Fréttablaðið - 17.07.2014, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 17.07.2014, Blaðsíða 10
17. júlí 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 10 GASA Ísraelsmenn settu aukinn þunga í loftárásir sínar á Gasa- svæðið í gær eftir að Hamas- liðar höfnuðu vopnahléstillögu frá Egyptum. Vopnahléið stóð í sex klukkustundir en Ben- jamin Netanyahu, forsætis- ráðherra Ísraels, hafði hótað öflugri árásum. Íbúar á Gasa-svæðinu fengu viðvaranir seint í fyrrakvöld um árásirnar og var sagt að rýma svæðið. Tilkynningum rigndi úr lofti, íbúar fengu símtöl og textaskilaboð. Tugir þúsunda eru nú á vergangi á svæðinu og eiga ekki í nein hús að venda. „Við fengum blöðunga sem sögðu okkur að flytjast burt,“ sagði Um Mohammed Rahmi, 56 ára gömul palestínsk kona, í samtali við fréttastofu Al Jazeera. Hún hvarf frá heim- ili sínu ásamt sex nágrönn- um sínum á asnakerru. „Við vitum ekki hvert við erum að fara. Við vitum ekki hvert við ættum að fara. Við erum stefnulaus.“ Loftárásir Ísraelsmanna hófust fyrir sólarupprás í gær og var þeim beint að um þrjá- tíu húsum. Einkum að húsum hærra settra Hamas-leiðtoga á borð við Mahm oud Zahar og Jamila Shanti. Árásir Ísraela, sem hófust á þriðjudaginn í síðustu viku, hafa nú valdið dauða um 220 Palestínumanna og hátt í fimmtán hundruð liggja særð- ir. Einn af fimm sem týnt hafa lífi er barn samkvæmt upplýs- ingum frá frjálsu félagasam- tökunum Björgum bör nunum. Sameinuðu þjóðirnar segja mikinn meirihluta hinna látnu vera óbreytta borgara. Hamas-samtökin buðu tíu ára vopnahlé milli ríkjanna en fyrir því eru sett ákveðin skil- yrði. Hamas vill að umsáturs- ástandinu verði að fullu aflétt, íbúar Gasa-svæðisins fái að ferðast óáreittir inn og út af svæðinu og að tugum fanga sem haldið er af ísraelskum stjórnvöldum verði sleppt. Yfirvöld í Ísrael svöruðu ekki tilboðinu. Forseti Palestínu, Mahmoud Abbas, fór til Kaíró í Egypta- landi í gær til þess að ræða mögulegt vopnahlé. Að sögn Al Jazeera hefur hann þó lítið tjáð sig um stríðið og hefur það haft þau áhrif að stuðning- ur við hann meðal Palestínu- manna hefur minnkað. Fyrrverandi talsmaður ríkisstjórnarinnar í Palest- ínu, Ghassan Khatib, sagði það hafa breyst hvar stuðningur fólksins lægi. „Það er greini- legt hver áhrifin eru, stuðn- ingur við Hamas er að aukast á meðan stuðningur við yfirvöld í Palestínu og Abbas fer þverr- andi.“ Palestínumenn eitt stórt skotmark Ísraelar hófu loftárásir sínar á Gasa-svæðið af fullri hörku í gær. Forseti Palestínumanna, Mahmoud Assan, er nú í Kaíró en hefur lítið rætt stríðið. Stuðningur Palestínumanna við hann hefur minnkað og færst til Hamas. Lektor í sögu Mið-Austurlanda segir stöðu aðila ójafna. HEIMILIN HORFIN Palestínumenn reyndu að bjarga því sem bjargað varð eftir að hús þeirra voru eyðilögð í gær. NORDICPHOTOS/AFP SLASAÐUR Ungur palestínskur drengur slasaðist í loftárásum Ísraela í gær. Hér er honum hjúkrað af blaðamönnum sem urðu vitni að árásinni. NORDICPHOTOS/AFP „Gasa-búar hafa hvergi stað til að flýja á,“ segir Magnús Þorkell Bernharðsson, lektor í sögu Mið-Austurlanda. „Þeir hafa ekki þann kost að vera flóttamenn. Þeir eru bara eitt stórt skotmark fyrir Ísraelsher.“ Gasa-svæðið á landa- mæri að Egyptalandi, Ísrael og Miðjarðarhafinu. Svæðið er hernumið og íbúum þess haldið innan landamæranna. Magnús segir stöðu aðilanna tveggja ójafna. „Hlutfallið sem við sjáum núna hefur aldrei verið svona slæmt, það er: fjöldi látinna Palestínumanna á móti fjölda látinna Ísraela. Þetta er á mun verra stigi en hefur verið áður.“ Hann segir viðbrögð almennings í Ísrael sýna að átökin séu komin á algjörlega nýtt stig en meirihlutinn þar fagnar árásunum. „Enda hefur eyðileggingin verið meiri Palestínu megin.“ Magnús segir friðarviðræður á villigötum. „Það er ekki verið að nálgast þetta mál út frá grunnvandanum.“ Vopna- hléstillagan sem Egyptar lögðu fram í fyrradag hafi minnt á leikrit þar sem allir skilmálar hafi verið Ísraelsmönnum í hag og Palestínumenn því ekki getað sætt sig við hana. Að hans áliti er ekki líklegt að neitt komi til með að breytast á næstu mánuðum nema almenningsálitið í Ísrael breytist eða með stjórnarskiptum í Bandaríkjunum í nóvember. „Kannski þegar Obama er kominn á seinni hluta kjörtímabilsins, þá vill hann kannski gera eitthvað róttækara í þessum málum.“ Friðarviðræðurnar á villigötum Nanna Elísa Jakobsdóttir nanna@frettabladid.is ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili KIA á Íslandi. Þú finnur „Kia Motors Ísland“ á Facebook
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.