Fréttablaðið - 25.06.2014, Qupperneq 6
25. júní 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 6
VEISTU SVARIÐ?
Göngutjald Tempest 200
2,9 kg - 5000mm vatnsheldni
Venom 300
dúnpoki, 900gr
Vatnsheldar Cargo töskur
frá Vango 45 -120L
verð frá
20% afsláttur af
Mammut fatnaði
Margar gerðir
af prímusum
Verð frá
Vango og Mammut
göngudýnur
Verð frá
Vango bakpoki-
Transalp 30L
Göngustafir frá
Allir gönguskór
með 20% afslætti
ORKUMÁL Framboð á raforku í
Eyjafirði er ekki nægjanlega
mikið að mati stórfyrirtækja á
svæðinu. Mörg hver þurfa að
treysta á skerðanlega orku og
hefur það áhrif á atvinnustarfsemi
í Eyjafirði. Becromal á Akureyri
tekur um 80 prósent af allri raf-
orku sem kemur inn á Eyjafjarðar-
svæðið. Nú er svo komið að nýr
iðnaður getur ekki sest að á Eyja-
fjarðarsvæðinu, raforkuna er ekki
að finna á svæðinu.
Þórður Guðmundsson, for-
stjóri Landsnets, segir ástandið
alls ekki gott í
Eyjafirði. Nú sé
bara að bíða eftir
stefnumótun úr
iðnaðarráðu-
neytinu. „Það er
vissulega rétt
að þessi mál eru
ekki í góðum far-
vegi hvað varðar
orkuflutninga í
Eyjafjörðinn. Eins og málin standa
nú eru þetta í ákveðinni biðstöðu.
Í fyrsta lagi vita flestir að ákveðin
stefnumörkun þarf að eiga sér stað
á Alþingi Íslendinga um loftlínur
eða hvort línur eigi að fara í jörð.
Að nokkru leyti erum við að bíða
eftir þeirri stefnumörkun frá hinu
opinbera,“ segir Þórður.
Ef nýir aðilar vilja koma inn
á svæðið er afar erfitt að útvega
þeim raforku að mati Þórðar.
Orkan sé til á landinu en raforku-
flutningur inn á Eyjafjarðar-
svæðið sé í molum. Hann telur
sveitarfélög á svæðinu hafa dregið
lappirnar hvað varðar skipulag
raforkuflutninga.
„Blöndulína þrjú hefur verið á
teikniborðinu lengi og höfum við
beðið í um fimm ár. Landsnet væri
búið að fjárfesta í flutningi inn á
Eyjafjarðarsvæðið fyrir um 12-15
milljarða ef þessi biðstaða hefði
ekki komið upp. Nýlegt svæðis-
skipulag Eyjafjarðar tekur út
línur sem áður höfðu verið sam-
þykktar. Á meðan sveitarfélögin á
svæðunum geta ekki skipulegt raf-
orkuflutning inn á svæðið er lítið
hægt að gera,“ segir Þórður.
Fjöldi fyrirtækja á Akureyri
kaupir skerðanlegan orkuflutning,
þar sem þau taka þá áhættu að raf-
orkusalinn geti á einhverjum tíma-
punkti skert raforku til kaupand-
ans. Á móti kemur að fyrirtækin
kaupa raforkuna ódýrari en ef um
tryggan raforkuflutning væri að
ræða.
Landsnet hefur á síðustu árum
verið að styrkja flutningskerfi sitt.
Flutningskerfinu tilheyra ríflega
3.000 km af háspennulínum og um
70 tengivirki og spennu stöðvar.
Meginhluti flutningskerfisins eru
loftlínur en lítill hluti raforku-
flutnings fer um háspennujarð-
strengi.
sveinn@frettabladid.is
Ekki nægt framboð
raforku í Eyjafirði
Ný fyrirtæki geta ekki sest að á Eyjafjarðarsvæðinu því raforkan er ekki til. Flutn-
ingurinn inn á svæðið er vandamálið. Fjöldi fyrirtækja treystir á skerðanlegan
orkuflutning til sín. „Sveitarfélögin draga lappirnar,“ segir forstjóri Landsnets.
Kristín Halldórsdóttir, mjólkurbússtjóri MS á Akureyri,
segir fyrirtækið kaupa skerðanlega orku og eiga þar af
leiðandi á hættu að flutningur til fyrirtækisins sé tak-
markaður á tíma þegar raforka er ekki nægjanleg. „Við
höfum keyrt steinolíukatla til að búa til gufu til þess
að framleiða vörur. Fyrir það fyrsta er steinolía fjórum
sinnum dýrari en rafmagn. Þar fyrir utan krefst stein-
olíuketillinn meiri mannafla og yfirvinnu auk þess
sem afköstin eru mun minni en hjá rafskauts katlinum
sem við erum alla jafna með í vinnslu. Þegar við keyrum á steinolíu
höfum við því verið að framleiða minna en ella, með meiri tilkostnaði og
fleiri starfsmönnum. Umhverfislega er þetta einnig óheppilegt og gengur
gegn umhverfisvitund okkar,“ segir Kristín.
