Fréttablaðið - 21.06.2014, Page 16

Fréttablaðið - 21.06.2014, Page 16
21. júní 2014 LAUGARDAGURSKOÐUN ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Álfrún Pálsdóttir alfrun@frettabladid.is VIÐSKIPTI: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is DÆGURMÁL: Lilja Katrín Gunnarsdóttir liljakatrin@frettabladid.is VÍSIR: Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is SPOTTIÐ AF KÖGUNARHÓLI ÞORSTEINS PÁLSSONAR Þ að hefur löngum þótt einkennandi fyrir verklag hér á landi að vinna hluti á síðustu stundu. Örfáum klukkustundum fyrir opnun sýninga eða stórvið- burða er oftar en ekki allt á rúi og stúi, iðnaðarmenn á hlaupum og rusl úti um allt. Oftar en ekki bjargast hlutirnir einhvern veginn fyrir horn. Þetta reddast. Sprengingu í fjölda ferðamanna síðustu ár virðist hins vegar mega líkja við partí þar sem gleymdist að láta húsráðendur vita af gestakomunni. Veislan er byrjuð þegar húsráðendur átta sig og fara að reyna að halda í horfinu og passa að húsið verði ekki rústað. Raunar er furðulegt að við skulum ekki vera lengra komin í að búa ferðaþjónustu umgjörð sem tryggir sjálfbærni geir- ans, að ekki verði gengið svo á náttúruna að skemmdir hljótist af og að ferðamenn verði ekki fældir frá landinu aftur með okri og handahófskenndri ákvarðanatöku. Það verður torvelt að finna öllum þessum nýju hótelum hlutverk ef ferðamenn hættir að langa til Íslands. Nú er nýhafin gjaldtaka á vinsælum ferðamannastöðum, þar sem ekki hefur verið innheimtur aðgangseyrir áður. Við Kerið hefur bæst gjaldtaka í landi Reykjahlíðar fyrir norðan, við Leirhnjúk og austan Námaskarðs. Landeigendur hafa stigið þetta skref í andstöðu við samtök ferðaþjónustu í landinu og að því er virðist stjórnvöld. Afstaða þeirra er hins vegar um margt skiljanleg. „Þetta snýst ekkert um frjálsa för fólks heldur flutning á fólki inn á okkar svæði þar sem einhverjir græða á meðan við þurfum að borga alla uppbyggingu. Þetta er löngu komið út fyrir ein- hvern almannarétt. Jónsbók var ekki hugsuð um það að selja þúsundum ferðamanna ár hvert inn á svæði í einkaeigu,“ sagði Ólafur H. Jónsson, forsvarsmaður Landeigendafélags Reykja- hlíðar, í viðtali við Fréttablaðið í vikunni. Sömu lögmál eiga við á Geysi þar sem ríkið kom fyrr á þessu ári, í krafti eignarhlutar á svæðinu, í veg fyrir áframhaldandi gjaldtöku. Stefnuna vantar hins vegar. Raunar er furðulegt að enn þá skuli vera fundahöld, japl, jaml og fuður um hvernig skuli staðið að uppbyggingu og vernd ferðamannastaða. Að Samtök ferðaþjónustunnar skuli í júní 2014 vera með fundaröð um landið vegna gjaldtöku til uppbyggingar á ferðamannastöðum. Að lagarammann skorti. Sofandahátturinn er algjör og í takt við stefnu stjórnvalda síðustu áratugi þegar kemur að nátt- úruminjum og náttúruvernd. Haldi áfram vandræðagangur og stefnuleysi hvað varðar umgjörð, viðhald, uppbyggingu og verndun vinsælla ferða- mannastaða hér á landi er erfitt að spá fyrir um málalok. Hvort gjaldtökuskýli landeigenda hér og hvar um landið verði til þess að skaða orðspor landsins sem náttúruparadísar, eða hvort einhvers konar jafnvægi náist. Hvort fjármunir sem aflað er fari örugglega í þau verkefni sem lýst var yfir að þeir ættu að gera. Einhvern veginn verður þetta. En hvort það reddast, það er óvíst. Vinda þarf ofan af óheillaþróun í ferðaþjónustu. Partí úr böndum Óli Kristján Ármannsson olikr@frettabladid.is Samtök atvinnulífsins létu það álit í ljós á dögunum að afnema ætti þá undanþágu frá samkeppnislögum sem afurðasölufyrirtæki í mjólkur- iðnaði njóta. Þetta leiddi til nokk- urra ýfinga innan dyra. Afurða- sölurnar ríghalda í þessa skipan. Alþingi ákvað þetta frávik frá meginreglum samkeppnisréttar- ins á sínum tíma. