Fréttablaðið - 17.07.2014, Blaðsíða 56

Fréttablaðið - 17.07.2014, Blaðsíða 56
17. júlí 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING BÍÓ | 40 Dawn of the Planet of the Apes tekur upp söguna í kvikmyndinni Rise of the Planet of the Apes frá árinu 2011 en fyrsta myndin um Apaplánetuna var sýnd árið 1968. Í þessari nýju mynd leiðir Caes- ar, afburðagáfaður api, ört stækk- andi hóp erfðafræðilega þróaðra apa. Þeim stafar ógn af eftirlifend- um úr röðum manna sem stóðu af sér skelfilegan vírus sem breiddi úr sér um allan heim áratug fyrr. Aparnir og mennirnir komast að friðarsamkomulagi, sem er afar brothætt. Þeir standa því á barmi styrjaldar sem sker úr um hvor teg- undin kemur til með að ráða ríkjum á jörðinni. Leikstjóri myndarinnar er Matt Reeves sem er hvað þekktastur fyrir að leikstýra kvikmyndinni Cloverfield. Hann segir í viðtali við Slashfilm að hann hafi leik- stýrt nokkrum senum myndarinn- ar í gegnum Skype. Hann breytti meðal annars lokasenunni þannig. „Þegar ég áttaði mig á að þetta var ekki réttur endir fór ég til [brellufyrirtækisins] Weta og sagði: ókei, við þurfum að gera eitt- hvað annað,“ segir Matt. Hann leik- stýrði aðalleikaranum Andy Serkis með því að tala við hann í gegnum tölvu með hjálp Skype. „Ég sagði honum hvað væri að gerast í lokasenunni. Og við gerðum þetta hreinlega í gegnum Skype.“ Þá segir Matt að hann hafi einnig leikstýrt leikurunum Jason Clarke og Keri Russell með forritinu. „Það er brjálað það sem er hægt að gera.“ Þetta er fyrsta myndin um Apa- plánetuna sem er í þrívídd en hún hefur hlotið einróma lof gagnrýn- enda um heim allan. liljakatrin@frettabladid.is Leikstýrði lokasenu Apa- plánetunnar í gegnum Skype Stórmyndin Dawn of the Planet of the Apes var frumsýnd á Íslandi í gær en gagnrýnendur telja hana eina af bestu myndum sumarsins. Leikstjórinn Matt Reeves fór óhefðbundnar leiðir við gerð myndarinnar. Ég sagði honum hvað væri að gerast í loka senunni. Og við gerð- um þetta hrein lega í gegnum Skype Matt Reeves Dawn of the Planet of the Apes þénaði um 73 milljónir dollara, rúma átta milljarða króna, í Bandaríkjunum um frumsýningarhelgina. Þá halaði hún inn 31,1 milljón dollara, um þrjá og hálfan milljarð króna, á alþjóðlegum markaði fyrstu frumsýningarhelgina. Þá var hún sýnd á 26 litlum svæðum ef undan- skildar eru Ástralía og Suður-Kórea. Myndin skákar þannig Rise of the Planet of the Apes sem þénaði 54,8 milljónir dollara, rúmlega sex milljarða króna, um frumsýningarhelgina í Bandaríkjunum árið 2011. Áhorfendur Dawn of the Planet of the Apes um frumsýningarhelgina í Bandaríkjunum voru 58 prósent karlmenn og 65 prósent voru eldri en 25 ára. Áætlaður kostnaður við myndina er 170 milljónir dollara, tæpir tuttugu milljarðar króna. SKÁKAÐI FYRIRRENNARANUM Í MIÐASÖLU ILLSKEYTTIR APAR Apar og menn standa á barmi styrjaldar í myndinni. 