Fréttablaðið - 17.07.2014, Síða 52

Fréttablaðið - 17.07.2014, Síða 52
17. júlí 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING | 36 „Það er svolítið öðruvísi að skoða myndlist þegar maður er úti í nátt- úrunni en í borginni. Maður er öðru vísi innstilltur, opinn fyrir umhverf- inu og í fljótandi gír,“ segir Sólveig Aðalsteinsdóttir myndlistarkona um sýninguna Dalir og hólar sem er í byggðunum við Breiðafjörð. „Þetta eru afskaplega fallegar sveitir, Dal- irnir og Reykhólasveitin og það er ágætt að hægja aðeins á ferðinni þar, enda margt að sjá,“ bætir hún við. Sýningin er á átta stöðum og hefur verið vel sótt af heimafólki og þeim sem eiga leið hjá, að sögn Sólveigar. „Svo eru alltaf einhverj- ir sem leggja leið sína hingað gagn- gert til að skoða hana og fara í þetta ferðalag. Það er nú hugmyndin að draga fólk í ferðalag. Þetta er víð- feðm sýning, rúmlega hundrað kíló- metrar svo það er alveg dagsferð að fara um hana alla.“ Dalir og hólar er haldin í fimmta sinn í sumar. Þema hennar er Litur. Myndlistarmennirnir Bjarki Braga- son, Eygló Harðardóttur, Gerd Tinglum, Logi Bjarnason og Tumi Magnússon eiga þar verk og Sól veig er sýningarstjóri ásamt Þóru Sigurðardóttur. Þær fóru með lista- mennina um svæðið snemma vors. Allir sýna þeir í gamla landbún- aðarskólanum í Ólafsdal og dreifa sér víðar. Þrír sýna í hlöðu í Ytri- Fagradal, sem bændur höfðu notað fyrir gamla bíla og eyðibýli verða að sýningarsölum. Í Skarðsstöð, sem er gamall verslunarstaður, er lista- verk á hreyfiás og tekur mið af því að vindurinn blæs þar um. Sólveig segir samstarf við land- og húsaeigendur hafa verið mjög gott. „Dalir og hólar er komin með ákveðinn sess og þó hún sé á sama svæði ár eftir ár er hún á mismun- andi stöðum nema hvað Ólafsdalur er fastur punktur.“ Sýningin stend- ur til 10. ágúst. gun@frettabladid.is Sýna í Ólafsdal, úti- húsum og eyðibýlum Myndlistarsýningin Dalir og hólar dreifi st um sveitirnar við Breiðafj örðinn og dregur nafn af staðsetningunni, Dalabyggð og Reykhólasveit. SÝNINGARSTJÓRAR „Þetta er víðfeðm sýning, rúmlega hundrað kílómetrar,“ segir Sólveig. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Á SÝNINGUNNI Listaverk eru í og umhverfis gamla bíla í hlöðunni í Ytri-Fagradal. LITIR Í Sundlauginni á Reykhólum er verk eftir Eygló Harðardóttur. Voces Thules hefur þriðju viku Sumartónleika í Skálholti með tón- leikum í kvöld klukkan 20. Á tón- leikunum verður sungið á 12. og 13. aldar íslensku og latínu. Í tilefni af upphafi Skálholtshátíðar verður m.a. prósan Innocentem te servavit sungin til heiðurs Þorláki Þórhalls- syni biskupi í Skálholti á 12. öld. Að þessu sinni verður þessi þekktasti söngur úr Þorlákstíðum í fjölradda útfærslu. Spuni verður ríkjandi á tónleikunum, en hann var jafn eðli- legur hluti af tónlistariðkun á mið- öldum og nú, þó svo að kirkju feður gerðu annað slagið tilraun til að koma í veg fyrir hann. Annað kvöld er það Bachsveitin í Skálholti sem kemur fram á Sum- artónleikum klukkan 20 og einnig á laugardaginn, 19. júlí, klukkan 16 og 21. Leiðari sveitarinnar er Peter Spissky en einleikarar með Bachsveitinni að þessu sinni verða Jóhanna Halldórsdóttir altsöng- kona og Elfa Rún Kristinsdóttir fiðluleikari. Dagskráin sem leikin er á föstu- dagskvöld verður endurtekin á laugardagskvöld og verður þar hinn ítalski barokkstíll ráðandi. Þá verða m.a. aríur eftir Händel og sinfóníur eftir Vivaldi á dagskrá. Á laugardaginn klukkan 16 gefst svo tónleikagestum tækifæri á því að upplifa samruna hins ítalska stíls og þess franska, en á barokktím- anum var oft rifist um hvor stíllinn væri betri. Þessi blandaði stíll er nú á dögum oft kallaður þýskur stíll. Á dagskrá eru m.a. verk eftir Lully, Telemann og Muffat. - fsb Voces Thules og Bach- sveitin í Skálholti Dagskrá þriðju viku Sumartónleika í Skálholti hefst í kvöld með tónleikum Voces Thules. Á morgun og laugardag eru þrennir tónleikar með Bachsveitinni. „Húsið var tekið niður árið 2009 en verður endurbyggt í upprunalegri mynd og á að verða fokhelt fyrir veturinn,“ segir Ólafur Jóhann Eng- ilbertsson um framkvæmdir sumarsins í Selárdal í Arnarfirði. Hann er í félagi um listasafn Samúels og heldur utan um fjárreiður þess. „Hug- myndin er að fólk geti í framtíðinni fengið sér kaffi hér og keypt minja- gripi og á efri hæðinni verði íbúð fyrir lista- og fræðafólk,“ segir Ólafur. Gerhard König, sérfræð- ingur í steypuviðgerðum, er verkstjóri á staðnum. Hann sér um steinvegginn á húsinu en þrjár hliðar af fjórum eru úr timbri og smiðir frá Tálknafirði eru að ganga frá þeim. Endurbætur á listaverkum Samúels Jónssonar við húsið hófust fyrir sextán árum. „Sjálfboðaliðar af fjölmörgum þjóðernum hafa unnið með Köning, margir þeirra listnemar, sumir hafa gert lokaverkefnin sín um þennan stað,“ lýsir Ólafur. Framkvæmdasjóður ferðamannastaða lagði endurbyggingunni lið nýlega en Ólafur segir verkefnið háð frjálsum framlögum. Frekar er hægt að fræðast um það á http://sogumidlun.is/pdf/samuel_net.pdf. - gun Hugmyndin að fólk geti fengið sér kaffi Framkvæmdir eru hafnar við hús Samúels í Selárdal. VIÐ FRAMKVÆMDIR Gerhard Köning styrkir stein- vegginn með múrsteinum. Hollendingur fylgist með. EINLEIKARI Elfa Rún Kristinsdóttir fiðluleikari leikur einleik með Bach- sveitinni. VERIÐ VELKOMIN Í NETTÓ GRANDA OG MJÓDD DAG SEM NÓTT

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.