Fréttablaðið - 17.07.2014, Page 38
KYNNING − AUGLÝSINGÞjóðhátíð FIMMTUDAGUR 17. JÚLÍ 20146
Foreldrum okkar leist ekkert á þetta og héldu fund. Þar varð niðurstaðan sú að við fengjum að fara ef við yrðum hjá
frænku hans Adda í Eyjum,“ segir Jóhann
Bachmann, trommari Skítamórals, þegar hann
rifjar upp hvernig ung og efnileg sveit fjögurra
fimmtán ára stráka frá Selfossi fékk boð um að
spila á Þjóðhátíð í fyrsta sinn.
Ólýsanleg tilfinning
Þótt upplifunin hafi verið einstök fyrir ung-
lingana árið 1991 er það Þjóðhátíðin sex árum
síðar sem er Hanna einna minnisstæðust. „Þá
vorum við aðalbandið í fyrsta sinn, ásamt Sál-
inni. Það var hreint ótrúleg upplifun. Þessar
hljómsveitir skiptu öllum kvöldunum á milli
sín en síðasta kvöldið vorum við saman uppi á
sviði með Sálinni og það var ólýsanleg tilfinn-
ing,“ lýsir hann „Maður var með gæsahúð allan
tímann.“
Allir glaðir í dalnum
Ekki gafst mikill tími til skemmtanahalds
fyrir sveitina það árið enda taka tónleikar
hvert kvöld mikla orku.
„Í ár spilum við bara á laugardagskvöld-
ið, fyrst á kvöldvökunni og svo á ballinu. Þeir
sem það vilja ættu því að geta skemmt sér eftir
það,“ segir Hanni sem sjálfur er fæddur í Vest-
mannaeyjum og hefur því sótt ófáar Þjóðhátíð-
ir frá barnsaldri.
Inntur eftir því hvað það sé við Þjóðhátíð
sem dragi allt þetta fólk að segist Hanni halda
að það sé gleðin, kætin og hamingjan. „Það
er eitthvað sem gerist í dalnum sem gerir alla
glaða.“
Gamlir slagarar og nýir
Hanni segir gesti Þjóðhátíðar mega búast
við að heyra gömul og góð Skítamóralslög á
borð við Farinn og Ennþá. „Svo spilum við
líka nýja lagið okkar, Þú (ert ein af þeim). Við
höfum í gegnum tíðina reynt að taka cover-
lög á böllum en fólk vill það ekkert. Það vill
bara heyra okkar lög. Þess vegna höldum við
okkur við það,“ segir Hanni en honum finnst
sjálfum mesta fjörið að spila Ennþá og Æði á
böllum. „Þá verður allt vitlaust.“
Auk þessa verða eyjalög Skítamórals örugg-
lega á dagskrá en það eru Þú veist hvað ég
meina mær frá 1997 og Draumur um þjóðhá-
tíð frá 2003.
Nýtt lag og mikið um að vera
Skítamórall hefur annars margt á prjónunum.
„Það kemur nýtt lag frá okkur í haust og svo
erum við að spila á fullu og þegar búið að bóka
verkefni í vetur.“
Félagarnir í Skítamóral eru sex. Það eru
Hanni, Addi, Gunni Óla og Herbert sem skip-
uðu upphaflega bandið en auk þess eru með
þeim þeir Einar Ágúst og Gunnar Þór. „Einar
tók sér frí í tíu ár en er nú kominn aftur. Það
er mjög gaman að vera komnir saman að nýju.
Það gerist eitthvað ákveðið þegar við erum
komnir allir saman upp á svið. Við dettum í
einhvern svakalegan gír og gleðin og stemn-
ingin á sviðinu verður mikil,“ segir Hanni.
Gæsahúð á sviðinu með Sálinni
Strákarnir í Skítamóral voru ekki nema 15 ára þegar þeir spiluðu fyrst á Þjóðhátíð 1991. Þeir hafa verið fastagestir í Eyjum en um
næstu verslunarmannahelgi spila þeir á Þjóðhátíð í sjöunda sinn. Gestir í Eyjum fá gömlu slagarana í æð auk nýs efnis frá sveitinni.
Það er alltaf mikið fjör þegar strákarnir í Skítamóral koma saman. MYND/GASSI
Golf
Eyjamenn eiga glæsilegan golfvöll sem er einn besti 18 holu völlur
landsins og einn af 200 bestu völlum Evrópu.
Fuglalíf og klettafjör
Í Vestmannaeyjum er líf í björgunum en vel þekkt er sú iðja Eyja-
manna að spranga í klettunum. Þetta finnst bæði börnum og full-
orðnum skemmtilegt. Best er að fara varlega því slysin gera ekki
boð á undan sér.
