Fréttablaðið - 25.06.2014, Side 20
| 4 25. júní 2014 | miðvikudagur
FLUGIÐNAÐUR
Óli Kristján Ármannsson | olikr@frettabladid.is
Evrópski fl ugvélaframleiðandinn
Airbus spáir því að fl ugumferð í
heiminum komi til með að tvöfald-
ast á næstu fi mmtán árum, sem er
áframhald á þeirri þróun sem verið
hefur síðustu fjóra áratugi. Núna er
aukningin drifi n áfram af hagvexti
á nýmarkaðssvæðum, einna helst í
Asíu, segir John Leahy, yfi rmaður
viðskiptasviðs Airbus.
Þetta kom fram á Innovation
Days-kynningu Airbus í Toulouse
í Frakklandi fyrr í þessum mán-
uði. Þar fór fl ugvélarisinn (Airbus í
Evrópu og Boeing í Bandaríkjunum
eru nokkurn veginn jafnstór fyrir-
tæki og skipta með sér til helminga
farþegaþotumarkaðnum í heim-
inum) yfi r stöðu og horfur í fl ugiðn-
aði í heiminum og kynnti helstu nýj-
ungar og nýbreytni hjá sér.
Spár Airbus benda raunar til þess
að þungamiðja fl ugumferðar haldi
áfram að færast austar og verði
eftir fi mmtán til tuttugu ár komin
til Asíu. Á þeim tíma kunni líka að
verða til keppinautur í Kína sem
taki slaginn við bæði Boeing og Air-
bus, en slíkur risi þurfi allt að því
aldarfjórðung til að verða til.
300 milljarðar í rannsóknir og þróun
Fyrirtækinu var tíðrætt um tækni-
framfarir hjá sér og telur sig þar
hafa vinninginn yfi r Boeing, í elds-
neytiskostnaði og hvað almennan
rekstrarkostnað vélanna áhrærir.
Til þess að ná slíkum árangri þarf
einhverju til að kosta og kom fram
í máli Leahys að á ári hverju eyði
fyrirtækið um tveimur milljörðum
evra í rannsóknir og þróun. Upp-
hæðin nemur tæpum 310 milljörðum
íslenskra króna (nálægt helmingi
af árlegum heildarútgjöldum ríkis-
sjóðs Íslands).
Annað sem ýti undir endur nýjun
sé svo að flugvellir séu víða um
heim komnir að þolmörkum hvað
nýtingu varðar. Það setji þrýst-
ing á fl ugfélög að nota breiðþotur,
sem taki fl eiri farþega og þurfi því
færri lendingar til að skila sama og
auknum farþegafjölda.
Nýjungar, bæði í nýjum vélum
líkt og A350 XWB-þotunum og upp-
færslum á öðrum þotum, miði því
að því að auka hagkvæmni og um
leið þægindi farþega sem í auknum
mæli fl júgi lengri vegalengdir.
Í þessari viðleitni segir Air-
bus hag sínum best borgið í því að
vera með starfsemi sem víðast um
heiminn. Simon Ward, varaforseti
alþjóðasamvinnusviðs Airbus, segir
að með dreifðari starfsemi verði
líka til náttúruleg áhættudreifi ng
í starfseminni. Verði áfall í fram-
leiðslu á einum stað þá heldur starf-
semin áfram annars staðar.
Flugvélaviðskipti fara fram í
Bandaríkjadölum og því segir hann
líka þurfa að huga að gjaldeyris-
vörnum. „Við þurfum aðgang að
peningum og með viðveru á heims-
vísu fæst aðgangur að fjármagni,
auk þess að nærvera við viðskipta-
vini ýtir undir viðskipti,“ segir
hann. „Alþjóðavæðingin fækkar
ekki störfum, heldur býr hún til
störf. Henni fylgir vöxtur á öllum
sviðum.“
Bjartsýnin kannski fullmikil
Shukor Yusof, sérfræðingur í fl ug-
iðnaði hjá Endau Analytics í Singa-
púr (áður hjá greiningarfyrirtæk-
inu Standard & Poor’s) segir að
ákveðinn varnagla þurfi að slá við
framtíðarsýn Airbus, hún kunni að
vera fullbjartsýn. Þannig sé óvíst
að jafn mikill áhugi sé á breið-
þotum og Airbus vilji vera láta.
