og dulmagnaðri stemningu og biðjum áhorfend- ur að lifa sig inn í meginþemað: Hvað ertu tilbúinn að ganga langt til að öðlast það sem þú þráir … og hversu langt kemstu áður en þú missir vitið?“ segir Gunnhildur að lokum og hlær. ólöf@fréttablaðið Hvað ertu tilbúinn að ganga langt? Útgáfutónleikar Diff erent Turns verða á Nýja sviði Borgarleikhússins í kvöld. SÆKJA MIKIÐ Í LEIK- HÚSIÐ Í TÓNLISTAR- SKÖPUN SINNI Hljóm- sveitin var upphaflega sólóverkefni Garðars Borgþórssonar. VERÐ FRÁ EINUNGIS 2.190.000 KR. - GERÐU VERÐSAMANBURÐ . Mazda2 er sparneytinn, ótrúlega lipur og hagkvæmur í rekstri. Hann er búinn öflugri 1,3 lítra bensínvél sem þó eyðir einungis frá 4,3 l/100 km og fær frítt í stæði. Mazda2 er áreiðanlegur, öruggur, vel búinn og frábær í endursölu. Taktu snúning á Mazda2, gerðu góð kaup og lækkaðu rekstrarkostnaðinn. MAZDA. DEFY CONVENTION. Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga frá kl. 9-17 og laugardaga frá kl. 12-16. Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7040 I Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050 I mazda.is Brimborg og Mazda áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður getur verið frábrugðinn mynd í auglýsingu. * Mazda2 eyðir 4,3 l/100 km í langkeyrslu og fær frítt í stæði í miðborg Reykjavíkur í 90 mínútur í senn. 5 stjörnu öryggi!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.