Fréttablaðið - 12.06.2014, Blaðsíða 66
12. júní 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING | 42
LÍFIÐ
Heimsmeistaramótið í knattspyrnu hefst í dag og verður hægt
að fylgjast grannt með stöðu mála á samfélagsmiðlum eins og
Twitter, Facebook og Instagram alla keppnina.
Hægt verður að fylgjast með mótinu á Facebook á svæði
sem heitir Trending World Cup. Þar detta inn öll úrslit, fréttir úr
leikjunum og færslur frá leikmönnum og aðdáendum um mótið.
Þar verður einnig kort sem sýnir hvar aðdáendur eru staddir í heiminum. Sérstök síða
sem heitir FacebookRef verður einnig aðgengileg notendum Facebook þar sem aðili
á vegum Facebook lýsir leikjunum. Facebook hvetur því alla notendur til að nota kas-
samerkið #WorldCup í færslum tengdum mótinu.
Sama kassamerki er notað á Twitter til að fylgjast með öllum 64 leikjunum sem
spilaðir verða á mótinu. Þá er hægt að fylgjast með Twitter-síðu FIFA, @FIFAWorldCup.
Fylgstu með heimsmeistaramótinu
í fótbolta á samfélagsmiðlum
FLOTTUR JAKKI Leikarinn
Zachary Quinto reffilegur í
hvítum jakka. NORDICPHOTOS/GETTY
Galaveislan amfAR Inspiration var
haldin á Plaza-hótelinu í New York á þriðju-
dagskvöldið. Þangað mættu allir helstu
fagurkerar borgarinnar til að kynna sér það
nýjasta í herratískunni og safna peningum
til að styðja við rannsóknir á eyðni. Gestir
voru fl estir klæddir í ljósa liti og greini-
legt að hvítur er litur sumarsins.
TÆPLEGA
40%
notenda
Facebook, sem
eru 1,28
milljarðar
talsins, eru
aðdáendur
knattspyrnu.
FIFA TELUR AÐ
909,6 milljónir
hafi horft á að minnsta kosti eina mínútu af úrslitaleik heims-
meistaramótsins árið 2010 þar sem Spánn sigraði Holland.
BÚAST MÁ VIÐ MIKLU TWITTER-FLÓÐI Á MEÐAN Á KEPPN-
INNI STENDUR EN Í SAMANBURÐI VORU RÚMLEGA
24,9 milljónir tísta
færðar inn á Twitter þegar Ofurskálin fór fram í ár. Tveimur árum
á undan voru það 13,7 milljónir tísta.
FYRIRSÆTUTVENNA
Fyrirsæturnar Jeisa Chiminazzo
og Elsa Hosk.
VIRÐULEG
Fyrirsætan
Karolina
Kurkova í
gullfallegum
síðkjól.
FÖGUR FERGIE
Söngkonan Fergie
klæddist kjól,
og bar tösku, frá
Calvin Klein.
ENGIR SOKKAR
Karlfyrirsætan og
leikarinn Tyson Beckford
með lúkkið á hreinu.
HÁRIÐ SLEIKT AFTUR
Fyrirsætan Alexandra
Agoston var einnig
hvítklædd.
SCHIVARELLI-SKVÍSA
Leikkonan Sarah Jessica
Parker í kjól frá Schivarelli.
Hvítklæddir
fagurkerar
í galaveislu