Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.06.2014, Qupperneq 88

Fréttablaðið - 21.06.2014, Qupperneq 88
21. júní 2014 LAUGARDAGUR| SPORT | 52SPORT ÚRSLIT HM Í BRASILÍU D-RIÐILL ÍTALÍA - KOSTARÍKA 0-1 0-1 Bryan Ruiz (44.). STAÐAN Kostaríka 2 2 0 0 4-1 6 Ítalía 2 1 0 1 2-2 3 Úrúgvæ 2 1 0 1 3-4 3 England 2 0 0 2 2-4 0 E-RIÐILL SVISS - FRAKKLAND 2-5 0-1 Olivier Giroud (17.), 0-2 Blaise Matudi (18.), 0-3 Mathieu Valbuena (40.), 0-4 Karim Benzema (67.), 0-5 Moussa Siss (73.), 1-5 Blerim Dzemaili (81.), 2-5 Granit Xhaka (87.). HONDÚRAS - EKVADOR Leiknum var ekki lokið þegar Fréttablaðið fór í prentun. LEIKIR DAGSINS F-RIÐILL: Argentína - Íran kl. 16.00 G-RIÐILL: Þýskaland - Gana kl. 19.00 F-RIÐILL: Nígería - Bosnía kl. 22.00 FÓTBOLTI „Sem framherji vil ég alltaf skora en ég get sagt með sanni að ég hafi gefið allt mitt í leikina þannig að ég var ekk- ert farinn að hugsa neikvætt,“ segir Jonathan Glenn, framherji ÍBV, í viðtali við Fréttablaðið um markaþurrðina sem hann gekk í gegnum í fyrstu leikjum sínum hér á landi. Glenn skoraði aðeins eitt mark í fyrstu tíu leikjum sínum með ÍBV, þar með talinn í Lengjubikarnum. Nú er öldin önnur og er framherj- inn búinn að skora fjögur mörk í síðustu þremur leikjum, þar af tvö í 3-0 bikarsigri Eyjamanna á Val í vikunni. „Við höfum lagt mikið á okkur sem lið og nú erum við að upp- skera. Liðið er alltaf að verða betra,“ segir Glenn sem var mikið gagnrýndur, af fjölmiðlum og stuðningsmönnum, eftir fyrstu leikina í Pepsi-deildinni. „Það eru fastir liðir ef liðinu gengur illa. Leikmennirnir þurfa bara að svara því inni á vellinum. Það skiptir engu máli hvað fjöl- miðlarnir segja. Ég hélt bara allt- af áfram að standa mig.“ Síðbúin jólagjöf Glenn er frá Trínidad og Tóbagó en fluttist til Bandaríkjanna til að fara í háskóla þar sem hann spil- aði fótbolta. Honum gekk vel í háskólaboltanum en fékk engu að síður ekki atvinnumannssamning að honum loknum. „Ég hóf að spila í eins konar þriðju deild hjá liði í Jacksonville í Flórída. Ég fékk tækifæri til að fara á reynslu hjá nokkrum liðum en fékk ekki samning. Þarna var ég í fullu starfi og hélt mér í formi því ég gaf drauminn um atvinnu- mennsku ekki upp á bátinn,“ segir Glenn sem útskrifaðist með gráðu í sálfræði og markaðsfræði. Til að halda draumnum lifandi skráði hann sig á úrtaksæfingar hjá Pro Soccer Consulting þar sem starfa vanir þjálfarar. Þar reyna leikmenn sem komnir eru yfir 18 ára aldur að sýna sig og sanna í von um að fá tækifæri hjá atvinnu- mannaliðum. Fótboltinn er oft spurning um að vera á réttum stað á réttum tíma hjá réttum mönnum og sú var raunin hjá Glenn. Paul Taylor, framkvæmdastjóri PSC, þjálfaði Sigurð Ragnar Eyjólfsson hjá Wal- sall og benti honum á Glenn þegar Sigurður hafði samband. Að mæta á úrtaksæfingarnar kostar 299 dali og má segja það hafi borgað sig í tilfelli Trínidadans geðþekka. „Ég gafst ekkert upp á draumnum um að spila sem atvinnumaður. Ég var þannig séð búinn að gefa upp von eftir úrtaks- æfingarnar því ég heyrði ekkert í tvær, þrjár vikur. Það var ekki fyrr en á öðrum degi jóla að ég fékk boð um að koma til ÍBV. Það má segja þetta hafi verið síðbúin jólagjöf,“ segir Glenn og hlær við. Eyjar eru notalegar Eins og við mátti búast voru það nokkur viðbrigði fyrir Glenn að mæta til Vestmannaeyja en hann nýtur lífsins þar. „Þetta er náttúrlega öðru- vísi. Ég bjó síðast í Jacksonville sem er borg en nú er ég á 4.000 manna eyju. Þetta er samt nota- legur staður og fólkið er yndis- legt. Ég sakna einskis þannig séð og nýt þess að búa hérna. Þetta er samt öðruvísi lífsreynsla,“ segir Jonathan Glenn. tomas@365.is Dalirnir borguðu sig Jonathan Glenn, framherji ÍBV, er kominn á skrið í markaskorun eft ir erfi ða byrjun. Stóð sig á