Fréttablaðið - 12.06.2014, Blaðsíða 64
12. júní 2014 FIMMTUDAGUR| MENNINGBÍÓ | 40
Hafðu samband og láttu sérfræðinga
okkar aðstoða þig við að finna réttu
lausnina.
Halla Hrund Pétursdóttir, landslags-
arkitekt FILA, hjálpar þér við að
skipuleggja garðinn þinn.
Hringhellu 2
221 Hafnarfjörður
Hrísmýri 8
800 Selfoss
Malarhöfða 10
110 Reykjavík
Berghólabraut 9
230 Reykjanesbær
Sími 4 400 400
www.steypustodin.is
Steypustöðin býður upp á mikið úrval af
fallegum hellum og mynstursteypu fyrir
heimili, garða, göngustíga og bílaplön.
Skoðaðu úrvalið á www.steypustodin.is
20
YFIR
TEGUNDIR AF HELLUM
BÍÓFRÉTTIR
Grínmyndin 22 Jump Street var
frumsýnd á Íslandi í gær en hún
er framhald myndarinnar 21
Jump Street sem frumsýnd var
fyrir tveimur árum. Sú mynd var
byggð á samnefndri sjónvarps-
seríu frá árinu 1987 með Johnny
Depp í aðalhlutverki.
Kvikmyndaspekúlantar voru
sammála um að það að gera
framhaldsmynd af endurgerð
væri dæmt til að mistakast þegar
fréttir bárust af því að 22 Jump
Street yrði sumarmyndin 2014.
Þessar spár hafa hins vegar
ekki ræst og hefur myndin hlot-
ið einróma lof gagnrýnenda og
fór beint á toppinn þegar hún
var frumsýnd í Bretlandi fyrir
stuttu. Ástæðan fyrir þessari vel-
gengni er talin vera sú að mynd-
in reynir aldrei að vera annað en
hún er og minnir áhorfandann
stanslaust á hve fáránlegt er í
raun að gera framhaldsmynd af
endurgerð.
Í aðalhlutverkum í 22 Jump
Street eru Channing Tatum og
Jonah Hill, þeir sömu og í fyrri
myndinni. Þeir eru mættir til
starfa hjá lögreglunni á ný og
fara í háskóla til að sinna leyni-
lögreglustörfum.
Þar hittir karakter Channings,
Jenki, sálufélaga sinn í íþróttaliði
skólans og Schmidt, sem Jonah
túlkar, laumar sér í hóp lista-
spíra. Þá fara efasemdir um vin-
áttuna að láta á sér kræla og þeir
þurfa að átta sig á því hvort þeir
geti átt í þroskuðu sambandi hvor
við annan.
Tökur á myndinni hófust í lok
september í fyrra í New Orleans
í Louisiana í Bandaríkjunum og
lauk þann 15. desember sama ár.
Auk Jonah og Channing eru
það Peter Stormare, Wyatt Russ-
ell, Amber Stevens og Ice Cube
sem fara með aðalhlutverkin.
liljakatrin@frettabladid.is
Framhald af endurgerð sem
gæti auðveldlega klikkað
Kvikmyndin 22 Jump Street var frumsýnd á Íslandi í gær en hún er framhald myndarinnar 21 Jump Street
frá árinu 2012. Sú mynd var hins vegar byggð á samnefndum sjónvarpsþáttum sem sýndir voru árið 1987.
TVÍEFLDIR Jonah Hill og Channing Tatum snúa aftur í hlutverk sín.
Channing og Jonah voru gestir í spjallþætti Conans O‘Brien fyrir stuttu þar
sem þeir sögðu frá veðmáli sem þeir efndu til þegar 21 Jump Street var
frumsýnd. Veðmálið snerist um að Jonah þyrfti að kyssa kóng Channings,
þó meðan hann væri í nærbuxum, ef myndin myndi þéna meira en 35
milljónir dollara um frumsýningarhelgina, rúma fjóra milljarða króna. Sú
varð raunin en Jonah á enn eftir að standa við sinn hlut af veðmálinu.
SÓÐALEGT VEÐMÁL
8,1/10
76/100
93/100
Leikarinn Dave Franco er 29 ára í dag
Helstu myndir: 21 Jump Street, 22 Jump
Street, Superbad, Now You See Me
AFMÆLISBARN DAGSINS
Breski
leikarinn og
spéfuglinn
Rik Mayall
lést að
morgni
9. júní,
aðeins 56 ára
gamall. Rik
andaðist á heimili sínu í Barnes í
London og kom eiginkona hans að
honum. Ekki er talið að andlátið
hafi borið að með saknæmum
hætti. Rik var frumkvöðull í bresku
jaðargríni og lék í þáttum á borð
við Blackadder, Bottom og The
Young Ones.
RIK MAYALL (7. MARS
1958– 9. JÚNÍ 2014)
Leikarinn Josh Brolin leikur ásamt
George Clooney í næstu
mynd Joels og Ethans
Coen, Hail Caesar! Myndin
fjallar um reddara í
Hollywood sem passar upp
á stjörnur hjá stóru mynd-
veri um árið 1950. Josh
Brolin lék síðast í
Coen-myndunum
No Country for
Old Men og True
Grit en Clooney
hefur margoft
leikið í myndum
bræðranna.
LEIKA Í NÆSTU
COEN-MYND
Blended, gaman
Aðalhlutverk: Adam Sandler, Drew Barry-
more, Wendi McLendon-Covey, Kevin
Nealon, Terry Crews og Bella Thorne
Aldurstakmark: 10 ára
6,0/10
31/100
14/100
FRUMSÝNING
Yaya DaCosta, sem tók þátt í þriðju
seríu af raunveruleikaþáttunum
America‘s Next Top
Model hefur verið
valin til að leika
söngkonuna heitnu
Whitney Houston
í nýrri kvikmynd,
I Will Always Love
You: The Whitney
Houston Story.
Leikkonan Angela
Bassett leikstýrir
myndinni um
Whitney sem
frumsýnd verður
á næsta ári.
LEIKUR WHITNEY
The Shawshank Redemption
(1994)
„Þetta er bara ein af þessum mynd-
um sem … Leikurinn er stórkostlegur
– hann hefur gríðarleg áhrif á þig– og
sagan líka.“
Dead Man Walking (1995)
„Ég held að ég elski andhetjuna svo-
lítið. Þetta er ein besta frammistaða
Seans Penn. Mér finnst ótrúlegt að
hann nái á endanum að láta þig
halda með honum og vona að hann
lifi eftir að hann er búinn að fremja
þessa hrottafengnu glæpi. Bara Sean
Penn gæti þetta. Mér finnst hann
æðislegur.“
Jacob‘s Ladder (1990)
„Þessi mynd er stórkostleg. Hræðileg,
spennandi en svo góð að hún stenst
tímans tönn. Hún er enn hrollvekj-
andi í dag.“
The Intouchables (2012)
„Þið þurfið að hlaupa, ekki ganga,
og fara að sjá þessa mynd. Hún er
frábær. Ég elska erlendar myndir.“
Y Tu Mamá También (2001)
„Elska þessa mynd. Held að ég hafi
horft á hana þúsund sinnum.“
UPPÁHALDS-
BÍÓMYNDIR
Leikkonan Emmanuelle
Chriqui velur fimm góðar