Vöxturinn og salan sé hins vegar
í Asíu, þar sem hagvöxtur er einna
mestur í heiminum. Þannig sé
heilmikið rými til áframhaldandi
vaxtar í löndum á borð við Búrma
og Kína. „En svo þurfa innvið irnir
líka að vera í lagi,“ segir hann.
Mikillar uppbyggingar sé enn þörf
í mörgum Asíulöndum áður en fl ug-
félög geti tekið þar við sér.
„Flugvélasala helst í hendur við
hagvöxt, en í Asíu verður líklega
áfram meiri markaður fyrir smærri
farþegaþotur,“ segir hann. Þá kunni
fjármögnun fl ugfélaga á þotukaup-
um að vera torveld í sumum lönd-
um. „En fl ugvélaframleiðendur eiga
það sammerkt með sölumönnum
annarra farartækja að hafa minni
áhyggjur af því hvernig kaupand-
anum reiðir af eftir að gengið hefur
verið frá sölunni.“ Þótt velta sumra
fl ugfélaga í Asíu kunni að vera mikil
þá hverfi obbinn af hagnaðinum í
vaxtagjöld og rekstrarkostnað.
JOHN LEAHY SHUKOR YUSOF
FLOTTASTA ÞOTA Í HEIMI? Afhenda á fyrstu Airbus A350 XWB-þotuna í lok þessa árs en tilraunaflug er á áætlun, að sögn Didiers Evrard,
aðstoðarforstjóra A350-flugvélaáætlunar Airbus. Keppinautur hennar er Boeing 787 Dreamliner-þotan. MYND/AIRBUS
Aukin flugumferð á rætur í Asíu
Airbus segir horfur á því að vöxtur á flugumferð verði áfram sá sami og verið hefur síðustu áratugi, tvöföldun á
hverjum fimmtán árum. Á Innovation Days í Toulouse voru kynntar horfur og helstu nýjungar hjá flugvélarisanum.
Fagnaðarlæti brutust út á meðal blaðamanna á Innovation
Days-kynningu Airbus þegar tilkynnt var að morgni annars
dags dagskrárinnar að þeim gæfist kostur á að fara með
í klukkustundarlangt tilraunaflug í Airbus A350 XWB-
breiðþotu. Rétt um ár er liðið frá fyrsta flugi vélarinnar, en
stefnt er að fyrstu afhendingu til Quatar Airways fyrir lok
þessa árs.
Þegar hefur verið samið um sölu á 742 A350 XWB-
þotum, en þá er búið að draga frá afturköllun á pöntun
Emirates-flugfélagsins á 50 slíkum vélum sem tilkynnt
var um í byrjun Innovation Days 11. júní. Airbus segir
flugfélagið hafa lagt inn pöntunina árið 2007 og átt að fá
fyrstu vélarnar afhentar árið 2019. Airbus segist fullvisst
um að pöntunum haldi áfram að fjölga.
ENGAR SVIPTINGAR
Ef marka má viðtökur blaðamanna í ferðinni þá ætti að
geta verið eftirspurn eftir þotunum því hrifning margra
var mikil. Þoturnar keppa við Boeing 787 Dreamliner og
eiga það sammerkt að bolurinn er úr léttum koltrefjum
og tækniframfarir slíkar að helst má líkja þeim við geim-
skutlur. Að vísu finna farþegar ekki sérstaklega fyrir því í
stuttu flugi, þetta er jú enn þá flugvél.
Á lengri ferðum nýtast hins vegar hlutir eins og sérstök
lýsing um borð (e. mood lighting) og hærri loftþrýstingur
(nær því sem gerist á jörðu niðri) þannig að fólk finnur
síður til flugþreytu.