úrtaksæfi ngum í Flórída og fékk tækifæri í Vestmannaeyjum. SKORAR Jonathan Glenn byrjaði illa hjá ÍBV en er búinn að skora fjögur mörk í þrem ur síðustu leikjum. Englendingar sendir heim eft ir aðeins tvær umferðir á HM Sigur Kostaríka á Ítalíu í gær þýddi að England er á leiðinni heim og leikur Kostaríka og Englands í lokaumferðinni mun ekki skipta neinu máli. Þetta er í fyrsta skipti í sögu HM sem England er með bókaðan farseðil heim á leið eftir aðeins tvær umferðir í riðlakeppninni. Enn ein sneypuförin hjá enska landsliðinu sem nær sér ekki á strik á stórmótum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN FÓTBOLTI Stefán Garðar Níelsson, formaður knattspyrnudeildar Dal- víkur/Reynis, telur það ekki skaða ímynd félagsins að leikmaður liðs- ins hafi veðjað gegn liðinu fyrr í vetur eins og hann staðfesti í sam- tali við Fréttablaðið þann 4. júní síðastliðinn. Stefán Garðar sagði það skýrt að viðkomandi leikmaður hafi ekki tekið þátt í leiknum, né heldur verið í leikmannahópi liðsins á yfirstandandi tímabili. „Þeir sem eitthvað vit hafa á fótbolta gera sér grein fyrir því hvernig þetta er. Stór hluti af knattspyrnu- mönnum á ákveðnum aldri er endalaust að finna leiki til að veðja á líkt og þetta dæmi sýnir,“ segir Stefán Garðar en eftir umræddan leik vaknaði grunur um að mikið hefði verið veðjað á að Þór myndi vinna Dalvík/Reyni í Kjarnafæðismótinu þann 13. janúar með minnst þremur mörkum. Rannsókn leiddi í ljós að svo mikið var lagt undir að viðkomandi veðmálasíða þurfti að lækka stuðul sinn á veðmálinu. Eftir áðurnefnt viðtal leitaði KSÍ eftir frekari upplýsingum hjá Dal- vík/Reyni en Þórir Hákonarson, framkvæmdastjóri sambands- ins, segir að forráðamenn félags- ins hafi ekki viljað veita frek- ari upplýsingar en þær sem komu fram í viðtalinu. „Þetta mál kennir okkur að við þurfum að herða á okkar reglum og hugsanlega á þann máta að hægt sé að refsa einstaklingum eða félögum fyrir að veita ekki nægi- legar upplýs- ingar,“ sagði Þórir. - esá Skaðar ekki ímynd Dalvíkur/Reynis KSÍ vill herða reglur til að taka á veðmálabraski. ÞÓRIR HÁKONARSON GOLF Haraldur Franklín Magnús komst í átta manna úrslit á Opna breska áhugamannamótinu í golfi í gær. Er þetta aðeins í annað sinn sem Íslendingur nær þessum áfanga en Björgvin Sigur bergsson var sá fyrsti. Haraldur mætir hinum skoska Neil Bradley í dag en þeir hefja leik rétt fyrir klukkan níu. Að miklu er að keppa á þessu móti en sigurvegarinn fær þátt- tökurétt á Opna breska meistara- mótinu í júlí, Opna bandaríska meistaramótinu á næsta ári og hefð er fyrir því að sigurvegar- anum sé einnig boðin þátttaka á Masters-mótinu. Íslenskur kylfingur hefur aldrei tekið þátt á risamóti. - kpt Haraldur sjóðheitur Allt um HM á Vísi STJARNA GÆRDAGSINS Bryan Ruiz Kostaríka STJARNAN – FJÖLNIR Sunnudag 22. júní kl. 19.15 Allir á völlinn! – Ársmiðar seldir í Stjörnuheimilinu fyrir leik – PEPSI–DEILDIN 20% AFSLÁTTUR AF DEEP HEAT OG FREEZE 3. JÚNÍ TIL 30. JÚNÍ 22.00 NÍGERÍA– BOSNÍA Nígería gerði markalaust jafntefli í fyrstu umferð gegn Íran á meðan Bosnía tapaði, 2-1, gegn Argentínu. Þetta eru liðin sem líkast til munu berjast um annað sætið og því mikið undir. Nígeríumenn voru allt annað en sann- færandi gegn Íran en það var talsvert líf í Edin Dzeko og félögum í Bosníu gegn Argentínumönnum. Framherji Kostaríka, Bryan Ruiz, skráði sig í sögubæk- urnar í gær er hann skallaði sitt lið áfram í 16-liða úrslit á HM. Kostaríka er búið að skella bæði Úrúgvæ og Ítalíu á HM sem þýðir að áðurnefndar þjóðir spila úrslitaleik um hinn farseðilinn úr riðlinum í 16-liða úrslit. Kostaríka var ekki í um- ræðunni þegar talað var um Dauðariðilinn. Þetta er árangur sem enginn trúði.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.