Fréttablaðið - 21.06.2014, Qupperneq 26
21. júní 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 26
Þegar blaðamann ber að garði situr Dagur við skrifborðið inni á skrif-stofu borgarstjóra í Ráð-húsinu þar sem hann er nýfluttur inn. „Ég er
búinn að ganga inn á gömlu skrif-
stofuna mína á hæðinni fyrir neðan
þrisvar í dag,“ segir Dagur og hlær.
Dagur fæddist árið 1972 og er
kvæntur Örnu Dögg Einarsdóttur.
Saman eiga þau fjögur börn, lækn-
irinn og borgarstjórinn.
„Ég held að það þurfi ákveðna
blöndu af skipulagi, umburðarlyndi
og úthaldi – og stundum er þetta
bara erfitt, ég verð að viðurkenna
það. Við erum bæði með stífa dag-
skrá en höldum úti nokkurs konar
stundatöflu sem við skráum viku
fram í tímann. Svo byrjuðum við
að gera vikumatseðil líka. Ég mæli
með því – það er líka sparnaðar-
ráð. Þá höldum við fjölskyldufund á
sunnudögum, horfum á hvað er til í
ísskápnum og krakkarnir taka þátt
og segja sitt.“
Sefurðu eitthvað? „Fæ oftast
mína sex-sjö tíma,“ segir Dagur og
hlær. „Stundum minna.“
Komst ekki inn í MH
Dagur ólst upp í Árbænum og tók
virkan þátt í félagsstarfi. „Ég var
um það bil í öllu sem ég gat prófað
– handbolta, fótbolta og lúðrasveit
Árbæjar og Breiðholts þar sem ég
spilaði á þriðja trompet. Ég prófaði
fimleika og var í dansskóla Heiðars
Ástvaldssonar. Ég sótti svo um í MH
og komst ekki inn og ætlaði þá að
vera í öskunni til áramóta og byrja
svo í MH – en fékk ekki vinnu. Ég
heyrði síðar að maður hefði þurft að
vera í Sjálfstæðisflokknum til að fá
að vera í öskunni. Fyrir röð tilvilj-
ana endaði ég í MR og sá ekki eftir
því. Það var mjög gaman. Þaðan lá
leið mín í læknisfræði og þegar ég
var á fimmta ári kynntist ég Örnu,“
heldur Dagur áfram.
„Ég kynntist henni í gegnum syst-
ur hennar sem var með mér í læknis-
fræðinni. Arna var alin upp í Svíþjóð
þar sem pabbi hennar er læknir og
hún var að læra í Svíþjóð en vann við
rannsóknir í Íslenskri erfðagrein-
ingu á sumrin. Mig grunar enn að
þetta hafi verið gildra. Mér var boðið
í mat og þegar ég mæti er Hulda,
sem bauð mér í matinn, hvergi sjáan-
leg en bara Arna. Hulda var í klipp-
ingu og litunin hafði mistekist svona
rosalega, sem ég trúi svo sem alveg
því að þegar Hulda kom aftur tveim-
ur tímum seinna var hún með grænt
hár. Þá hafði endurlitunin misheppn-
ast líka. Við Arna vorum þá komin
vel ofan í rauðvínsflöskuna og þetta
eiginlega bara small með miklum
hvelli strax um sumarið. Þetta var
árið 1998,“ rifjar Dagur upp.
Arna starfar sem sérfræðingur í
lyflækningum á líknardeild Land-
spítalans í Kópavogi.
„Það er erfitt starf og til þess að
vinna það þarf mjög sérstakt fólk.
Arna er mjög sérstök manneskja.
Ég er oftar stoppaður úti á götu og
mér þakkað fyrir eitthvað sem hún
hefur gert en fyrir eitthvað sem ég
hef gert.“
En hefur þú aldrei efast um
starfsvalið? „Læknisfræðin togar
svolítið í mig. Ég verð að viðurkenna
það. Ég vann sem læknir framan af
í borgarstjórn. Ég var þá á bráða-
móttökunni sem er mjög skemmti-
legur staður að vinna á – mikið að
gerast og dálítill keppnisandi. En
eftir að við byrjuðum að eignast
börnin, þá varð þetta ansi dýr tími
til að eyða í „aukavinnuna“. Vakt-
irnar voru aðallega á kvöldin og um
helgar og það var farið að klípa ansi
mikið af samverustundunum með
fjölskyldunni. Þá hætti ég, en núna
eftir að yngsta er orðin þriggja finn
ég hvernig læknisfræðin er farin að
toga í mig.“
Gætirðu hugsað þér að fara aftur
í læknasloppinn? „Já, algjörlega.
Það er samt ekkert plan um það. En
það er margt í pólitík sem tengist
heilbrigði og lýðheilsu og borgin
hefur heilmikið um það að segja.
Ég dregst alltaf meira og meira að
þannig verkefnum í pólitíkinni.“
Bergþóruson
Dagur er elstur af þremur systkin-
um, sem öll eru náin. Valgerður er
lögmaður, sérfræðingur í Evrópu-
rétti og samkeppnislöggjöf, Gauti
er hagfræðingur og prófessor við
Brown-háskólann á austurströnd
Bandaríkjanna. Dagur segir mik-
inn stuðning í fjölskyldunni.
En af hverju ertu Bergþóruson?
„Mamma er mikill nagli og ég er
fæddur í Ósló. Mamma og pabbi
voru ekki gift þannig að þegar hún
kom á spítalann átti pabbi ekki að
fá að vera viðstaddur fæðinguna.
Mamma var ekki sátt við það
þannig að hún hysjaði upp um sig
og fór á annað sjúkrahús. Þar fékk
hann að vera viðstaddur. Svo þegar
átti að útskrifa mig þá var ekki við
það komandi ég fengi að vera Egg-
ertsson. Ég átti að vera Jónsdóttir
eins og mamma, en hún gaf sig ekki
fyrr en þessi millilending varð til –
ég var skráður Bergþóruson og hef
haldið þessu nafni móður minnar
með stolti og bætti svo síðar Egg-
ertsson við.“
Dagur segir þetta orðna reglu í
fjölskyldunni. Systkini hans eru líka
kennd við báða foreldra.
„Ég á bróður sem er tveimur
árum yngri. Við vorum mjög nánir.
Við ólumst upp í svona IKEA-kojum,
sem voru síðan sagaðar í tvennt og
höfðagaflarnir settir saman. Þannig
að við töluðum hvor annan í svefn á
hverju einasta kvöldi. Hann hefur
verið að vinna hjá Seðlabankanum
og er núna orðinn prófessor.“
Ráðfærir þú þig mikið við hann?
„Já, ég hef alltaf gert það.“
Tók sig í gegn
En hvernig er að fylgja í fótspor
Jóns Gnarr? „Lykillinn að því að
gera það vel er að reyna það ekki.
Ég held að það fari enginn í fötin
hans Jóns. Framboð Jóns var gæfa
fyrir borgina og samfélagið eftir
hrun. Umræðan einkenndist af
reiði, réttlátri reiði og eins og við
sjáum mjög víða í Evrópu þá getur
svona ólga farið í alls konar áttir.
Jón steig fram og veitti henni í mjög
uppbyggilegan farveg að mínu mati.
Og ferill hans gerði meira. Jón er
tákn um það að Reykjavík og Ísland
sé samfélag þar sem alls konar fólk
geti látið drauma sína rætast. Þetta
hefði svo auðveldlega getað farið í
allt aðra átt. Og ástæðan fyrir því
að Jón fær þennan gríðarlega stuðn-
ing, þó að hann hafi í raun ekki teflt
neinu hefðbundnu fram í kosninga-
baráttunni, er ekki sú að hann er
svo vinsæll og fyndinn. Það er ekki
nóg, þótt hann sé hvort tveggja.
Ástæðan fyrir því að hann gat
gert þetta er að hann í gegnum sinn
langa feril hefur náð eyrum stórs
hóps í samfélaginu sem hlustar
almennt ekki á stjórnmálamenn.
