Fréttablaðið - 21.06.2014, Qupperneq 63
KYNNING − AUGLÝSING Húð og hár21. JÚNÍ 2014 LAUGARDAGUR 5
Proderm er langvirk sólar-
vörn sérstaklega þróuð fyrir
viðkvæma norræna húð.
Húðlæknar mæla með Pro-
derm fyrir allar húðgerðir og
fólk með viðkvæma húð sem
hættir til að fá sólarexem.
Grunnformúla Proderm er
læknisfræðilega skráð. Pro-
derm er með hæstu gæðavörn
gegn UVB- og UVA-útfjólu-
bláum geislum og er í flokki
sólarvarna með fimm stjörn-
ur fyrir UVA-vörn sem er eft-
irsótt gæðaviðurkenning.
Þolir sund, sjó, klórvatn,
svita og handklæði
Sólarvörnin myndar raka-
fyllta vörn í dýpsta hornlag
húðarinnar sem styrkir varn-
ir húðarinnar og ver hana í
langan tíma. Hægt er að fara
í sund, sjó, svitna og þurrka
sér með handklæði án þess
að vörnin fari af eða nuddist
í fatnað.
Hentar allri fjölskyldunni
Proderm er í froðuformi og
því afar þægilegt að bera hana
á. Hún smýgur fljótt inn í húð-
ina sem verður laus við fitu,
klístur og allan glans. Húðin
verður mjúk og rakafyllt.
Sólarvörnin hentar fyrir
alla fjölskylduna og má bera
hana á allan líkamann, and-
lit, hársvörð og líka varir sem
verða silkimjúkar og þorna
ekki. Formúlan gerir það að
verkum að vörnin fer ekki af
þó fólk borði eða setji vara-
lit yfir.
Proderm er örugg vörn
fyrir börn allt frá sex mán-
aða aldri. Varan inniheldur
enda ekkert paraben, engin
ilm- eða litarefni og ekki er
notuð nein nanótækni við
framleiðslu hennar.
Valin besta sólarvörnin
í óháðum prófunum
Proderm-sólarvörnin hefur
fengið afar góðar umsagnir
víða um heim. Sænsku Viti-
ligo (skjallbletta) húðsamtök-
in hafa útnefnt Proderm sem
öruggustu sólvörnina fyrir
sína meðlimi. Skjallblett-
ir eru hvítir flekkir á líkam-
anum þar sem vantar allar
litafrumur. Þetta er tilkomið
vegna sjálfsofnæmis.
Proderm var valin besta
sólarvörnin í óháðum próf-
unum sem stóðu yfir heilt
ár á sólarströnd, í heitum
vinda sömum eyðimerkur-
sandi, í sjósundi og í kletta-
fjallgöngum. Í þeim prófun-
um reyndist Proderm best.
Eins hafa virt erlend tíma-
rit og húðsamtök valið Pro-
derm sem bestu sólarvörn-
ina og besta „after sun“.
Íþrótta- og sundkeppnis-
fólk notar Proderm
Ein af þeim er ein frækn-
asta sundkona lands-
ins, Eygló Ósk Gúst-
afsdóttir hjá sund-
félaginu Ægi. Eygló er
Ólympíufari og marg-
faldur Íslandsmeistari
og methafi. Keppn-
isfólk hjá sundfélög-
um á borð við Stjörnuna
og Ægi bera mikið lof á
Proderm vegna þess hve vel
það reynist í sundi.
Vernd gegn húðöldrun
Proderm mettar húðina af
raka og ver húðina gegn
þurrki, hrukkum og brúnum
húðblettum.
Proderm veitir góða vörn
fyrir þá sem eru með bólur, í
því er engin fita og það tepp-
ir ekki húðina. Eins þá sem
hafa nýlega farið í leiser-
meðferðir á húð eða eru með
ný ör. Þá er hún einnig vörn
gegn brúnum húðblettum
og kemur í veg fyrir að tattú
upplitist í sólinni.
Proderm After Sun veitir
mikla og langvirka kælingu
eftir heitan sumardag, mýkt
og raka og er með kælandi
aloe vera og kamillu. After
Sun frá merkinu fær mikið
lof húðfræðinga sem hafa
valið Proderm bestu „after
sun“-vöruna.
Umbúðirnar frá Proderm
eru bakteríuheldar og halda
vörninni ferskri og því er
óþarfi að henda restum.
Langvirk sólarvörn sem
reynist best, segir Eygló Ósk
Proderm-sólarvörnin hefur lengi verið notuð af afreksíþróttafólki sem þarf á hámarksvörn að halda við erfiðustu aðstæður. Proderm
hentar þó einnig vel í garðinum heima sem og á ströndinni fyrir alla fjölskylduna. Afrekssundkonunni Eygló Ósk Gústafsdóttur
finnst Proderm vera besta sólarvörnin fyrir sig í sundi og í sól.
MYND/ARNÞÓR
Eygló Ósk:
„Proderm-sólarvörnin
hefur reynst mér best. Ég þarf
oft að vera klukkutímum saman í
sundi og æfi oft í sterkri sól. Með því
að nota Proderm brennur húðin aldrei
og húðin helst mjúk og þornar ekki af
klórvatninu. Sólarvörnin er langvirk og
fl jótlegt að bera froðuna á mig, það
myndast engin fi tuáferð á húðinni,
ég er sérlega ánægð líka með
hvað sólarvörnin er drjúg
og endingargóð.“
Fríða María Harðardóttir hefur starfað sem förð-
unarfræðingur í fjöldamörg ár. Hún hefur komið
að auglýsingum fyrir stórfyrirtæki og farðað
fyrir kvikmyndir, sjónvarpsþætti, leikhús og á
tískusýningum.
Fríða María Harðardóttir er einn af eftirsóttustu förð-
unarfræðingum landsins. „Ég hef notað Proderm sólar-
vörnina í mörg ár, bæði fyrir sjálfa mig og vegna vinnu
minnar. Ég hef til dæmis notað Proderm fyrir tökur í
heitum löndum, í vatni og á jöklum. Ég hef notað sólar-
vörnina á ljósa og viðkvæma húð og mjög dökka húð og
alltaf með mjög góðum árangri,“ segir Fríða María og
bendir á að Proderm gefi mikinn raka.
„Kostir Proderm eru margir og mikilvægir. Til dæmis
virkar sólarvörnin sérlega vel undir farða fyrir ljós-
myndatökur sem og kvikmyndatökur þar sem áferð-
in verður ekki olíukennd. Þá myndast ekki hvít slikja af
henni og förðunin situr vel á húðinni,“ segir Fríða María.
Hún segir Proderm jafnframt aðlagast húðinni mjög
vel svo hún verður ekki klístruð. Froðan þorni fljótt og
því auðvelt að bera farða ofan á hana.
„Proderm endist lengi á húðinni og þolir vel svita og
vætu. Ef mér finnst þörf á að bæta á sólarvörn þegar líða
tekur á daginn er það lítið mál enda hægt að bera Pro-
derm yfir förðunina án þess að hún fari úr skorðum.“
Fæst í apótekum, Hagkaup og Fríhöfninni. Umboð: Celsus. www.proderm.is.
Notar alltaf Proderm