Fréttablaðið - 21.06.2014, Síða 68
21. júní 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN KRAKKAR | 32
Krakkagátur
Hvað heitirðu! Freyja Dís.
Hvað ertu gömul? Níu að
verða tíu í haust. Hvað er
skemmtilegast við bækur?
Veit það ekki alveg, bara að
lesa þær. Hvaða bók lastu
síðast og um hvað var hún?
Pappírs-Pésa. Hún var um
það að hann fór í sveit og
hitti stelpu sem var frænka
Magga og Pappírs-Pési vildi
fela að hann væri lifandi.
Þegar hún komst að því að
Pappírs-Pési var lifandi bjó
hún til sína eigin pappírs-
stelpu. Og þau týndust í
heyinu. Hvaða bók lastu á
undan Pappírs-Pésa? Það var
önnur bók um Pappírs-Pésa.
Manstu eftir fyrstu bók-
inni sem var í uppáhaldi hjá
þér? Pabbi var alltaf að lesa
fyrir mig Sætabrauðsdreng-
inn þegar ég var lítil, mér
fannst hún mjög skemmtileg.
Hvers lags bækur þykja þér
skemmtilegastar? Spennu-
bækur eða bækur sem eru
spennandi. Í hvaða skóla
gengur þú? Árbæjarskóla.
Ferðu oft á bókasafnið? Já,
svolítið. Oftast á þetta bóka-
safn (Ársafn). Hver eru þín
helstu áhugamál? Klifur og
box, núna er ég á bootcamp-
námskeiði. Ertu búin að lesa
Ronju Ræningjadóttur? Nei,
ég hlakka til að lesa hana.
Freyja Dís 9 áraLestrarhestur vikunnar
Að venju efna Borgarbókasafn og Reykjavík Bókmenntaborg til sumarlesturs á meðal barna. Fyrir hverja lesna bók skrá les-
endur nafn sitt og titil bókarinnar á þar til gerða miða og skila í kassa sem eru í öllum söfnum Borgarbókasafns. Vikulega
er dregið eitt nafn úr kassanum og Lestrarhestur vikunnar útnefndur, sem hlýtur bók að launum frá Forlaginu.
Hvað er það sem ég á og þú notar eins og þér sýnist?
1. Hver er þinn
æðsti draumur?
Að allir leiki sér saman í alls
konar leikjum og að allar fjöl-
skyldurnar og vinirnir séu
saman og allir leggi sig fram
um að hafa gaman.
2. Af hverju ertu
svona sterk?
Af því að ég get allt sem ég
vil, ef ég er dugleg að æfa mig
og trúi nógu mikið að ég geti
það, þá hefst það auðvitað
á endanum!
3. Hvað heitir
hesturinn þinn?
Ég kalla hann bara Litla Kall!
Það heitir hann bara.
4. Hvað áttu marga
gullpeninga?
Ég er ekkert voðalega góð í
fargnöldrun þó að ég geti flest
en ég myndi giska á hoon-
hundrað-sjötjúfúsund-átta-
tíuogtuttuguogníuþúsund.
5. Hvar er pabbi þinn?
Hann er einhvers staðar í
Karíbahafinu, þar sá ég hann
síðast að minnsta kosti. Við
vorum á sjóræningjaskipinu
okkar á siglingu þegar alda kom
úr óveðrinu og steypti pabba
mínum í sjóinn. Ég hugsa að
hann hafi flotið á skipinu á
einhverja eyju þar sem hann
situr og hámar í sig hákarla úr
sjónum. Skipið okkar nær svo
í hann og kemur með hann til
mín á Sjónarhól, örugglega.
Það vona ég að minnsta kosti.
Óhrædd
Lína Lang-
sokkur skilur
ekki hvers
vegna maður
ætti að vera
hræddur.
Nafnið mitt
Hvað er það sem lengist
og styttist í senn?
Ævin
Hvað varð um strákinn sem
var svo flinkur að herma eftir
fuglunum?
Kötturinn át hann.
Hvað er það sem er samsett
úr mörgum götum en getur þó
haldið vatni? Svampur.
Hvað er það sem sekkur í sæ en
blotnar ekki? Sólin.
Bragi Halldórsson
101
6. Númer hvað eru
skórnir þínir?
Það stendur á þeim 47!
7. Hvað ætlarðu að verða
þegar þú verður stór?
Sjóræningi!! Eins og pabbi
minn.
8. Hvort er skemmtilegra,
Tommi eða Anna?
Þau eru bæði bestu vinir
mínir!
9. Ertu hrædd við eitthvað?
Nei, auðvitað ekki! Til hvers er
það eiginlega?
10. Er sviðið í Borgarleik-
húsinu nógu stórt fyrir
þig?
Í vetur að minnsta
kosti!
Notar skó
númer 47
Lína Langsokkur stígur
á stóra sviðið í Borgar-
leikhúsinu í vetur þar
sem hún ætlar að skemmta
áhorfendum á öllum aldri. Hún
á fullt af gullpeningum og hest sem
hún kallar
bara Litla Kall.