Hann hefur einnig traust þeirra,
því hann hefur unnið til þess. Hann
er alltaf heiðarlegur og sam kvæmur
sjálfum sér. Og hann berst gegn
frekju, ofríki og ofbeldi. Ég held
að margir vanmeti þann þráð, því
Jón hefur alltaf barist fyrir friði
og gegn ofbeldi, sem grínisti, sem
útvarps- og sjónvarpsmaður. Það
er sterkur og húmanískur þráður í
honum sem springur út á magnaðan
hátt í borgarstjórahlutverkinu. Og
ekki bara á Íslandi. Það er ótrúlegur
áhugi á honum úti um allt.“
Finnst þér orðræðan hafa breyst
í pólitík? Er fólk ekki aðeins minna
leiðinlegt eins og Jón orðaði það
sjálfur? „Ég vona það. Mér fannst ég
alla vega þurfa að taka sjálfan mig
í gegn. Það er svo auðvelt að bara
tala eða romsa staðreyndunum upp
úr sér … spila plötuna. Nota einhver
orð eða frasa sem maður hefur til-
einkað sér eins og maður gerir. Ég
hef reynt að bæta mig í þessu, tala
styttra og meira beint frá hjartanu.
Örugglega er hægt að finna í því
góð áhrif frá Jóni.“
Finnur þú það að borgin hafi
skipst í tvær fylkingar gagnvart
Jóni? „Já, það var áberandi. Sér-
staklega í borgarstjórninni en
ekki á meðal fólksins í Ráðhúsinu.
Stóra breytingin var sú að það voru
margir sem höfðu efasemdir um
Jón. Þetta fólk lét þær skoðanir í
ljós við mig þegar við mynduðum
meirihlutann. Ég fékk að heyra
að ég væri í ruglinu og þetta væri
feigðarflan og ég ætti eftir að sjá
eftir þessu. Núna hefur stór hluti
þessa hóps viðurkennt og sagt að
það hafi komið þeim á óvart, hvað
þetta gekk vel. Ég veit að í mínum
flokki voru margir sem töldu þetta
samstarf mikla háskaför.“
Hvernig líst þér á nýju samstarfs-
félagana í Framsókn? „Ég átta
mig engan veginn á Framsóknar-
flokknum eða á hvaða leið hann er.
Ég er hugsi og ætla að halda áfram
að gefa þeim svigrúm til að útskýra
sitt mál. Orðum fylgir alltaf ábyrgð.
Og þegar fólk er komið í stjórnmál
er auðvitað sérstaklega mikilvægt
að átta sig á þeirri ábyrgð. Þú getur
verið að segja hluti sem særa, eða
einhvern veginn gefa þau skilaboð
að hatur eða fyrirlitning gagnvart
einhverjum öðrum sé í lagi, sem það
er aldrei.“
Ólöf
Skaftadóttir
olof@frettabladid.is
Mér fannst ég alla
vega þurfa að taka sjálfan
mig í gegn. Það er svo
auðvelt að bara tala eða
romsa staðreyndunum
upp úr sér … spila plötuna.
Nota einhver orð eða frasa
sem maður hefur tileinkað
sér eins og maður gerir. Ég
hef reynt að bæta mig í
þessu, tala styttra og
meira beint frá hjartanu.
Arna er mjög sérstök
manneskja. Ég er oftar
stoppaður úti á götu og mér
þakkað fyrir eitthvað sem
hún hefur gert en fyrir
eitthvað sem ég hef gert.
Fékk að heyra að ég væri í ruglinu
Dagur Bergþóruson Eggertsson ólst upp í Árbænum, fór í MR og þaðan lá leið hans í læknisfræði. Hann á tólf ára stjórn-
málaferil að baki og er nú borgarstjóri í Reykjavík– í annað sinn. Hann á fjögur börn með eiginkonu sinni, Örnu Dögg, sem
er læknir eins og hann. Hann segir dagskrána á heimilinu oft þétta. Dagur ræðir fjölskylduna og samstarfið við Jón Gnarr.
MARGIR HÖFÐU
EFASEMDIR UM
JÓN GNARR
Dagur segir
marga hafa látið
í sér heyra þegar
hann átti þátt
í því að mynda
meirihluta í
borginni 2010
og gera Jón að
borgarstjóra.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR