Fréttablaðið - 17.07.2014, Síða 1

Fréttablaðið - 17.07.2014, Síða 1
FRÉTTIR H alldóra Matthíasdóttir útibússtjóri breytti um lífs-stíl árið 2008 með því að breyta mataræði sínu algerlega. Því næst tók hún á hreyfing-unni og byrjaði að hlaupa. Hún fór sitt fyrsta maraþon 2011 og hljóp einnig Laugavegshlaupið og Jökulsárhlaupið sama ár. Það var svo í upphafi árs 2012 að hún skráði sig í Ironman-keppni í Cozumel í Mexíkó sem var haldin í lok nóvember. Ironman-keppnin gengur út á að synda 3,8 km, hjóla 180 km og hlaupa svo 42,2 km. Í kjölfarið fór hún því einnig að æfa sund og hjólreiðar og lauk svo annarri Ironman-keppni í Frankfurt í fyrra og er skráð í þá þriðju í Kalmar í Svíþjóð í ágúst. ÞREYTAN HVARF EINS OG DÖGG FYRIR SÓLU! Halldóra æfir að meðaltali níu sinnum í viku, þrisvar í hverri grein. „Eftir æfingar nota ég alltaf Magnesium Sport-spreyið því þaðhefur hjálpað é ÓTRÚLEGT HVAÐ SPREYIÐ VIRKAR GENGUR VEL KYNNIR Halldóra Matthíasdóttir þríþrautarkona er mjög ánægð með Magnesium Sport-spreyið frá Better You og notar það eftir allar æfingar. Hún finnur sérstaklega mikinn mun á uppbyggingu vöðva. SÖLUSTAÐIRLyfja, Lyf og heilsa, Lyfjaver/Heilsuver, flest apótek, Fjarðarkaup, Heilsuhúsið, Blómaval, Garðheimar, valdar Hagkaupsverslanir og Krónubúðir, Systra-samlagið, Þín verslun Seljabraut, Tri og Krossfit Reykjavík. HEIMUR VALENTINOHönnuðurinn Valentino Garvani gefur síðar á þessu ári út bókina Valentino: At the Emperor’s Table. Þar getur fólk skyggnst inn í glæsileg híbýli Valentino og stjörnum prýdd kvöldverðarboð hans.TÆKIFÆRISGJAFIR TILBOÐ - mikið af frábærum boðumtil Laugaveg i 178 - S ím i : 568 9955 Hnífaparatöskur – 12 manna 14 tegundirVerð frá kr. 24.990 Útsala 40% afsláttur Lagersala í kjallara ÞJÓÐHÁTÍÐ 140 ára FIMMTUDAGUR 17. JÚLÍ 2014 MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012 Fimmtudagur 22 2 SÉRBLÖÐ Þjóðhátíð | Fólk Sími: 512 5000 17. júlí 2014 166. tölublað 14. árgangur SKOÐUN Heimshreyfingu þarf vegna ástands í Palestínu, skrifar Svavar Gestsson. 24 MENNING Sýningin Dalir og hólar spannar eitt hundrað kílómetra. 36 LÍFIÐ Rós Kristjánsdóttir skrifaði undir samning hjá Dominique Models. 54 SPORT FH og Stjarnan leika í undankeppni Evrópu- deildarinnar í dag. 48 FLJÓTLEGT OG ÞÆGILEGT #GOTT iMATI NN Matarmyndaleikur Gott í matinn Í FJÖLSKYLDU- OG HÚSDÝRAGARÐINUM BARA SÝNA DÆLULYKILINN VIÐ INNGANGINN SUMARHÁTÍÐ ATLANTSOLÍU - Í DAG FRÍTT FYRIR FJÖLSKYLDUNA Bolungarvík 10° NNA 2 Akureyri 15° NA 2 Egilsstaðir 17° SSV 7 Kirkjubæjarkl. 13° SA 5 Reykjavík 12° SSA 6 VÆTA MEÐ KÖFLUM Yfirleitt fremur hæg suðvestlæg átt og rigning með köflum en hægari vindur og þurrt og bjart NA- og A-til. Hiti 10-18 stig. 4 SYRGJA DRENGINA SÍNA Fjölskylda fj ögurra ungra palestínskra drengja, sem létust í sprengjuárás Ísraelsmanna af sjó, grét sáran við jarðarför þeirra í Gasa-borg í gær. Ísraelar héldu áfram árásum sínum í gærmorgun eft ir skammvinnt vopnahlé í fyrradag. Eft ir níu daga blóðbað á Gasa-svæðinu nálgast tala látinna hálft þriðja hundrað manna. Sjá síðu 10 NORDICPHOTOS/AFP NEYTENDUR Sala á utanlandsferðum Íslendinga í júlí er óvenjuleg í ár. Rign- ingartíðin hefur valdið því að fjöl- margir panta sér- ferðir út í sólina með stuttum fyrirvara. Þyri Kristínardóttir, sölustjóri Heimsferða, segir rigninguna ekki fara fram hjá sölumönnum ferðaskrifstofunnar. „Júlí er að verða uppbókaður sem er mjög óvanalegt,“ segir hún. - ebg / sjá síðu 18 Moksala á utanlandsferðum: Flýja í sólina Í SÓLINNI HEILBRIGÐISÞJÓNUSTA „Ég hélt að það ætti að vera kyrrð um gjald- skrárhækkanir hins opinbera. Verið er að hækka gjöld á fólki sem hefur ekkert val um hvort það nýtir þjón- ustuna eða ekki,“ segir Gylfi Arn- björnsson, forseti ASÍ. Þátttaka sjúklinga í kostnaði vegna sérfræðilækna hækkaði í byrjun mánaðarins um 4,9 pró- sent að meðaltali. Sjúkratrygging- ar Íslands sögðu að hækkanirn- ar mætti fyrst og fremst rekja til gjaldskrárhækkana sérfræðilækna. Sjúkratryggingar sömdu við sér- fræðilækna, sem höfðu verið samn- ingslausir frá 2011, í byrjun janúar. „Okkur var sagt í byrjun janúar að samningar við sérfræðilækna rúmuðust innan sameiginlegrar stefnu verkalýðshreyfingarinnar, atvinnurekenda og stjórnvalda um stöðugleika. Að hækka gjaldskrána nú ber ekki vott um stöðugleika,“ segir Gylfi. Almenningur sé alltaf að borga meira og meira fyrir lækn- isþjónustu. Gylfi segist velta því fyrir sér hvort það sé stefna stjórn- valda að velta öllum hækkunum í heilbrigðiskerfinu yfir á sjúklinga. „Þetta er enn ein blauta tuskan frá stjórnvöldum,“ segir hann. Kristján Guðmundsson, formaður samninganefndar sérfræðilækna, sagði í samtali við Fréttablaðið þegar samningur Sjúkratrygginga og lækna var undirritaður í janúar að hann myndi lækka kostnað sjúk- linga og er enn þeirrar skoðunar. „Á undanförnum árum má segja, í grófum dráttum, að ríkið hafi greitt 70 prósent af kostnaði við sérfræði- læknaþjónustu en sjúklingar 30 pró- sent. Á meðan sérfræðilæknar voru samningslausir rukkuðu þeir auka- gjald og það var mat manna að hlut- fall sjúklinga í kostnaðinum væri orðið rúm 40 prósent. Við samning- inn lækkaði það aftur niður í 30 pró- sent,“ segir Kristján og bætir við að heilbrigðisráðherra ákveði hverju sinni hversu stóran hlut sjúklingur- inn borgar og hvernig. Nú hafi ráðherra ákveðið að hækka sjúklingagjaldið örlítið en heildarverð til sérfræðilækna breytist ekki. Þeir fái það sama í sinn hlut og þeir fengu á fyrri helm- ingi ársins. - jme Enn ein blauta tuskan Forseti ASÍ segir ríkið sé enn að hækka gjöld á fólki sem hefur ekkert val. Hann gagnrýnir harðlega hækkun á hlutdeild sjúklinga í kostnaði vegna sérfræðilækna. Formaður samninganefndar sérfræðilækna segir að hlutur sjúklinga hafi lækkað. „Verið er að hækka álögur á veikt fólk í skjóli sumarfría og án þess að tala við einn eða neinn,“ segir Halldór Sævar Guðbergs- son, varaformaður Öryrkjabandalags Íslands, sem ætlar að óska eftir fundi með heilbrigðisráðherra til að fá skýringar á og mót- mæla hækkunum. Hann bendir á að komugjöld á heilsugæslu- stöðvar hafi hækkað um 20 prósent um áramót og nú sé verið að auka hlutdeild í kostnaði við sérfræðilæknaþjónustu um 4,9 prósent. „Læknis- þjónusta hefur hækkað verulega á árinu og nú er nóg komið,“ segir Halldór. Hækkað í skjóli sumarfría Loforð um netskjól gagnrýnt Þingmaður telur Icebrowser ekki geta staðið við fullyrðingu um að auka megi netöryggi notenda með því að beina stafrænni umferð um Ísland. 20 Flugvél nýtt í hrossasmölun Hundrað hross sem sluppu úr gerði í óbyggðum urðu á vegi flugmanns sem sneri þeim við og rak inn í rétt. 2 Fleiri fá kuðungsígræðslu Meðal- aldur heyrnarlausra hér á landi fer ört hækkandi. 4 Nálar verði aðgengilegri Augljósir gallar eru sagðir í vímuefnastefnunni hér á landi. Draga þurfi úr refsistefnu. 6

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.