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan. Fyllilega var því tímabært að einhver ræki hornin í þessa tímaskekkju. Með nokkurri einföldun má segja að samkeppnisréttur- inn geymi brýnustu siðareglur viðskiptalífsins. Frá leitt væri að halda því fram að siðgæðisvit- und þeirra sem halda vilja í undanþáguna sé rýrari en ann- arra sem stunda viðskipti. En fram hjá því verður ekki litið að þetta eðli sam keppnis réttarins gerir ríkari kröfur til rökstuðn- ings fyrir frávikum en fram hefur komið. Þegar að öllu er gætt er mjólk alls ekki þeirrar sérstöku nátt- úru að viðskipti með hana þurfi að vera á einhverju öðru plani en almennt gengur og gerist. Ekki kæmi á óvart að margir bændur hefðu í raun metnað til þess að vera ekki á undanþágu frá lög- bundnum siðareglum þegar kemur að við skiptum með afurðir þeirra. Athyglisvert er að ekkert hefur heyrst um afstöðu stjórnvalda til þessa álitaefnis. En í raun gefur þessi litla áminning Samtaka atvinnulífsins tilefni til að spyrja spurninga um landbúnaðarkerfið í heild. Hver er framtíðarsýn stjórn- valda með þessa rótgrónu atvinnu- grein? Frjáls landbúnaður Enginn atvinnuvegur býr við jafn rammgerð höft og land-búnaðurinn. Bændur njóta framtakssemi sinnar upp að ákveðnu marki. Eigi að síður lýtur vöxtur og viðgangur greinarinnar pólitískri miðstýringu. Það merki- lega er að um landbúnaðarstefnuna hefur verið breið sátt. Ágrein ingur um hana hefur ekki komið upp á ríkisstjórnarborðið í áratugi. Á það er að líta í þessu sam- hengi að framleiðniaukning hefur orðið í flestum greinum land- búnaðarins. Búskapur er víða til fyrir myndar. Vöruvöndun hefur farið fram og vöruframboð batn- að. Því má heldur ekki gleyma að landbúnaður er ríkisstyrktur í flestum ríkjum þó að óvíða sé það í jafn miklum mæli og hér. Allt kunna þetta að vera skýr ingar á þeirri kyrrð sem ríkt hefur um landbúnaðarstefnuna. Þrátt fyrir þetta bendir margt til að komið sé að vegamótum. Að minnsta kosti er engan veg- inn sjálfgefið að unnt sé að halda áfram á sömu braut. Ekki er einu sinni víst að vilji til að halda í gamalt kerfi dugi til að halda í horfinu. Aðstæður eru að breytast það hratt að ekki verður hjá því komist að horfast í augu við það sem skrifað er á vegginn. Velja þarf nýja leið til að viðhalda land- búnaði í landinu. Allar grundvallarbreytingar eru flóknar og viðkvæmar. Eins og ævinlega þegar hagsmuna- árekstrar verða munu ýmsir telja að þeir verji stöðu sína best með því að horfast ekki í augu við breytta tíma og nýjar aðstæður. En þá er hollt að hafa í huga að öll miðstýrð kerfi hafa sinn tíma og engum er greiði gerður með því að festast í tímaskekkju. Komið að vegamótum Þótt litið sé fram hjá gömlum og nýjum hugmyndafræði-legum ágreiningi um mið- stýringu og markaðslögmál blasa nú við fjölmörg atriði sem eru aug- ljós viðvörunarmerki. Nefna má tvö til skýringar: Annað veit að skattgreiðendum. Þeir geta ekki greitt niður ríkis- skuldirnar með þeim hraða sem nauðsyn krefur. Þá ráða þeir ekki við þá miklu og óhjákvæmilegu fjárfestingu í húsnæði og tækni í heilbrigðiskerfinu sem fram undan er á næsta áratug. Við svo búið hafa skattborgararnir ein- faldlega ekki efni á þeim gríðar- legu háu styrkjum sem nú renna til landbúnaðarins. Þessi forgangs- röðun verður ekki umflúin. Og þegar skattborgararnir breytast í launafólk og neytendur hafa þeir heldur ekki efni á þeirri ramm- gerðu tollvernd sem er við lýði. Hitt atriðið veit að bændunum sjálfum. Því eru einfaldlega tak- mörk sett hversu langt er unnt að ganga í hagræðingu og fækkun býla til að ná nauðsynlegri fram- leiðniaukningu. Heilu héruðin munu óhjákvæmilega láta undan að öllu óbreyttu. Margt bendir til að eina leiðin til framleiðniaukn- ingar í framtíðinni sé aukið oln- bogarými á stærri mörkuðum og meira verslunarfrelsi. Sumir munu ekki standast slíkar breytingar en aðrir munu finna í þeim nýja viðspyrnu. Alltént er engin átakalaus leið sýnileg fyrir bændur. En vöxturinn í ferðaþjón- ustu mun auðvelda byggðunum að laga sig að nýjum aðstæðum í land- búnaði ef menn opna augun. Það er fyrst og fremst viðfangs- efni stjórnmálanna að bregðast við. En áhyggjuefni er að land- búnaðarráðherrann sýnir enga skapandi hugsun um nýjar leiðir og ný markmið. Svo eru það þeir sem gæta hagsmuna launafólks og framleiðenda. Þeir verða einnig að taka þátt í málefnalegri umræðu. Augljós viðvörunarmerki ++

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.