Fréttablaðið - 21.06.2014, Qupperneq 38
FÓLK|HELGIN
MANGÓSALSA
1 þroskað mangó
2 rauðar paprikur, grillaðar
½ lárpera
2 msk. smátt skorið, ferskt kóríander
safi úr einni límónu
2 msk. olía
salt og nýmalaður pipar
Skerið mangó, lárperu og papriku
í litla bita. Blandið olíu saman við
ásamt kóríander, salti, pipar og lím-
ónusafa. Gott er að hafa rauðlauk og
chili-pipar að auki en það þarf ekki.
Berið olíu á kjötið og bragðbætið
með salti og pipar. Grillið kjötsneið-
arnar og tortillurnar. Setjið kjöt,
salsa og smávegis gráðost yfir og
rúllið kökunum upp. Vel má bæta
salatblöðum saman við.
Það má líka nota kjúkling í stað
nautakjöts. Einnig má nota brie eða
camembert í stað gráðosts, allt eftir
smekk hvers og eins.
TORTILLA MEÐ NAUTAKJÖTI,
GRÁÐOSTI OG MANGÓSALSA
FYRIR FJÓRA
4 tortillur
250 g nautasteik, skorin í strimla
80 g gráðostur
2 msk. olía
salt og pipar
Bókin sem ég er að lesa er Piparkökuhúsið eftir sænska rithöfundinn Carin
Gerhardsen,“ segir Jón Geir, sem
fékk bókina lánaða hjá vini sínum
sem fannst titillinn eitthvað svo
súr og áhugaverður, svona um
hásumarið.
„Í stuttu máli sagt er þetta
alveg hrikalega spennandi bók
með góðri slettu af hryllingi. Inn-
blástur höfundar er að einhverju
leyti eigin reynsla úr barnæsku en
þarna eru virkilega áhugaverðar
pælingar um hvernig glæpamaður
verður til. Allar manneskjur eru jú
góðar þegar þær fæðast, en svo
gerist eitthvað á lífsleiðinni sem
veldur því að fólk „snappar“ bara.
Það sem er eiginlega mest krípí er
að þetta gæti allt eins verið fólkið
í næsta húsi,“ segir Jón Geir sem
er heillaður af Piparkökuhúsinu:
„Bókin er spennutryllir sum-
arsins!“
Nú stendur grilltíminn sem hæst og þá er gott að fá hugmyndir um eitthvað sniðugt á grillið. Hér eru uppskriftir að mexí-
kóskum tortilla-kökum með nautakjöti og svínalund fylltri með gráðosti. Ljúffengir og einfaldir réttir á góðum sumardegi.
TORTILLA MEÐ NAUTAKJÖTI
OG SVÍNALUND Á GRILLIÐ
GRILLUÐ TORTILLA Það er ýmislegt
hægt að setja ofan á grillaða tortillu, til
dæmis gott nautakjöt.
KRÍPÍ LESNING Jón Geir, trommari í Skálmöld, getur ekki sleppt takinu af spennutrylli
sumarsins enda er hann hrikalega spennandi. MYND/ARNÞÓR
SPENNUTRYLLIR
SUMARSINS
FORLAGIÐ KYNNIR Jón Geir Jóhannsson, trommari Skálmaldar, er mikill
bókanjörður og næstum alæta á bækur en yfirleitt eru það vísindaskáldsögur
og myndasögublöð sem heilla – enda er hann ekki að vinna í Nexus fyrir ekki
neitt. Að þessu sinni greip Jón Geir í glænýja spennubók.
SVÍNALUND MEÐ GRÁÐOSTA-
OG PISTASÍUSMJÖRI
FYRIR FJÓRA
Góður kvöldmatur fyrir fjölskylduna
eða gesti á góðviðrisdegi. Mangó-
salsa úr uppskriftinni hér að ofan
passar einnig með þessum rétti.
700 g svínalund
6 sneiðar parmaskinka
100 g gráðostur
50 g smjör, mjúkt
3 msk. pistasíuhnetur
Blandið saman osti, smjöri og
smátt söxuðum pistasíuhnetum.
Setjið bökunarpappír eða plast-
filmu utan um smjörið, rúllið upp
og geymið í ísskáp.
Hreinsið himnuna af lundinni með
beittum hníf. Skerið vasa í kjötið og
fyllið með smjörkryddinu. Klemmið
kjötið aftur saman og kryddið með
salti og pipar. Vefjið skinkusneið-
um utan um kjötið og vefjið bandi
yfir svo að allt haldist fast.
Penslið lundina með olíu og leggið
á heitt grill í um það bil 15 mínútur.
Snúið kjötinu nokkrum sinnum
meðan á eldun stendur. Slökkvið
á grillinu og látið kjötið hvíla á því
í 10–15 mínútur. Berið fram með
góðu, grilluðu grænmeti eða fersku
salati og afganginum af smjör-
kryddinu.
Afleysingamenn leigubílstjóra
Námskeið
Með vísun til laga nr. 134/2002 um leigubifreiðar,
gengst Samgöngustofa fyrir námskeiði fyrir
afleysingamenn leigubílstjóra í Ökuskólanum í
Mjódd dagana 24., 25. og 26. júní n.k.
Næsta námskeið eftir það verður síðan haldið í
september n.k.
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
Flott föt fyrir flottar konur
stærðir 38-58
*P
re
nt
m
ið
la
kö
nn
un
C
ap
ac
en
t o
kt
ób
er
–d
es
em
be
r 2
01
2
–
hö
fu
ðb
or
ga
rs
væ
ði
2
5-
54
á
ra
Innskot í Fréttablaðið skilar árangri!
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
Fréttablaðið er mest lesna dagblaðið með glæsilegt forskot
á keppinautana. Meðallestur Fréttablaðsins í aldurshópnum
25-54 ára er 73% á höfuðborgarsvæðinu.*
Við bendum auglýsendum á að notfæra sér forskotið þegar
þeir velja dreifingarleið fyrir fjölpóst sinn. Við dreifum sex
daga vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins.
Hafðu fjölpóstinn þinn inni í Fréttablaðinu.
Það er áhrifarík leið til að koma skilaboðum um vöru eða
þjónustu beint inn á heimilin.
Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448
eða í tölvupóstfangi fjolpostur@frettabladid.is
HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN
Í FRÉTTABLAÐINU