Fréttablaðið - 17.07.2014, Blaðsíða 9
Áhugasamir sæki um á www.radum.is fyrir 23. júlí.
Allar nánari upplýsingar veitir Hildur Erla Björgvinsdóttir, hildur@radum.is, sími 519 6770.
Verslanir Nova eru í Kringlunni, Smáralind, Lágmúla, á Selfossi og á Glerártorgi Akureyri
Þjónustuver 519 1919 | www.nova.is | m.nova.is | Facebook | Twitter
Sæktu
um fyrir
23. júlí
ÁTT ÞÚ HEIMA
HJÁ NOVA?
skemm
tistaðu
rStærs
ti
í heimi!
2014
SÖLU- OG ÞJÓNUSTURÁÐGJAFAR
Í VERSLUN OG ÞJÓNUSTUVER
Hér óskum við eftir keppnisskapi.
Við leitum að framúrskarandi skemmtilegum starfsmönnum til að taka dansinn með
okkur í verslunum og þjónustuveri Nova. Þetta er sannkallað draumastarf fyrir þá
sem vilja umgangast fullt af fólki og hafa nóg að gera. Í þjónustuverinu er ekki verra
að elska að tala í síma. Um er að ræða fullt starf til framtíðar og unnið er á vöktum.
Lífsgleði, metnaður og keppnisskap. Þetta skiptir mestu máli hér. Auk mikilla söluhæfileika,
þjónustulundar og góðrar tölvukunnáttu. Áhugi á snjallsímum og dótinu sem við erum að selja
er nauðsynlegur.
Stúdentspróf eða sambærileg menntun er skilyrði.
BIG DATA SÉRFRÆÐINGUR
Sérfræðingur í vinnslu og greiningu gagna.
Við erum á fullu við að byggja upp og þróa viðskiptagreind og greiningu hjá Nova.
Okkur vantar sérfræðing til að leiða það starf.
Viðkomandi þarf að hafa brennandi áhuga á greiningarmálum, skilja „bisness“ og geta unnið
sjálfstætt. Hann þarf að hafa sérþekkingu á úrvinnslu gagna og framsetningu og greiningu
upplýsinga. Hann þarf einnig að búa yfir ofurkunnáttu í Excel og hafa einhverja þekkingu á
virkni gagnagrunna. Að þekkja QlikView er mikill kostur.
Háskólapróf eða sambærilegt nám og starfsreynsla er skilyrði.
HJÁ 01101110 01101111 01110110 01100001
ER FORRITAÐ OG FORRITAÐ
Ef þú skildir þetta erum við kannski að leita að þér.
Við leitum að starfsmanni í þróun hugbúnaðarlausna, bæði í framenda og afturenda.
Hjá upplýsingatæknisviði Nova eru þróaðar margar skemmtilegar lausnir. Um er að
ræða spennandi og fjölbreytt vinnuumhverfi sem býður upp á nýjar áskoranir á
hverjum degi. Við nýtum Agile hugmyndafræði og tökum mið af skemmtilegum
Scrum og Kanban vinnuaðferðum í hópavinnu. Þróun lausna fer fram í Windows og
Java umhverfi.
Viðkomandi þarf að hafa brennandi áhuga á forritun hugbúnaðarlausna. Við notum .NET, LINQ,
C#, Java, HTML, CSS, Spring, Hibernate, Javascript, SQL og allt hitt stöffið og því er æskilegt
að þekkja þetta eitthvað, sem og að kunna að gúggla.
Háskólamenntun á sviði tölvunarfræði er skilyrði.
SÖLURÁÐGJAFI — FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA
Ertu þessi hressi?
Vegna aukinna umsvifa á fyrirtækjamarkaði þurfum við að bæta í hópinn og leitum
við því að drífandi söluráðgjafa í fyrirtækjaþjónustu. Í starfinu felst sala á farsíma-
og fastlínuþjónustu til fyrirtækja.
Aðeins sjálfstæður einstaklingur með mikla reynslu af sölu á fyrirtækjamarkaði kemur til greina.
Ef þú hefur áhuga á tækninýjungum, ert metnaðarfull(ur) og hress þá viljum við endilega fá þig
í hópinn.