8,5/10 79/100 91/100 Leikarinn Donald Sutherland er 79 ára í dag. Helstu myndir: The Italian Job, Pride & Prejudice, The Hunger Games: Catching Fire Afmælisbarn dagsins Leikkonan Emmy Rossum deildi mynd af sér á Twitter þar sem hún sat samlestur fyrir fimmtu seríu af sjónvarpsþáttunum Shameless. Á myndinni sjást leikarar seríunnar í hláturs- kasti og skrifar Emmy við mynd- ina: „Þessi handrit fá mig til að hlæja upphátt.“ Þátturinn sem leikararnir voru að lesa þegar myndin er tekin er þáttur tvö í fimmtu seríu. HANDRITIN SPRENGHLÆGILEG Hinn tíu ára gamli Neel Sethi var val- inn úr þúsundum barna til að leika Mowgli í kvikmyndinni The Jungle Book sem Jon Favreau leikstýrir. Áheyrnarprufur fóru fram í Banda- ríkjunum, Bretlandi, Nýja-Sjálandi og Kanada en Neel býr í New York. Er þetta fyrsta hlutverk Neels og segir Jon að hann sé afar hæfileikaríkur og sjarmerandi. LEIKUR Í THE JUNGLE BOOK Leikstjórinn Ron Howard, sem hefur verið aðdáandi Bítlanna mest allt sitt líf, leikstýrir og framleiðir heimildarmynd um tónleikaferðir hljómsveitarinn- ar á árunum 1960 til 1966. Apple Corps Ltd., White Horse Pict- ures og fyrirtæki Rons, Imagine Entertainment, framleiðir mynd- ina í samvinnu við Bítlana Paul McCartney og Ringo Starr sem og Yoko Ono Lennon og Oliviu Harrison, ekkjur Johns Lennon og George Harrison. „Ég er spenntur og það er mér heiður að vinna með Apple og White Horse-teyminu að þess- ari mögnuðu sögu um þessa fjóra ungu menn sem tóku heiminn með trompi árið 1964. Það er ekki hægt að ýkja áhrif þeirra á popp- menningu og mannlega reynslu,“ segir Ron í samtali við Variety. Hann stefnir á að klára myndina og sýna hana í lok næsta árs. Bítlarnir byrjuðu að spila sem sveit í Liverpool árið 1960 og spiluðu í kjölfarið á klúbbum í Hamborg. Þeir fóru síðan á Evr- óputúr síðari hluta árs 1963. Eftir að þeir komu fram í þætti Eds Sullivan árið 1964 sigruðu þeir heiminn og þeir fóru í tónleika- ferðalag sumarið sama ár. „Eftir að ég sá Bítlana hjá Ed Sullivan langaði mig bara í bítla- hárkollu. Foreldrar mínir sögðu nei en gáfu mér síðan eina slíka í tíu ára afmælisgjöf,“ segir Ron. - lkg Leikstýrir heimildarmynd um Bítlana HEIMSYFIRRÁÐ Bítlarnir eru ein vin- sælasta sveit allra tíma. Leikkonan Nicole Kidman er byrjuð í tökum á nýjustu mynd sinni, The Family Fang, í New York. Myndin fjallar um systkini sem snúa aftur á æskuslóðir til að leita að heimsfrægum foreldrum sínum sem hafa horfið sporlaust. Jason Bateman leikur bróður Nicole í myndinni en í öðrum hlutverkum eru Cristopher Walken og Grainger Hines. BYRJUÐ Í TÖKUM Leikkonurnar Katie Holmes og Helen Mirren og leikarinn Ryan Reynolds mættu í tökur á kvikmyndinni Woman in Gold í Culver City í Kaliforníu í vikunni. Myndin fjallar um flóttamann- inn Mariu Altmann, sem leikin er af Helen, sem er af gyðinga- ættum og ætlar sér að ná aftur listaverkum sem hún telur að séu eign fjölskyldu sinnar. TÖKUR Í KALIFORNÍU WOODY borðstofustóll. 6 litir með hvíttuðum viðarlöppum. 14.450 FULLT VERÐ: 19.990 R E Y K J AV Í K | A K U R E Y R I WOODY KOMINN AFTUR Í ÖLLUM LITUM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.