Áberandi er hins vegar hversu hljóðlát vélin er. Auðvelt
er til dæmis að spjalla, jafnvel í hálfum hljóðum, við næsta
mann þótt verið sé að taka á loft. Þá má segja að flugferðin
sjálf hafi verið afar þægileg og kom aldrei fyrir að farþegar
fyndu fyrir skellum vegna ókyrrðar eða titrings. Ræður þar
ný tækni sem kemur í veg fyrir að sviptingar í kringum
vængina skili sér inn í bol vélarinnar. Því mætti jafnvel líkja
upplifuninni við það að fara úr höstum austur-evrópskum
fólksbíl yfir í amerískan fleka sem líður áfram um göturnar.
Vélin er breiðþota sem þýðir að í henni eru tveir gangar,
níu sæti í hverri röð í almennu farrými, þar sem blaða-
maður Fréttablaðsins sat. Frammi í vél á fyrsta farrými
eru, í þessari uppsetningu, svo fjögur sæti í hverjum gangi,
raunar hálfgerðir básar þar sem fólk getur jafnvel lagt sig.
Flugfélögum er svo í sjálfsvald sett hvernig þau haga inn-
réttingum og líklegt að einhver fjölbreytni verði í því.
TÖLUR SEM HORFT ER TIL
Upplifun af flugi með vélinni var hins vegar mjög þægileg,
líka á almennu farrými. Mögulega ræðst það líka af því að
sætin eru aðeins breiðari en fólk á að venjast, 18 tommur
(45,7 cm) í stað 17 (43,2 cm). Merkilegt hvað getur
munað mikið um tvo og hálfan sentímetra.
Eftirspurn flugfélaga ræðst hins vegar líkast til fremur
af öðrum þáttum, svo sem eldsneytiseyðslu. Fram kom í
máli Kirans Rao, aðstoðarframkvæmdastjóra söluáætlana
og markaðssetningar Airbus, að fyrir flugrekendur væri
hvert sæti í þotum á lengri flugleiðum virði tveggja
milljóna dala (228 milljóna króna) og því ekki um neinar
smáupphæðir að ræða í þotum sem taka frá 250-350
manns í sæti (eftir því hvort um er að ræða 800-, 900- eða
1000-útfærslu A350-vélanna). Í samanburði við sambæri-
legar útfærslur Boeing 787 segir hann að rekstrarkostn-
aður A350-800 og A350-900 sé fimm prósentum lægri
á hvert sæti. Og að samanburðurinn í stærstu vélunum,
Boeing 777-300R og svo aftur A350-1000, sé Airbus enn
frekar í hag, því þá sé rekstrarkostnaður á hvert sæti 25
prósentum lægri á hvert sæti. Þetta eru tölur sem líklegt
er að flugrekendur horfi til.
ÞÆGILEGT FLUG Í OFURHLJÓÐLÁTRI BREIÐÞOTU
HAPPDRÆTTI Áður en
haldið var í loftið í A350-
þotunni dró fólk miða úr
skál til þess að skera úr
um hverjir fengju að sitja
á fyrsta farrými vélarinnar,
auk þess sem tekin voru
niður nöfn tengiliðar fólks
ef ske kynni að vélin færist.
FRÉTTABLAÐIÐ/ÓKÁ
Í LANDGANGINUM Glaðir blaðamenn taka myndir,
nýlentir eftir klukkustundarflug yfir Pýreneafjöll í Airbus
A350 XWB-þotunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓKÁ
Dagana 11. og 12. júní síðastliðna bauð Airbus blaðamönnum og sérfræð-
ingum frá öllum heimshornum til vinnustöðvar fyrirtækisins í Toulouse í
Frakklandi þar sem fram fór hinn árvissi kynningarviðburður Airbus Inn-
ovation Days. Í hópi boðsgesta var blaðamaður Fréttablaðsins.
