Fréttablaðið - 17.07.2014, Side 10
17. júlí 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 10
GASA Ísraelsmenn settu aukinn
þunga í loftárásir sínar á Gasa-
svæðið í gær eftir að Hamas-
liðar höfnuðu vopnahléstillögu
frá Egyptum. Vopnahléið stóð
í sex klukkustundir en Ben-
jamin Netanyahu, forsætis-
ráðherra Ísraels, hafði hótað
öflugri árásum.
Íbúar á Gasa-svæðinu fengu
viðvaranir seint í fyrrakvöld
um árásirnar og var sagt að
rýma svæðið. Tilkynningum
rigndi úr lofti, íbúar fengu
símtöl og textaskilaboð. Tugir
þúsunda eru nú á vergangi á
svæðinu og eiga ekki í nein hús
að venda.
„Við fengum blöðunga sem
sögðu okkur að flytjast burt,“
sagði Um Mohammed Rahmi,
56 ára gömul palestínsk kona,
í samtali við fréttastofu Al
Jazeera. Hún hvarf frá heim-
ili sínu ásamt sex nágrönn-
um sínum á asnakerru. „Við
vitum ekki hvert við erum
að fara. Við vitum ekki hvert
við ættum að fara. Við erum
stefnulaus.“
Loftárásir Ísraelsmanna
hófust fyrir sólarupprás í gær
og var þeim beint að um þrjá-
tíu húsum. Einkum að húsum
hærra settra Hamas-leiðtoga
á borð við Mahm oud Zahar og
Jamila Shanti.
Árásir Ísraela, sem hófust
á þriðjudaginn í síðustu viku,
hafa nú valdið dauða um 220
Palestínumanna og hátt í
fimmtán hundruð liggja særð-
ir. Einn af fimm sem týnt hafa
lífi er barn samkvæmt upplýs-
ingum frá frjálsu félagasam-
tökunum Björgum bör nunum.
Sameinuðu þjóðirnar segja
mikinn meirihluta hinna látnu
vera óbreytta borgara.
Hamas-samtökin buðu tíu
ára vopnahlé milli ríkjanna en
fyrir því eru sett ákveðin skil-
yrði. Hamas vill að umsáturs-
ástandinu verði að fullu aflétt,
íbúar Gasa-svæðisins fái að
ferðast óáreittir inn og út af
svæðinu og að tugum fanga
sem haldið er af ísraelskum
stjórnvöldum verði sleppt.
Yfirvöld í Ísrael svöruðu ekki
tilboðinu.
Forseti Palestínu, Mahmoud
Abbas, fór til Kaíró í Egypta-
landi í gær til þess að ræða
mögulegt vopnahlé. Að sögn
Al Jazeera hefur hann þó lítið
tjáð sig um stríðið og hefur
það haft þau áhrif að stuðning-
ur við hann meðal Palestínu-
manna hefur minnkað.
Fyrrverandi talsmaður
ríkisstjórnarinnar í Palest-
ínu, Ghassan Khatib, sagði það
hafa breyst hvar stuðningur
fólksins lægi. „Það er greini-
legt hver áhrifin eru, stuðn-
ingur við Hamas er að aukast á
meðan stuðningur við yfirvöld
í Palestínu og Abbas fer þverr-
andi.“
Palestínumenn eitt stórt skotmark
Ísraelar hófu loftárásir sínar á Gasa-svæðið af fullri hörku í gær. Forseti Palestínumanna, Mahmoud Assan, er nú í Kaíró en hefur lítið rætt
stríðið. Stuðningur Palestínumanna við hann hefur minnkað og færst til Hamas. Lektor í sögu Mið-Austurlanda segir stöðu aðila ójafna.
HEIMILIN HORFIN
Palestínumenn
reyndu að bjarga því
sem bjargað varð eftir
að hús þeirra voru
eyðilögð í gær.
NORDICPHOTOS/AFP
SLASAÐUR Ungur
palestínskur drengur
slasaðist í loftárásum
Ísraela í gær. Hér er
honum hjúkrað af
blaðamönnum sem
urðu vitni að árásinni.
NORDICPHOTOS/AFP
„Gasa-búar hafa hvergi stað til að flýja á,“
segir Magnús Þorkell Bernharðsson, lektor
í sögu Mið-Austurlanda.
„Þeir hafa ekki þann
kost að vera flóttamenn.
Þeir eru bara eitt stórt
skotmark fyrir Ísraelsher.“
Gasa-svæðið á landa-
mæri að Egyptalandi,
Ísrael og Miðjarðarhafinu.
Svæðið er hernumið og
íbúum þess haldið innan landamæranna.
Magnús segir stöðu aðilanna tveggja
ójafna. „Hlutfallið sem við sjáum núna
hefur aldrei verið svona slæmt, það er:
fjöldi látinna Palestínumanna á móti
fjölda látinna Ísraela. Þetta er á mun
verra stigi en hefur verið áður.“ Hann
segir viðbrögð almennings í Ísrael sýna að
átökin séu komin á algjörlega nýtt stig en
meirihlutinn þar fagnar árásunum. „Enda
hefur eyðileggingin verið meiri Palestínu
megin.“
Magnús segir friðarviðræður á
villigötum. „Það er ekki verið að nálgast
þetta mál út frá grunnvandanum.“ Vopna-
hléstillagan sem Egyptar lögðu fram í
fyrradag hafi minnt á leikrit þar sem allir
skilmálar hafi verið Ísraelsmönnum í hag
og Palestínumenn því ekki getað sætt sig
við hana.
Að hans áliti er ekki líklegt að neitt
komi til með að breytast á næstu
mánuðum nema almenningsálitið í
Ísrael breytist eða með stjórnarskiptum
í Bandaríkjunum í nóvember. „Kannski
þegar Obama er kominn á seinni hluta
kjörtímabilsins, þá vill hann kannski gera
eitthvað róttækara í þessum málum.“
Friðarviðræðurnar á villigötum
Nanna Elísa
Jakobsdóttir
nanna@frettabladid.is
ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili KIA á Íslandi.
Þú finnur „Kia Motors Ísland“
á Facebook