Fréttablaðið - 14.06.2014, Blaðsíða 88
14. júní 2014 LAUGARDAGUR| MENNING | 52
Þetta er sýning sem sett var upp í Röhsska,
hönnunarsafni Svía í Gautaborg, í fyrra og
skiptist í tvennt. Helmingurinn af henni er
tímalína sem sýnir hver ég er og hvað ég hef
verið að fást við síðustu tuttugu árin og hinn
helmingurinn er smá bland í poka sem sýnir
það sem ég hef gert um Ísland,“ segir Hjalti
Karlsson, grafískur hönnuður, sem opnar
í dag klukkan 15 sýninguna Svona geri ég í
Hönnunarsafni Íslands.
Hjalti býr og starfar í New York og hefur
búið þar síðan hann hélt þangað til náms í lok
níunda áratugar síðustu aldar. Þar rekur hann
hönnunarfyrirtækið Karlssonwilker Design
Studio sem hann og Jan Wilker stofnuðu árið
2000. Meðal fjölbreyttra viðskiptavina þeirra
má nefna MTV, Wolf Gordon, tímaritið Time,
húsgagnaframleiðandann Vitra, Puma, bíl-
framleiðandann MINI, Guggenheim-safnið,
MoMA-safnið í New York og síðast en ekki
síst GusGus.
Hjalti hlaut Torsten och Wanja Söderberg-
verðlaunin í nóvember á síðasta ári og í tilefni
af því var gerð um hann heimildarmynd sem
er hluti af sýningunni Svona geri ég. „ Myndin
er 18 mínútna heimildarmynd um mig og stof-
una gerð af Röhsska-safninu og er eðlileg-
ur hluti af sýningunni,“ segir Hjalti. „Hún
gengur í lúppu allan daginn svo áhorfendur
þurfa ekki að óttast að þeir missi af henni.“
Á morgun mun Hjalti verða með leiðsögn
um sýninguna klukkan 14 og leiða gesti í
gegnum hana. „Ég ætla að halda smá tölu
og skýra út sýninguna, auk þess að sýna
fleiri hluti sem ég hef gert, ef einhver hefur
áhuga,“ segir hann hógvær.
Þetta er fyrsta einkasýning Hjalta á Íslandi
en hann hefur tekið þátt í nokkrum samsýn-
ingum hér. „Ég held samt alltaf mjög góðu
sambandi við heimaslóðirnar og kem heim
reglulega, en það hefur bara ekki komið upp
að ég héldi sýningu hér fyrr,“ segir hann. „Ég
hlakka mikið til.“
fridrikab@frettabladid.is
Ég held
samt alltaf
mjög góðu
sambandi við
heimaslóðirnar
og kem heim
reglulega, en
það hefur bara
ekki komið
upp að ég héldi
sýningu hér
fyrr.
Á síðdegistónleikum í Háteigs-
kirkju á morgun gefst tónlistar-
unnendum á höfuðborgarsvæðinu
kostur á að heyra litríkt sýnis-
horn af dagskrá tónlistar hátíð-
arinnar Bergmáls sem fram fer á
Dalvík í kring um sumarsólstöður.
En hvaða fyrirbæri er Bergmál?
„Þetta er lítil sígild tónlistarhátíð
sem við höfum verið með á Dalvík
síðastliðin fimm ár,“ segir Grímur
Helgason klarinettuleikari, einn
skipuleggjenda Bergmáls. „Haf-
dís Vigfúsdóttir flautuleikari og
Kristján Karl Bragason píanó-
leikari byrjuðu með hátíðina og
ég kom svo inn í þetta með þeim.
Við höfum verið að spila sígilda
tónlist og svona aðeins út í dægur-
lög stundum og alltaf haldið upp-
hitunartónleika í Reykjavík áður
en við förum norður.“
Tónlistarhátíðin Bergmál verður
haldin dagana 19. til 22. júní í
Menningarhúsinu Bergi á Dal-
vík. Tónverkin sem flutt verða á
þrennum tónleikum spanna vítt
litróf, allt frá djúpum þönkum
Johannesar Brahms til skemmti-
tónlistar Franz Lehár með viðkomu
í rússneskum þjóðsagnaheimi,
París aldamótanna og íslenskri
sumarnæturkyrrð, að sögn Gríms.
„Tónleikarnir í Háteigskirkju
eru síðan svona „best of“ af því
sem flutt verður fyrir norðan og
þar komum við fram allir flytj-
endurnir fyrir utan Ellu Völu
Ármannsdóttur hornleikara og
Margréti Hrafnsdóttur sópran-
söngkonu,“ bætir hann við.
Tónleikarnir í Háteigskirkju
hefjast klukkan 17 á morgun og
hátíðin sjálf hefst síðan þann 19.
júní með opnunartónleikum Berg-
máls í Bergi klukkan 20. - fsb
Hitað upp fyrir Berg-
mál í Háteigskirkju
Tónlistarhátíðin Bergmál verður haldin á Dalvík í
fi mmta sinn í næstu viku. Upphitunartónleikar fyrir
hátíðina verða í Háteigskirkju á morgun.
BERGMÁLSFLYTJENDUR Helga Þóra Björgvinsdóttir fiðluleikari, Ástríður Alda
Sigurðardóttir píanóleikari, Hafdís Vigfúsdóttir flautuleikari, Carlos Caro Aguilera
básúnuleikari, Grímur Helgason klarinettleikari og Kristján Karl Bragason píanóleikari.
Sýnir í fyrsta sinn á Íslandi
Svona geri ég nefnist sýning Hjalta Karlssonar, grafísks hönnuðar, sem opnuð verður í Hönnunarsafni Ís-
lands í dag. Hjalti býr og starfar í New York og hefur ekki áður haldið einkasýningu hérlendis.
HJALTI KARLSSON Á meðal þeirra sem Hjalti hefur hannað fyrir eru MTV, Wolf
Gordon, tímaritið Time og GusGus. MYND/SVEN HOFFMANN
Dr. Halldór Björn Runólfsson,
safnstjóri Listasafns Íslands,
verður með leiðsögn um sýn-
inguna SPOR Í SANDI, yfir-
litssýningu á verkum Sigurjóns
Ólafssonar, á morgun klukkan
14.00 í Listasafni Íslands á Frí-
kirkjuvegi 7.
Á sýningunni gefur að líta
ólíkar hliðar listamannsins í 90
mikilvægustu verkum hans. Auk
þess er lögð áhersla á að sýna
hæfileika Sigurjóns til að vinna
jafnhendis að klassískum verkum
og framúrstefnu og sýnt hvernig
meginreglur byggingarlist-
arinnar, form, ljós og rými, eru
ætíð til staðar í verkum hans.
Leiðsögn um
Spor í sandi
SPOR Í SANDI Verk Sigurjóns Ólafssonar.
Ópera eftir Gunnar Þórðarson
og Friðrik Erlingsson
Örfáar sýningar
ráðgerðar um jólin 2014
Miðasala hefst í haust
TÍU TILNEFNINGAR TIL GRÍMUNNAR 2014
TÓNLIST ÁRSINS
Gunnar Þórðarson
LEIKRIT ÁRSINS
Friðrik Erlingsson
LÝSING ÁRSINS
Páll Ragnarsson
BÚNINGAR ÁRSINS
Þórunn S. Þorgrímsdóttir
LEIKMYND ÁRSINS
Gretar Reynisson
SÝNING ÁRSINS
SÖNGVARI ÁRSINS
Elmar Gilbertsson
Viðar Gunnarsson
Þóra Einarsdóttir
LEIKSTJÓRI ÁRSINS
Stefán Baldursson
MENNING