ALLS KONAR GESTIR ÚR ÖLLUM ÁTTUM
Airbus leggur sérstaka áherslu á upp-
finningar og nýbreytni í framleiðslu
sinni og starfsemi. Unnið er að hag-
ræðingu í framleiðsluferlum flugvéla,
en um leið er líka mikið lagt upp úr
uppfinningum sem bæta heildarupp-
lifun flugfarþega, öryggismálum og
aðbúnaði og umhverfi flugvalla.
„Við vinnum að hönnun nýrra létt-
málma og skoðum hagnýtingu þeirra í
samhengi við þrívíddarprentun,“ segir
Yann Barbaux, yfirmaður uppfinninga
hjá Airbus.
Meðal annarra uppfinninga er
öryggisfilma sem endurvarpar leysi-
bendaljósi sem fyrir kemur að beint er
að flugvélum. Sú tækni segir Barbaux
að hafi verið unnin í samvinnu við
lítið tæknifyrirtæki í Halifax í Kanada
og komi til með að geta nýst öllum
vélum. „Um er að ræða filmu sem
leggja má yfir hvaða flugvélarglugga
sem er,“ segir hann. Samningur um
framleiðsluna
var undirritaður í
byrjun mánaðar-
ins. „Á ári hverju
eru um 4.000
tilvik þar sem
leysibendum er
beint að flug-
vélum.“
Þá er unnið
að nýju kerfi til þess að tryggja að
ferðatöskur fólks komist örugglega á
áfangastað og nefnist Bag2Go.
Önnur nýjung sem Airbus prófar
þessa dagana eru þil sem notuð eru
til að klæða byggingar og koma í veg
fyrir að þær endurvarpi fjarskiptum
sem fram fara milli flugvéla og flug-
turns á jörðu niðri. Á þeim sam-
skiptum má ekki verða nein truflun,
en nýja tæknin getur orðið til þess að
minnka verulega það svæði í kringum
flugvelli sem ekki má byggja á.
„Uppfinningar snúast um
breytingar,“ segir Barbaux. „Þetta
snýst ekki bara um tækni heldur líka
nálgun og vinnulag.“
Ein markverðasta breytingin sem
er á döfinni er svo þrívíddarprentunin
og miklar vonir bundnar við hag-
ræðingu og sparnað henni samfara.
Curtis Carson, yfirmaður kerfissam-
hæfingar framleiðsluferlasviðs Airbus,
segir sparnað sem ná megi fram
með tækninni stórkostlegan. Með
þrívíddarprentun sé hægt að nota allt
að 95 prósentum minna hráefni, ekki
þurfi sérhæfð steypumót og afskurður
heyri sögunni til. „Og um leið er hægt
að draga mikið úr þyngd hlutanna,“
segir hann, en léttari flugvélar brenna
minna eldsneyti. „Þá getur framleiðsla
hlutanna líka farið fram á ísetningar-
stað og því þarf ekki að ferja hlutina
um langan veg og um leið þarf ekki
að flytja jafnmikið af hráefni á milli
framleiðslustaða.“ Carson segir prent-
tæknina líka leysa önnur vandamál,
svo sem þegar íhluti vantar í eldri
vélar, jafnvel hluti þar sem fram-
leiðandinn hefur lagt upp laupana.
„Þá er hægt að skanna hlutinn og
prenta nýjan,“ segir hann og nefnir
dæmi um upphengju (sem sjá má
hér til hliðar) og aðra smáhluti þar
sem ná megi fram 70 prósenta
sparnaði á kostnaði. „Minna hráefni
þarf til, hluturinn er fyrr til reiðu og
maður verður ekki uppiskroppa með
birgðir.“ Möguleikarnir segir hann að
séu töluverðir, enda sé ný þota sam-
sett úr fjórum milljónum einstakra
misstórra hluta.
ÞRÍVÍÐ PRENTUN HEFUR VÍÐTÆK ÁHRIF
PRENTAÐUR ÍHLUTUR Þrívíddarprentun
dregur úr efniskostnaði. MYND/AIRBUS
YANN BARBAUX