Fréttablaðið - 12.06.2014, Page 70
12. júní 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 46
BAKÞANKAR
Atla Fannars
Bjarkasonar
„Heilsan er óvenju góð, við vorum
reyndar alveg uppgefnir þegar við
komum í fyrrakvöld en líkaminn
er þó í góðu standi,“ segir Rafn
Erlingsson, en Rafn og félagi hans,
Helgi Ragnar Jensson, hjóluðu um
2.500 kílómetra leið, frá Berlín til
Barcelona, til þess eins að skella
sér á tónlistarhátíðina Sónar sem
fram fer í spænsku borginni. Þeir
félagar fluttu saman til Berlínar í
febrúar og ákváðu stuttu síðar að
fjárfesta í miðum á tónleikahátíð-
ina.
„Það var svo undir áhrifum bjórs
að við ákváðum að hjóla alla leið á
áfangastað og það gerðum við,“
segir Rafn, en ferðalagið tók um
einn og hálfan mánuð. „Við viss-
um í rauninni lítið hvað við vorum
að koma okkur út í. Við reyndum
bara að plana einn dag í einu og
svo þegar við komum að Miðjarðar-
hafinu pössuðum við okkur bara á
því að sjórinn væri vinstra megin
við okkur, þá vorum við að hjóla í
rétta átt,“ segir Rafn og hlær. Alls
hjóluðu þeir félagar í gegnum sjö
lönd og fóru bæði yfir Alpana og
Pýreneafjöll. Ferðalagið gekk þó
ekki stóráfallalaust fyrir sig. „Það
sprakk hjá mér þrisvar, eitt dekk og
ein gjörð eyðilögðust. Helga tókst
svo að týna myndavélinni sinni og
við hjóluðum aukalega þrjátíu kíló-
metra til þess að reyna að hafa upp
á henni, án árangurs. Helgi klessti
svo einu sinni á mig og flaug af
hjólinu og mér tókst svo að klessa
á staur þegar ég var utan við mig
og flaug í kjölfarið af hjólinu.“
Strákunum tókst þó að komast
á leiðarenda í tæka tíð en Sónar-
hátíðin hefst í Barcelona í dag og er
íslenska hljómsveitin FM Belfast á
meðal þeirra sem koma fram. „Við
hlökkum mest til þess að sjá okkar
íslensku FM Belfast. Nú erum við
búnir að vera að ferðast í sex vikur
og höfum ekki haft nægan tíma til
að kynna okkur hverjir eru að spila,
þótt við höfum séð mörg böndin á
Sónar hér í Reykjavík. En við erum
rosalega spenntir.“ Þeir félagar
ætla báðir að flytja heim til Íslands
að hátíðinni lokinni. En hvernig
verður heimferðinni hagað? „Það
hefur komið upp sú hugmynd að
hjóla bara til baka en við eigum þó
báðir flug heim með hjólin okkar.
Ætli við höldum því plani ekki
bara,“ segir Rafn, hress að lokum.
kristjana@frettabladid.is
Hjóluðu á Sónar frá
Berlín til Barcelona
Félagarnir Rafn Erlingsson og Helgi Ragnar Jensson tóku þá óvenjulegu
ákvörðun að hjóla á tónleikahátíðina Sónar Barcelona frá Berlín. Það tók þá sex
vikur að komast á leiðarenda en alls hjóluðu þeir heila 2.500 kílómetra.
STUND MILLI STRÍÐA Þrátt fyrir nokkur óhöpp á leiðinni komust þeir Helgi Ragnar og Rafn á leiðarenda.
Instagram er samfélagsmiðill þar sem fleiri en 200 milljónir notendur deila 60
milljónum mynda daglega. Myndirnar eru
af ýmsu tagi; sumir taka myndir af matn-
um sínum en aðrir af sínum nánustu. Enn
aðrir deila hógværum montmyndum af
sér í ræktinni, á sólarströndum eða í fjall-
göngum. Loks má ekki gleyma þeim sem
halda að kettir séu sniðugt myndefni en
um helming netumferðar í heiminum má
rekja beint til mynda af köttum.
