Fréttablaðið - 21.06.2014, Page 75

Fréttablaðið - 21.06.2014, Page 75
LAUGARDAGUR 21. júní 2014 | TÍMAMÓT | 39 Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SVEINN ÁGÚSTSSON skipaverkfræðingur, Wilhelmshaven, Þýskalandi, lést í Wilhelmshaven miðvikudaginn 11. júní. Útförin hefur farið fram í Wilhelmshaven. Ursula Ágústsson Olaf Sveinsson Álfheiður J. Guðbjartsdóttir Heiða Dünnfelder (áður Sveinsdóttir) Harald Dünnfelder og barnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, systur, mágkonu, ömmu og langömmu, GUÐNÝJAR INGIBJARGAR ÞORVALDSDÓTTUR frá Eystra-Miðfelli, síðast til heimilis á Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimili, Akranesi. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins Höfða. Þorvaldur Valgarðsson Valgerður Gísladóttir Jón Valgarðsson Heiðrún Sveinbjörnsdóttir Jónína Erla Valgarðdóttir Elín Valgarðsdóttir Bjarni Steinarsson Valdís Inga Valgarðsdóttir Sæmundur Víglundsson Jóhanna Guðrún Valgarðsdóttir Bragi Guðmundsson Kristmundur Valgarðsson Böðvar Þorvaldsson Þórunn Árnadóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR ÁRNASON fv. stöðvarstjóri Pósts og síma, lést á Heilbrigðisstofnun Fjallabyggðar sunnudaginn 15. júní. Jarðað verður frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn 28. júní kl. 14.00. Regína Guðlaugsdóttir Þóra Guðmundsdóttir Helena Guðmundsdóttir Böðvar Sigurðsson barnabörn og barnabarnabörn. Okkar ástkæri HAFLIÐI ÞÓRIR JÓNSSON píanóleikari, fyrrverandi gjaldkeri og kaupmaður, Njálsgötu 1, lést sunnudaginn 15. júní. Hann verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju föstudaginn 4. júlí kl. 13.00. Hrönn Ingibjörg Hafliðadóttir Ísólfur Þór Pálmarsson Erla Sigurlína Hafliðadóttir Jónína Hólmfríður Hafliðadóttir Jón Eiríksson barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, mágkona, amma og systir, UNNUR GUÐRÚN BALDURSDÓTTIR Glósölum 7, lést 13. júní síðastliðinn á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Útför hennar fer fram þriðjudaginn 24. júní kl. 13.00 frá Digraneskirkju í Kópavogi. Sævar Egilsson Ingibjörg Þorvaldsdóttir Jón Arnar Guðbrandsson Klara Styrkársdóttir Birna Kristín Baldursdóttir Bergur M. Jónsson Susan Anna Wilson og barnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓHANNA MARGRÉT INGÓLFSDÓTTIR Kleppsvegi 62, sem lést 11. júní sl., verður jarðsungin þriðjudaginn 24. júní kl. 15.00 frá Áskirkju. Sveinn Sigmundsson Lára Sveinsdóttir Gunnar Svavarsson Sigrún Sveinsdóttir Gunnlaugur Júlíusson Katrín Sveinsdóttir Björn Jónsson Björg, Berglind, Sveinn Friðrik, Jóhanna, Jóhann Reynir, Lilja, Óli Þór, María, María Rún, Aron Gunnar, Katrín Þóra, Róbert Þór og Hildur. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, bróðir okkar og tengdafaðir, HAFLIÐI HELGASON Völvufelli 50, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Mörk miðvikudaginn 11. júní. Útförin fer fram frá Háteigskirkju miðvikudaginn 2. júlí kl. 13.00. Barbara Helgason Dagbjört Eva Hafliðadóttir Helga Hafliðadóttir Macho Villie Collins fjölskylda og aðstandendur. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eigimanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, HAFSTEINS INGVARSSONAR tannlæknis, sem andaðist þann 29. janúar 2014. Sérstakar þakkir til lækna og alls starfsfólks krabbameinsdeildar 11E Landspítala. Ragnheiður Jónsdóttir Jón Óskar, Þorvar, Hafsteinn, Hringur og Tindur Hafsteinssynir og fjölskyldur. Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar okkar elskulegu móður, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, HELGU RUNÓLFSDÓTTUR Unnarholtskoti, Hrunamannahreppi, sem lést á Sólvangi þann 14. maí sl. Sérstakar þakkir fær starfsfólk hjúkrunarheimilisins Sólvangs fyrir einkar góða umönnun og atlæti. Hjörleifur Gíslason Hólmfríður Sólveig Haraldsdóttir Guðlaug Gísladóttir Hildur Helga Gísladóttir Kristján Rafn Heiðarsson Unnar Gíslason Hjördís Heiða Másdóttir og fjölskyldur. „Minningarsjóðurinn var settur á fót þegar heimildarmyndin var frumsýnd síðasta haust,“ segir María Rut Reynis, framkvæmdastjóri Minningarsjóðs Ölla sem stofnaður var til minningar um Örlyg Aron Sturluson sem lést aðeins átján ára gamall 16. janúar árið 2000. Örlygur var einn efnilegasti körfubolta- maður landsins og lék með meistaraliði Njarð víkur og A-landsliði Íslands og var valinn fyrstur í lið í fyrsta Stjörnu- leik Körfuknattleikssambands Íslands. „Ölli var mikill íþróttamaður og þannig karakter að hann mátti ekk- ert aumt sjá og stóð upp fyrir minni máttar,“ segir María Rut og segir hug- myndina að minningarsjóðnum hafa kviknað vegna þess að það væri í anda hans en í gær afhenti sjóðurinn Fjöl- skylduhjálp Íslands eina milljón króna sem verður nýtt í að styrkja börn til íþróttaiðkunar sem ekki eiga kost á því vegna bágrar fjárhagsstöðu foreldra eða umsjónarmanna. „Það er talið að um 12.000 börn búi við fátækt á Íslandi, sem er algjör- lega óásættanlegt í svona litlu þjóð- félagi,“ segir hún en stefnt er að því að áherslan verði á að minningarsjóðurinn styðji þetta málefni til frambúðar. „Við vorum líka að skrá félagið til þátttöku á hlaupastyrkur.is þar sem fólk getur skráð sig í Reykjavíkur maraþonið og styrkt minningarsjóðinn í leiðinni,“ segir María Rut en yfir 200 manns ætla að hlaupa fyrir sjóðinn. Fyrir þá sem eru ekki fráir á fæti er hægt að styrkja sjóðinn með því að kaupa heim- ildarmyndina sem gerð var um Örlyg á Facebook-síðu minningarsjóðsins og kostar myndin litlar 1.500 krónur. baldvin@frettabladid.is Styrkja fátæk börn Minningarsjóður Ölla afh enti Fjölskylduhjálp Íslands 1.000.000 krónur í gær en peningarnir fara í að styrkja börn til íþróttaiðkunar sem ekki eiga kost á því. ALLIR ÁNÆGÐIR Mikil gleði ríkti hjá Fjölskylduhjálp í gær. Ölli var mikill íþrótta- maður og þannig karakter að hann mátti ekkert aumt sjá og stóð upp fyrir minni máttar. Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@365.is.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.