Fréttablaðið - 21.06.2014, Blaðsíða 96
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VÍSIR
RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla,
Vesturbergi og
Arnarbakka
Sími 552 2440
www.borgarbilastodin.is
Borgarbílastöðin. ehf
ATH.
Ekkert utanbæjargjald.
Eldri borgara og öryrkjar
fá 20% Stgr.afslátt!
Pantaðu bíl frítt
Í síma 783 2440
Nova í Nova
TAXITAXI
Hann er einn mesti húmoristi sem
ég veit um en þrjóskur og þver. Hann
er rosa klár karl, með svör við öllu og
víðlesinn. Ég sé hann alltaf fyrir mér
sem klett því hann hefur
verið algjör klettur
fyrir mig og alla okkar
fjölskyldu. Það eru
ekki margir sem vita
að hann er algjör
barnagæla og
góður afi.
Nadia Tamimi,
dóttir
Afi er ofboðslega ljúfur og indæll.
Hann er mjög brosmildur og skemmti-
legur og er yfirleitt mjög léttur á sér.
Það er rosalega þægilegt að tala við
hann og hann tekur alltaf
vel á móti manni. Hann
hefur kannski þann
galla að hafa ekki nógu
oft samband en það er
auðvitað alltaf nóg að
gera hjá honum.
Gabríel Máni Hallsson,
afabarn
Salmann er skemmtilegur, hreinskilinn
og sjálfur sér samkvæmur. Hann er
frábær maður með góðan húmor. Ef
einhver lendir í einhverjum vand-
ræðum þá er hann fremstur manna
að verja. Hann passar vel upp á sína
og er kletturinn í okkar fjölskyldu. Það
er svo mikil réttsýni í
honum. Svo er hann
víðlesinn og veit
allt í alfræðibókinni
okkar.
Ingibjörg Sigur-
jónsdóttir Tamimi,
eiginkona.
Salmann Tamimi
trúarleiðtogi múslima á Íslandi
ALDUR 59 ára.
MAKI Ingibjörg Sigurjónsdóttir
Tamimi.
BÖRN Nadia Tamimi, María Björg
Tamimi, Nazíma Kristín Tamimi,
Yousef Ingi Tamimi og Rakel Dögg.
Salmann Tamimi, trúarleiðtogi mús-
lima á Íslandi, hefur verið áberandi í
fjölmiðlum upp á síðkastið í kringum
umræðuna um byggingu mosku á
Íslandi. Hann hugðist kæra ummæli
sem féllu í athugasemdakerfi Vísis og
lét þau orð falla að ekki mætti gefa
neinn afslátt af mannréttindum.
NÆRMYND