NOTENDUR Instagram eiga flestir
sameiginlegt að kunna vel að meta
myndirnar sem deilt er í gegnum
miðilinn þar sem þeir læka mynd-
ir rúmlega 18 þúsund sinnum á
hverri einustu sekúndu sólar-
hringsins. Lækfjöldinn er slík-
ur að gera má ráð fyrir að allar
af þeim 20 milljörðum mynda
sem þegar hafa verið birtar hafi verið
lækaðar. Allar nema mynd sem ég
birti af camembert-sneið ofan á flís af
spægipylsu í apríl á síðasta ári.
KOSTURINN við Instagram er um
leið stærsti lösturinn: 99 prósent þeirra
sem birta þar myndir eru ekki ljósmynd-
arar og gæðin eru eftir því. Í staðinn
fyrir stórkostlegar náttúru- og mannlífs-
myndir sjáum við illa teknar myndir af
hversdagslegum augnablikum. Augna-
blikum sem hefðu annars glatast að eilífu.
Þess vegna er Instagram stórkostlegur og
ömurlegur samfélagsmiðill.
OG þá komum við að kjarna málsins:
Hversdagsmyndaáskoruninni. Ástæð-
an fyrir því að það er gaman að skoða
Instagram er að miðillinn sýnir fólk nán-
ast undantekningalaust í röngu ljósi. Allir
eru aðlaðandi eftir þúsund tilraunir til
að ná réttu myndinni sem er tekin í hag-
stæðri lýsingu og krydduð með filter. En í
hversdagsmyndaáskoruninni er fólk bein-
línis hvatt til að taka undirlýstar myndir
af þvottakörfum: „Verkefni dagsins“.
ÞETTA gerist fimm daga í röð og svo er
skorað á aðra að fylgja fordæminu. Að
lokum verður internetið ekki lengur inter-
netið heldur miðlægur gagnagrunnur af
undirlýstum þvottakörfum. Og köttum.
Undirlýstar myndir af þvottakörfum
SJÁ FLEIRI SÝNINGAR Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
AKUREYRI
KEFLAVÍK
EMPIRE
VARIETY
TOTAL FILM
BIOGAGNRYNI VALDIMARS
HOLLYWOOD REPORTER NEW YORK DAILY NEWS
ANGELINA JOLIE OG ELLE FANNING
EKKI TRÚA ÆVINTÝRINUVINSÆLASTA MYNDIN
Í HEIMINUM Í DAG
22 JUMP STREET 5:40, 8, 10:20
MILLION WAYS TO DIE IN THE WEST 5:30, 8, 10:30
VONARSTRÆTI 5:20, 8, 10:40
www.laugarasbio.isSími: 553-20755%
OF
KIDMAN
NICOLE
FRANK LANGELLA
DAHANOLIVIERMYND EFTIR
ROTH
TIM
GAUMONT KYNNIR
35.000
GESTIR!
„ÞÚ SÉRÐ EKKI FYNDNARI
MYND Í SUMAR!“ -T.V., BIOVEFURINN.IS
„ÉG HLÓ SVO MIKIÐ AÐ ÉG
SKAMMAÐIST MÍN!“ - GUARDIAN
22 JUMP STREET
22 JUMP STREET LÚXUS
FAULT IN OUR STARS
MILLION WAYS TO DIE . . .
TÖFRALANDIÐ OZ 2D ÍSL. TAL
X-MEN 3D
VONARSTRÆTI
LÁSI LÖGGUBÍLL
KL. 5.30 - 8 - 10.30
KL. 5.30 - 8 - 10.30
KL. 5 - 8 - 10.40
KL.10.45
KL. 3.20
KL. 8 - 10.45
KL. 5.20 - 8
KL. 3.20
22 JUMP STREET
GRACE OF MONACO
FAULT IN OUR STARS
VONARSTRÆTI
THE OTHER WOMAN
*GÆÐASTUND
Miðasala á:
Kauptu miða á X-Men með
17.000 GESTIR!
KL. 8 - 10.30
KL. 5.40 - 8
KL. 6 - 9*
KL. 5.20 - 8 - 10.40
KL. 5.30 – 10.30
-C.P., USA TODAY