Ferðamenn geta einnig gengið á fjöll. Til
dæmis má nefna tindana sjö sem um-
kringja byggðina. Þar er gengið um
söguslóðir og misbrattar hlíðar.
Klettarnir iða af fuglalífi og Vest-
manneyjar eru sannkölluð paradís
fuglaskoðarans.
Höfin blá
Ýmsir aðilar bjóða upp á bátsferðir af ýmsum
toga frá Vestmannaeyjum. Til dæmis Viking
tours sem sigla kringum eyjuna, fara í hvala-
skoðunarferðir, sjóstangveiðiferðir og skoð-
unarferð til Surtseyjar.
Ribsafari býður einnig upp á spennandi
afþreyingu. Siglingu í harðbotna slöngu-
bátum, lundaskoðun, ýmsar sérferðir og
annað skemmtilegt.
Söfn
Í Eyjum eru nokkur söfn, þar á meðal
Náttúru gripasafnið, Byggðasafnið og
Surtseyjar stofa.
Eldheimar er glænýtt og
spennandi safn sem miðl-
ar fróðleik um eldgos-
ið í Eyjum 1973.
Afþreying í Eyjum
Þótt flestir mæti á Þjóðhátíð til að taka þátt í hátíðahöldunum
í Herjólfsdal er ýmislegt annað hægt að gera í eyjunum.
Meðal þeirra sem bjóða upp á bátsferðir frá Eyjum er ribsafari.is. Þegar Jón var beðinn um að semja Þjóðhátíðar-lagið fyrir árið 2014 síðastliðið haust var það auðsótt af hans hálfu. „Ég þurfti ekki að hugsa
mig tvisvar um. Þarna var gamall draumur að ræt-
ast. Ég hef oft farið á Þjóðhátíð og upplifað stemn-
inguna. Ég tók þessari áskorun því fagnandi,“ sagði
Jón þegar blaðamaður náði tali af honum í Hvíta-
Rússlandi þar sem hann var á ferð með knattspyrnu-
mönnum FH vegna Evrópuleiks.
Jón segist hafa farið fyrst á Þjóðhátíð árið 2003
og nokkrum sinnum síðan. Bæði 2011 og 2012 kom
hann fram á hátíðinni. „Ég þekki algjörlega stemn-
inguna og þegar kom að því að semja texta var ég
ekkert að finna upp hjólið. Frekar að setja á blað
hina týpísku stemningu sem allir þekkja sem hafa
verið á Þjóðhátíð. Síðan þurfti ég að huga að því að
lag og texti væru þannig að allir gætu sungið með,“
segir Jón sem hefur fengið mjög góð viðbrögð við
laginu, jafnt frá Eyjamönnum sem öðrum.
Á föstudagskvöldið á Þjóðhátíð kemur Jón fram og
frumflytur lagið fyrir gesti ásamt hljómsveit sinni.
„Hljómsveitin klæðir lagið í fullan skrúða. Það væri
ekkert varið í þetta ef ég væri einn með kassagít-
arinn. Ég er farinn að hlakka mikið til, enda veit
ég að þetta verður sérstök stemning.“
Ljúft að vera til
Í Herjólfsdalnum, við lífsins njótum.
Það er svo ljúft að vera til.
Vináttuörvum allt í kring skjótum.
Samveran veitir birtu og yl.
Hér er hamingja, ást og gleði.
Stemmingin í dalnum er svo blíð.
Forréttindi að vera með í,
veisluhöldunum á Þjóðhátíð.
Eyja meyja og peyja, lof mér að segja,
ó, hve ljúft það er að vera til.
Eyja meyja og peyja, lof mér að segja,
ó, hve ljúft það er að vera til.
Í bleikri brekkunni við syngjum saman.
Svo ljúft að vera þér við hlið.
Í þínum örmum svo hlýtt, svo gaman.
Vor bjarta framtíð blasir við.
Hér er hamingja, ást og gleði.
Stemmingin í dalnum er svo blíð.
Forréttindi að vera með í,
veisluhöldunum á Þjóðhátíð.
Eyja meyja og peyja, lof mér að segja,
ó, hve ljúft það er að vera til.
Eyja meyja og peyja,
lof mér að segja,
ó, hve ljúft það er
að vera til.
Tók þessari
áskorun fagnandi
Jón Ragnar Jónsson er höfundur Þjóðhátíðarlagsins í ár. Lagið þykir
einstaklega grípandi og Jón hefur fengið mjög góð viðbrögð við því.
Jón Ragnar Jónsson hlakkar
til að frumflytja lagið sitt á
Þjóðhátíðinni í Eyjum.