Mjólkursamlagið á Akureyri hefur keyrt
á steinolíu sem varaafli fyrir vinnslu
Unnsteinn Jónsson, verksmiðjustjóri Vífilfells á Akur-
eyri, segir raforkuflutninginn setja starfsemi fyrir-
tækisins nokkrar skorður. „Við höfum verið að keyra á
olíu í vor sem og síðasta vor. Við kaupum trygga orku
en ótryggan flutning. Flutningurinn á raforkunni er
þannig að okkur stendur ekki til boða að kaupa trygga
raforkuflutninga frá Landsneti því byggðalínan býður
ekki upp á það. Þetta setur okkur í afar erfiða stöðu,“
segir Unnsteinn.
Unnsteinn telur að bæjarstjórn Akureyrar verði að skoða gaumgæfilega
stöðu raforkuflutnings inn á svæðið. „Maður áttar sig ekki á því hvernig
þetta getur gengið til lengdar. Við getum ekki ætlast til að raflínur séu
settar í jörðu hjá okkur en skammast í Skagfirðingum yfir sömu kröfu.“
„Okkur stendur ekki til boða tryggur
raforkuflutningur“
1. Hvaða ráðherrafundur var haldinn í
Vestmannaeyjum á mánudag?
2. Hve mikið hefur nemum í húsa-
smíði fækkað hér á landi síðustu fi mm
árin?
3. Hvað fannst í Mývatni, sem týndist
þar fyrir áratug?
SVÖR:
ORKULÍTIÐ Á AKUREYRI Becromal tekur áttatíu prósent af allri raforku sem kemur
inn á Eyjafjarðarsvæðið.
NÁTTÚRA Starfsmenn á gestastofu
Vatnajökulsþjóðgarðs á Höfn í
Hornafirði munu hætta að beina
fólki í fjöruna á Stokksnesi eftir
að landeigandi ákvað að innheimta
gjald af ferðamönnum sem vilja
skoða fjöruna.
„Við höfum vísað ferða mönnum
út á Stokksnes, þetta er mjög
fallegur staður,“ segir Helga Árna-
dóttir, starfsmaður Vatnajökuls-
þjóðgarðs á Höfn. Landsvæðið er
ekki hluti af þjóðgarðinum.
Eins og fram kom í Frétta-
blaðinu í gær ætlar landeigandinn
í Stokksnesi að rukka ferðamenn
sem fara um land hans um 600
krónur. Landeigandinn tilkynnti
starfsfólki Vatnajökulsþjóðgarðs á
Höfn um gjaldtökuna á laugardag.
Helga segist ekki ætla að beina
ferðamönnum í fjöruna vegna
þessarar gjaldtöku. „Ef fólk spyr
okkur getum við ekki annað en
upplýst fólk um hver staðan er í
dag, en ég mun ekki benda fólki
á að fara þangað að fyrra bragði,“
segir Helga.
„Mér finnst þetta ekki jákvætt,“
segir Helga. Hún segist reikna
með að vinna í málinu með sveitar-
félaginu, en nú þurfi að skoða
betur hver sé lagalegur réttur
landeigenda og réttur þeirra sem
vilja fara um landið.
Björn Ingi Jónsson, bæjarstjóri
Hornafjarðar, segir að þetta sé
sérstakur gjörningur. Hann segist
ekki hafa kynnt sér málið í þaula,
en afstaða bæjarfélagsins verði
væntanlega sú að reyna að koma
í veg fyrir þessa gjaldtöku. - bj
Starfsmönnum Vatnajökulsþjóðgarðs tilkynnt um gjaldtöku af ferðamönnum á Stokksnesi á laugardag:
Hætta að beina fólki í fjöruna á Stokksnesi
RUKKA Ratsjárstöð sem Landhelgis-
gæslan rekur er á Stokksnesi, og hefur
stofnunin gert athugasemdir við gjald-
tökuna. MYND/RUNÓLFUR HAUKSSON
1. Ráðherrafundur EFTA-ríkjanna. 2. Þeim
hefur fækkað um 80 prósent. 3. Olíutankur.
ÞÓRÐUR GUÐ-
MUNDSSON
EGYPTALAND Nokkur hundruð blaðamenn komu saman fyrir utan
höfuð stöðvar BBC í London og mótmæltu dómi yfir þremur blaða-
mönnum Al-Jazeera í Egyptalandi.
Blaðamennirnir voru dæmdir í sjö og tíu ára fangelsi af egypskum
dómstólum fyrir að dreifa lygum og styðja Múslimska bræðralagið en
samtökin eru bönnuð með lögum í Egyptalandi. Blaðamennirnir sem
komu saman fyrir utan BBC segja dóminn hneyksli og að sleppa eigi
mönnunum úr haldi tafarlaust. - ih
Segja dóm yfir þremur blaðamönnum í Egyptalandi hneyksli:
Mótmælt fyrir utan BBC í London
MÓTMÆLI Í
LONDON Blaða-
mennirnir sem
komu saman fyrir
utan höfuðstöðvar
BBC í London
mótmæltu því sem
þeir telja aðför að
tjáningarfrelsi í
Egyptalandi.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP