Fréttablaðið - 25.06.2014, Blaðsíða 22
FÓLK|FERÐIR
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Kolbeinn Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512 5447
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
GÖNGUR, VATNS-
LEIKFIMI OG JÓGA
Þátttakendur munu
meðal annars fara í
gönguferðir um nágrenni
Gardavatns. Steinunn
og Ásdís munu stýra
teygjum eftir hverja ferð.
Íþróttafræðingarnir Steinunn Leifsdóttir og Ásdís Halldórs-dóttir gáfu út mynddiskinn
Sterk og létt í lund í fyrra en hann
inniheldur átta ólíka leikfimi-
þætti fyrir fólk á besta aldri. Þær
hafa nú verið beðnar um að vera
fararstjórar í göngu- og heilsu-
ferð fyrir 60 plús við Gardavatn á
Ítalíu í byrjun september.
„Ferðin er farin á vegum ferða-
skrifstofunnar Íslandsvina en
hún hefur boðið upp á göngu-
ferðir fyrir sextíu ára og eldri
í mörg ár,“ segir Ásdís. „Við
Steinunn höfum verið með
fræðslu og kynningar í félags-
starfi aldraðra að undanförnu
og fékk Halldór Hreinsson,
framkvæmdastjóri Íslandsvina,
okkur í kjölfarið til liðs við sig.
Við munum setja okkar svip á
ferðina en ásamt því að leiða
hefðbundnar göngur bjóðum
við upp á morgunjóga, vatns-
leikfimi eða teygjur eftir hverja
göngu. Við ætlum þó ekkert að
ganga fram af fólki og verður líka
lögð áhersla á slökun og spa.
Áhugasamir geta auk þess hlýtt á
fyrirlestra um almenna heilsu og
þjálfun á efri árum. Allir þátttak-
endur fá svo eintak af disknum.“
Ferðin stendur frá 2. til 9. sept-
ember. Hún ber yfirskriftina
Draumur Dólómítanna. Undirtit-
illinn er Hreyfing – Orka – Gleði.
Nánari upplýsingar er að finna á
www.islandsvinir.is.
HEILSUEFLANDI
FERÐ FYRIR 60 PLÚS
GÓÐ HEILSA Íþróttafræðingarnir Steinunn Leifsdóttir og Ásdís Halldórsdóttir
verða fararstjórar í göngu- og heilsuferð fyrir 60 plús á Ítalíu í september.
Í fyrra gáfu þær út mynddiskinn Sterk og létt í lund.
FYRIR FÓLK Á BESTA ALDRI Þær Steinunn og Ásdís gáfu út í fyrra mynddiskinn Sterk
og létt í lund með átta ólíkum leikfimiþáttum fyrir fólk á besta aldri.
Það er TripAdvisor sem hefur
tekið saman listann, þar
sem spurt er um 4–5
stjörnu hótel, leigubíla,
mat og drykk í sólar-
hring fyrir tvo. Vinsæl-
ustu ferðamannaborgir
í 50 löndum voru með
í könnuninni. Miklar
verðhækkanir hafa orðið í
London sem varð til þess að
borgin stökk upp um sex sæti.
London er mest heimsótta borg af
túristum en samkvæmt TripAdvisor
er kostnaðurinn sem reiknaður var
út um 60 þúsund krónur í London á
meðan hann var 58 þúsund í París
og tæpar 57 þúsund í New York.
Kostnaður í Ósló er 52 þúsund.
Stokkhólmur var í fjórða sæti, Kaup-
mannahöfn í því sjöunda og
Helsinki í áttunda. Það
er dýrt að heimsækja
Norðurlöndin. Reykja-
vík var ekki með í
þessari verðkönnun.
Ódýrasta borgin
er hins vegar Hanoí
í Víetnam þar sem
kostnaðurinn var rúmar
17 þúsund krónur.
DÝRUSTU BORGIRNAR
1. London, Bretland
2. París, Frakkland
3. New York, Bandaríkin
4. Stokkhólmur, Svíþjóð
5. Ósló, Noregur
6. Zürich, Sviss
7. Kaupmannahöfn, Danmörk
8. Helsinki, Finnland
9. Tórontó, Kanada
10. Sydney, Ástralía
ÓDÝRUSTU BORGIRNAR
1. Hanoí, Víetnam
2. Djakarta, Indónesía
3. Sharm el Sheikh, Egyptaland
4. Bangkok, Taíland
5. Sófía, Búlgaría
6. Höfðaborg, Suður-Afríka
7. Mumbai, Indland
8. Kúala Lúmpúr, Malasía
9. Prag, Tékkland
10. Búdapest, Ungverjaland
Sett var nýtt met í heimsóknum
ferðamanna til London á síðasta
ári. Þá komu um 16 milljónir ferða-
manna til borgarinnar.
LONDON DÝRASTA BORGIN
London trónar á toppnum þegar kemur að dýrustu borgum fyrir ferðamenn og
hefur þar með rutt Ósló úr því sæti niður í það fimmta.
Færri kíló – Minna ummál
með spínat extrakt
Fæst í 14 og 28 daga skömmtum. Útsölustaðir flest apótek og heilsu búðir.
Aptiless fæst eingöngu í Noregi, Svíþjóð og nú á Íslandi.
Hungur tilfinning minnkar strax frá fyrstu notkun. Inniheldur
yfir 100 mismunandi próteinefni. Einn skammtur jafngildir
fimm boll um af fersku spínati en Thylakoids dregur úr hungri
Eykur mettun - Minnkar sykurlöngun - Jafnar blóðsykur - Lækkar
blóðfitu, kólesterol og blóðþrýsting - Minnkar ummál - Fækk ar
aukakílóum - Eykur orku - Bætir þarmaflóru. 100% náttúrulegt
Vísindaleg sönnun á virkni
Rannsóknir gerðar af Karólínska Háskólanum í Lundi í Svíþjóð ásamt
fleiri virtum rannsóknarstofnunum. Nýtt í heiminum - nýtt á Íslandi
Dr. Charlotte Erlanson-
Albertsson, Prófessor
við Karólínska
Háskólanum í Lundi
í Svíþjóð
mynd:Kennet Ruona
U
m
bo
ð:
w
w
w
.v
ite
x.
is
Ein merkasta nýja uppgötvunin sem gerð hefur verið í heiminum dag
Nýtt á Íslandi
NÝ SENDING KOMIN
Aptiless seldist upp á auga bragði, enda mest
selda fitubrennsluefnið í Noregi og Svíþjóð.
Þökkum frábærar viðtökur.
Öflug vörn gegn
sveppasýkingum
„Ég mæli með Bio Kult Candéa fyrir skjólstæðinga mína. Síðustu ár
hef ég lagt mikla áherslu á að vera í jafnvægi, með góða orku og
einbeitningu í lífi og starfi. Ég hef lagt áherslu á að taka inn góða
gerla til að viðhalda jafnvægi og orku og hef prófað þá allra bestu
hér á markaðinum hverju sinni,“ segir Sigríður Jónsdóttir, ADHD
markþjálfi og fíkniráðgjafi.
„Mér finnst Bio Kult Candéa vera skjótvirkasta varan sem ég hef
prófað. Ég mæli með henni fyrir skjólstæðinga mína sem gjarnan
eru að glíma við ójafnvægi í lífi sínu.“
Candéa