Fréttablaðið - 17.07.2014, Blaðsíða 32
FÓLK|
Heilu fjöllin af fötum, skóm og kössum taka á móti blaðamanni þegar hann mætir í fataflokkun
Rauða krossins í Skútuvogi. Það gerir
líka hinn skælbrosandi Örn Ragnars-
son verkefnisstjóri sem hefur lofað að
leiða okkur í allan sannleikann um þá
starfsemi sem fram fer í þessu stóra
vöruhúsi. „Vinnan hjá okkur byrjar á
hverjum morgni með því að það kemur
tuttugu feta gámur frá Sorpu sem
venjulega er fullur af fötum eða um
þrjú tonn. Þá hefjumst við handa við að
losa hann og vinsum úr bestu flíkurnar
fyrir búðirnar og í það sem við notum
í hjálparstarf,“ lýsir Örn og bendir á
að gríðarleg aukning hafi orðið síðustu
tvö ár á þeim fötum sem berast Rauða
krossinum. „Í fyrra jókst magnið um
270 tonn, og það sem af er þessu ári hef
ég flutt út 120 tonnum meira en á sama
tíma í fyrra.“
HEIMSMARKAÐUR FYRIR NOTUÐ FÖT
Það sem Rauði krossinn getur ekki nýtt
sér er flutt út og selt. „Á síðasta ári fóru
yfir 1.600 tonn þá leiðina sem gaf 87
milljónir í tekjur,“ segir Örn og tekur
fram að mikill markaður sé fyrir notuð
föt í heiminum. „Við skiptum við tvö
fyrirtæki í Evrópu sem flokka fötin í 250
til 300 flokka eftir efni, stærð og mark-
aði og svo selja þeir þetta áfram. Mikið
af því sem hér fer í gegn endar í Afríku,
Austur-Evrópu eða Miðausturlöndum
og austur í Kasakstan,“ segir Örn en
innan við tíu prósent af öllum fötum fer
í endurvinnslu.
VELJA ÞAÐ BESTA
Fimmtíu tonn af fötum fara í Rauða-
krossbúðirnar og fataúthlutanir og um
20 tonn í hjálparstarf til Hvíta-Rúss-
lands. „Við stillum yfirleitt upp færibandi
við gáminn og losum úr hverjum poka,
skoðum og vinsum úr það besta. Þær
Sigrún Jóhannsdóttir og Guðbjörg Pálma-
dóttir þekkja þetta allt saman og ráða því
hvað verður eftir,“ segir Örn og bendir á
að önnur þeirra sé fyrrverandi handa-
vinnukennari og hin prjónahönnuður.
Örn gengur nú yfir í næsta sal þar
sem gæðafötin eru geymd. „Hér fer hin
eiginlega úrvinnsla fram. Stelpurnar taka
hverja flík og athuga hvort hún stenst
gæði, hvort það séu saumsprettur, rifnir
vasar eða blettir. Við viljum ekki setja
slíkt í búðirnar.“
Örn gengur lengra og bak við fataslá
sem hlaðin er dýrindis pelsum er að
finna heilt borð fullt af skartgripum. „Við
fáum mikið af skartgripum sem margir
eru ekki í lagi. Öðru hverju myndum við
starfshópa og lögum þá eða búum til
nýja skartgripi úr gömlum.
LOPAPEYSUR Í VIÐGERÐ
Örn röltir fram hjá stöflum af pokum
sem greinilega eru fullir af lopapeys-
um. Inntur eftir innihaldinu segir hann;
„Þetta eru peysur sem eru á leið í
viðgerð. Deildirnar á Egilsstöðum og
Kópavogsdeildin fá senda flesta pok-
ana því þar eru svo góðar prjónakon-
ur,“ segir hann en lopapeysur seljast
eins og heitar lummur í Rauðakross-
búðinni á Laugavegi.
BRÚÐARKJÓLAR OG BÚNINGAR
En hvað er nú það skrítnasta sem
hefur borist í gámunum? „Ja, það er nú
ýmislegt. Stundum berast hjálpartæki
ástarlífsins,“ segir Örn kíminn og spyr
svo Guðbjörgu hvort hún muni eftir
einhverju. „Um daginn kom legsteinn í
gámnum, en það voru held ég mistök,“
svarar hún hlæjandi. Guðbjörg segist
annars safna þeim brúðarkjólum sem
berast. „Síðan lána ég þá stundum í
tökur,“ segir hún en Örn bendir á að
búningahönnuðir hafi stundum sam-
band og leggi fram beiðnir um sér-
stakan fatnað.
NÝ FÖT ÚR VERSLUNUM
Við endum yfirferð okkar á svæði þar
sem pakkað er fötum sem ætluð eru í
hjálparstarf í Hvíta-Rússlandi. „Konur
úti um land búa til staðlaða fatapakka
fyrir smábörn og eldri krakka en því
til viðbótar eru send sérvalin föt,“
segir Örn og bendir á tvo risakassa
með nýjum barnastígvélum og öðrum
ónotuðum fötum. „Við fáum töluvert af
nýjum fötum frá verslunum sem ekki
má selja innanlands,“ útskýrir Örn og
segir að fleiri fyrirtæki mættu hafa
hugsun á því að koma fötum til hans.
„Ég veit að enn er verið að urða nýjan
fatnað uppi í Álfsnesi. Mig langar til
að benda þessum fyrirtækjum á að við
getum ábyrgst að fötin fari úr landi,“
segir Örn sem finnst alltaf gaman í
vinnunni.
■ solveig@365.is
FLOKKA ÚR 20 FETA
GÁMI DAGLEGA
ENDURNÝTING Hver vinnudagur í fataflokkun Rauða krossins hefst á því
starfsmenn og sjálfboðaliðar tæma þrjú tonn af fötum úr tuttugu feta gámi.
FLOKKA
Þau Helga Thomsen og
Einar Sch. Thorsteinsson
vinna hörðum höndum
við að flokka og para skó.
VERKEFNISSTJÓRI
Örn Ragnarsson ræður
lögum og lofum í fata-
flokkun Rauða krossins.
METUR GÆÐI Guðbjörg Pálmadóttir fer yfir fatnaðinn og athugar hvort nokkuð leynist saumsprettur eða blettir í honum. MYND/PJETUR
TÍSKA
ENDURNÝTA
SKARTGRIPI
„Við fáum mikið
af skartgripum
sem margir eru
ekki í lagi. Öðru
hverju myndum
við starfshópa þar
sem búnir eru til
nýir skartgripir úr
gömlum, eða lag-
aðir þeir sem eru
bilaðir.“
Útsalan
í fullum gangi
30-50% afsláttur
af öllum útsöluvörum
Bæjarlind 1-3
201 Kópavogur
s: 571-5464
my style
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
ÚTSALAN
Í FULLUM GANGI
30-50% afsláttur af öllum útsöluvörum
Verslunin Belladonna
Opið virka daga kl.
11–18.
Opið laugardaga k
l. 10–15.
Kí
ki
ð
á
m
yn
di
r o
g
ve
rð
á
F
ac
eb
oo
k
Laugavegi 178 (Bolholtsmegin) | Sími 555 1516
Gerið góð kaup á góðri vöru,
á mjög góðu verði.
„Kryddaðu” fataskápinn
með fatnaði frá
30%
afsláttur af öllum útsölufatnaði
NÝTTKORTATÍMABIL
THE MORE YOU USE IT
THE BETTER IT LOOKS